Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1964, Page 20
44
TlMARIT VFl 1964
Málmsmíði.
Öll venjuleg starfsemi í jámsmiðjum og
blikksmiðjum, málmsteypa, vélsmíði, ofnasmíði,
stálvaskar, málmhúðun, stáltunnugerð.
Raftœkjasmíöi.
Smíði rafmagnstækja: eldavéla, bakarofna,
kæliskápa, þvottavéla, lampa, rafgeyma.
Flutningatæki.
Skipasmíðar; tréskip og stálskip.
Bifvélavirkjun, yfirbygging bifreiða.
Reiðhjólasmíði og viðgerðir.
Flugvélavirkjun.
Plastiðnaður.
Einangrunarplast, plastleikföng, veggflísar,
búshlutir úr plasti, rimlagluggatjöld.
Annar iðnaður.
Ljósmyndagerð, sjóntækjagerð, gleraugna-
smíði, úrsmíði, skartgripagerð og smíði úr eðal-
málmi. Skiltagerð. Verksmiðjupökkun matvöru
(korn, sykur).
1 yfirlitinu hér að framan er sundurgreining
ekki nákvæm, nema í þeim greinum þar sem
líklegt þykir, að Iðnaðardeild gæti orðið að liði
með rannsóknum og tilraunum.
Samkvæmt frumvarpi til laga, sem nú liggur
fyrir Alþingi, er áformað að þrjár rannsóknar-
stofnanir starfi í þágu ofantalinna iðngreina,
nefnilega Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins,
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins og
Rannsóknarstofnun iðnaðarins. Allar þessar
stofnanir hafa raunar starfað um allmörg ár und-
ir öðrum nöfnum, þ. e. Rannsóknastofa Fiski-
félagsins og Iðnaðardeild sem hluti af Atvinnu-
deild Háskólans.
Það hefur oft verið til umræðu á hvern hátt
Iðnaðardeild gæti starfað til gagns fyrir iðnað-
inn svo sem henni er ætlað.
Byrja mætti á því að kanna þörf hinna ýmsu
iðngreina fyrir rannsóknir. Safna ætti upplýs-
ingum um stærð fyrirtækja og hve marga tækni-
menntaða menn þau hafi í þjónustu sinni, um
árlegt verðmæti framleiðslunnar o. s. frv.
Koma ætti á samstarfsnefnd manna frá rann-
sóknarstofnununum og iðnaðinum, eins og gert er
ráð fyrir í áðurnefndu frumvarpi, til að kanna
hverra rannsókna er helzt þörf og hvemig þeim
yrði komið í framkvæmd.
Vel mætti hugsa sér samvinnu fyrirtækja í
sömu grein um rannsóknir, einkum þær sem dýr
tæki þarf til og em kostnaðarsamar.
Hjá Iðnaðardeild em starfandi sérfræðingar í
ýmsum greinum efnafræði og verkfræði, og auk
þessu eru fyrir hendi rannsóknatæki og aðstaða
til rannsókna, þótt margt standi að vísu til bóta,
eins og áður var sagt. Ef ekki er þörf á beinum
rannsóknum fyrst í stað, mætti hugsa sér að
stofnunin gæti verið ráðgefandi eða t. d. hjálp-
að fyrirtækjum að koma á hjá sér eftirlitsrann-
sóknum með daglegri framleiðslu, þar sem
þeirra er þörf.
Stærstu fyrirtækin hafa sjálf rannsóknastofur
þar sem unnið er að eftirliti og endurbótum á
framleiðslunni. En einnig í þeim tilvikum, þar
sem rannsóknastofa er þegar komin á fót, gæti
Iðnaðardeild orðið að liði með samstarfi um
rannsóknir. Stærstu fyrirtækin eru einmitt lík-
legust til að kosta einhverju til vísindalegra
rannsókna, en því er ekki að leyna, að slíkar
rannsóknir eru yfirleitt dýrar.
Að líkindum er sum efnaframleiðsla og sumar
tegundir iðnaðar hér á landi byggðar á vitneskju
frá útlendum firmum, sem selja hráefni og þá
farið eftir forskriftum frá þeim eða sérstökum
leyfum.
Slík vitneskja er þó ætíð takmörkuð og gefur
litla möguleika á framförum í viðkomandi grein,
og sízt ef fyrirtækið hefur engan tæknimennt-
aðan eða sérfróðan mann í þjónustu sinni.
Það er eitt mikilsverðasta verkefni stofnunar
sem Iðnaðardeildar að rannsaka möguleika á
nýjum iðngreinum og nýrri tegund fram-
leiðslu. Slíkar rannsóknir hafa verið stundaðar
að nokkru á Iðnaðardeild, eins og t. d. rannsókn-
ir þær á framleiðslu á spónaplötum, sem áður
voru nefndar. Næsta stigið í þeim tilraunum ætti
að vera að setja á stofn verksmiðju til fram-
leiðslunnar en til þess þarf allmikið fjármagn og
má segja að þar sé komið út fyrir ramma rann-
sóknastofnunar.
Iðnaðardeild hefur starfað að mörgum gagnleg-
um rannsóknum á undanfömum árum, en þær
hafa ekki nema að litlu leyti verið miðaðar við
þarfir iðnaðarins. Tengslin milli rannscknastofn-
unar og iðnaðarins þyrftu að vera nánari og
gæti það orðið báðum aðilum til gagns. Rann-
sóknastofnunin ætti að hafa örvandi og endur-
nýjandi áhrif á iðnaðinn og iðnaðurinn aftur á
rannsóknastarfsemina.
Iðnaðarrannsóknir ættu að miða að bættum
aðferðum við framleiðslu og auknum gæðum
iðnaðarvöru sem og auknum afköstum og þar
með ódýrari framleiðslu.
Nauðsynlegt er að bæta aðstöðu Iðnaðardeild-
ar til rannsókna fyrir iðnaðinn á sama hátt og
þegar hefur verið gert fyrir rannsóknastc "n-
anir sjávarútvegs og landbúnaðar.