Akranes - 01.07.1952, Síða 30

Akranes - 01.07.1952, Síða 30
H.F. EIMSKIPAFELAG ÍSLANDS Reglubundnar siglingar milli íslands og lielztu vi&skiptalanda vorra me'ð nýtízku hrdSskreiðum skipum. Vörur fluttar með eða án umhleðslu: hvaðan sem er og hvert sem er. LEITIÐ UPPLÝSINGA UM FRAMHALDSFLUTNINGSGJÖLD. Bifreiðaverkstæ ði Akraness h.f. Sími 102 — Akranesi BIFREIÐAVIÐGERÐIR BIFREIÐASPRAUTUN BIFREIÐARÉTTINGAR BIFREIÐASMURNING VERZLUN MEÐ BIFREIÐAVARAHLUTI SLIPPFÉLAGIÐ 50 ÁRA Framhald af 81. síSu í Reykjavík svonefnt tJtgerðarmannafélag. Þótti það þó á stundum, a. m. k., vera fremur ldflítið og áhugi a!f skomum skamti. Þegar hér var komið sögu, var Tryggvi Gunnarsson, fyrrnefndur, for- maður þess, hvatamaður að stofnun þess, — og sjálfsagt lengst af aðal kraftur í því. — Tryggvi hefur haft opin augu fyrir þeirri ríku þörf útgerðarinnar að eignast dráttarbraut eða „slipp,“ eins og það var þá kallað. Þetta var vitanlegá fyrir mörg- um ánnn orðin fullkomin nauðsyn, og mátti með engu móti dragast lengur að hafizt væri handa í svo mikilvægu máli. Tryggvi tók þetta mál því upp í íltgerð- armannafélaginu, og við útvegsmenn yfir- leitt, og má a;f ýmsu ráða, að það hafi feng- ið góðan hljómgrunn, enda auðsæ nauð- syn, Eins og áður er sagt, voru öll skipin keypt hingað gömul, — misjafnlega að visu, — maðksmogin og misjafnlega hald- ið við eins og gengur. Það lá þvi i augum uppi, að eftir þvd, sem árunum fjölgaði, — sem og skipunum, — var 'óhugsandi ti! lengdar að komast hjá því, að eignast tæki til að ná skipunum á land og bæta aðstöðuna til viðgerðar þeirra, auk þess, sem hirðing þeirra væri á þann veg mun auðveldari og betri. I þessu sambandi þykir rétt að taka hér upp grein, er Tryggvi Gunnarsson ritaði í almanak Þjóðvinafélagsins fyrir árið 1902, en hefur sjálfsagt verið prentað í Kaupmannahöfn á árinu 1901. Fyrirsögn greinarinnar er Þilskipaeignin, og hljóðar svo: „I Trangisvaag (Þrengslavogi) og Vest- mannahöfn i Færeyjum eru vindur hafðar t-ða uppsátursáhöld til þess að koma þilskip inn á þurrt land, þegar gera þarf að þeim eða hreinsa þau. I Trangisvaag komu á- höldin fyrst 1894, og þá um leið skipa- smiðameistari frá Danmörku, 6 skipa- smiðir aðrir og 4 smiðapiltar. Nú er 1 yfirsmiður þar, 10 skipasmiðir og 5 smíða- piltar; auk þess nokkrir járnsmiðir og eigi allfáir verkamenn, sem gera að seglum og reiða, og fleira þvi, er að viðgerð lýtur. Ný skip hafa Færeyingar eigi látið smíða, oif þvd að eldri skip hafa fengizt undan- farin ár á Englandi fyrir mjög svo lágt verð. Þessi uppsátursáhöld telja Færeying- sér ómissandi, en finna þó, að þau eru þeim ekki alls kostar nægileg og eru því farnir að ráðgera að búa til skipakví, er taki um 40—50 skipa. Svona hátt hugsa Færeyingar sér, og eru þó ekki fleiri talsins alls en rúmlega 15,000; en hér á landi er það talin fásinna og oss ofvaxið að búa til skipakví, og þyrfti 102 AKRANES

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.