Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1964, Síða 23
TtMARIT VPt 1964
47
leiðnitala þess 0.035 kcal/mh°C, er einangrunar-
stuðull þess 1000 X 0.035 = 35“. Þetta margfeldi
er kallað t.d. á dönsku pris pr. isoleringsenhed
og undirritaður myndi vilja kalla það einangr-
unarverð, vegna þess að það er raunverulega
verð á varmamótstöðueiningu efnis. Eðlilegt hefði
verið að birta samanburð á einangrunarverði
helztu einangrunarefna hérlendis, en það má
raunar reikna út úr töflu á bls. 64, en þar hefði
verið fróðlegt að sjá líka upplýsingar um ýmsa
léttsteypu.
Gráðudagafjöldinn 4755 miðað við 17°C
grunnhita mun vera heldur ofreiknaður fyrir
Reykjavík því að hann virðist miðaður við 4.0°C
meðalárshita, en 30 ára meðaltal áranna 1924—
1953 er 5.1°C.
Meðferð höf. á einföldu, tvöföldu og þreföldu
gleri er losaraleg. Samanburður á því á að ger-
ast út af fyrir sig. 1 því sambandi skiptir ekki
máli hve mikill hluti af heildarvarmatapi húss
er um gluggana.
Ástæða er til að fara nokkrum orðum um
hollustuhætti íbúða í sambandi við einangrun.
Einangrunarkröfur í byggingasamþykktum eru
fyrst og fremst gerðar út frá því sjónarmiði en
ekki fjárhags. Kaldur veggur getur valdið
skemmdum í líkamsvefjum manna, ef þeir þurfa
að sæta langvarandi einhliða varmageislun til
hans. Auk þess getur innra borð slíkra veggja
slagað, ef loftraki er mikill. Vafasamt er, að
gera eigi jafnmikinn mun á einangrunarkröfum
þungra veggja og léttra við íslenzkar aðstæður
og gert er erlendis og birt dæmi um í bókinni,
vegna þess að okkar veðurfar einkennist af til-
tölulega háum gráðudagafjölda miðað við mestu
kulda. Meðalhiti janúar er lítið undir frostmarki
í Reykjavík. Og takmörkuð hitun um nætur í
miklum kuldum er líklega meira tíðkuð hér en
erlendis, einkum þar, sem hitaveita er, enda
hagkvæm þar. Væri einangrun þungra og léttra
veggja hagað eingöngu eftir fjárhagslegum
sjónarmiðum, ætti að einangra þá þungu frekar
betur vegna þess að dægurhitasveifla í létt-
byggðum húsum er frekar meiri og grunnhiti
gráðudagafjöldans þess vegna lægri miðað við
sama innihita á daginn.
Nú eru gluggar húsa oft hafðir mjög stórir,
og geta þeir þá haft svipuð áhrif og illa ein-
angraðir veggir, nema ofn sé undir þeim. Öðru
máli gegnir, ef stór gluggi er látinn ná niður að
gólfi án þess að ofn sé þar. Þá er hann líkastur
léttum vegg, og byggingasamþykkt verður helzt
að líta á hann sem slíkan, ef hún á að vera
sjálfri sér samkvæm. Þá dugar varla minna en
sjöfalt gler. Annars verða menn að taka á sig
áhættu á gigtveiki.
Undirritaður telur bókina hafa mikla kosti og
þakkar höfundi hennar, og vonandi er, að að-
standendur hennar láti meira frá sér fara í svip-
uðum tilgangi áður en langt um líður.
« ' E.H.Á.
7
Fétag ráögjafarverkfræðinga
Stutt greinargerð.
Félag ráðgjafar\rerkfræðinga var stofnað hinn 26.
febrúar 1961. Stofnendur voru aðeins fjórir en félags-
menn eru nú 14 að tölu: 11 byggingaverkfræðingar, 2
vélaverkfræðingar og 1 efnaverkfræðingur.
1 félagslögunum segir:
Starf ráðgjafarverkfræðinga felst í að veita tæknilega
aðstoð hæfra verkfræðinga á því sviði, sem um er að
ræða hverju sinni.
Fyrir þá aðstoð ber þeim þóknun samkvæmt gjald-
skrá, er félagið setur, en engan annan fjárhagslegan
ávinning en þann, sem í þóknuninni felst.
Og ennfremur:
Félagsmaður getur sá orðið, er starfar sem óháður
ráðgjafarverkfræðingur, enda uppfylli hann eftirtalin
skilyrði:
A. Hann skal vera félagi í Verkfræðingafélagi Islands.
B. Hann skal hafa starfað i minnst 4 ár að þeirri
starfsgrein, sem hann hyggst stunda sem ráðgjaf-
arverkfræðingur. Að þeim tíma liðnum skal hann
í minnst 2 ár hafa starfað sem sjálfstæður ráð-
gjafarverkfræðingur eða unnið sambærileg störf.
C. Hann má ekki vera hluthafi, stjórnandi, starfsmað-
ur eða umboðsmaður neins þess fyrirtækis eða fé-
lags, sem rekur verktaka-, verzlunar- eða fram-
leiðslustörf, er snerta verksvið það, er hann hyggst
stunda sem ráðgjafarverkfræðingur.
D. Hann má ekki vera fastráðinn starfsmaður.
Eins og fram kemur í þessum ákvæðum félagslag-
anna er tilgangur FRV sá, að hér á Islandi eins og ann-
ars staðar geti þróazt stétt óháðra verkfræðinga, sem
gefi viðskiptavinum sínum faglegar og óhlutdrægar leið-
beiningar og upplýsingar. Með skilyrðum þeim, sem sett
eru um inngöngu hyggst félagið tryggja, að viðhorf
ráðgjafarverkfræðinga séu þess eðlis, að þeir geti tekið
ákvarðanir sínar eingöngu með tilliti til hagsmuna við-
skiptavina sinna, og á þann hátt skapist grundvöllur
fyrir heilbrigðu samstarfi og trúnaði milli beggja aðila.
Hliðstæð félög ráðgjafarverkfræðinga starfa nú í flest-
um löndum Evrópu meðal annars i öllum Norðurlönd-
um auk þess í Bandarikjunum og Kanada, Ástralíu og
viðar. Hafa þau myndað með sér alþjóðlegt samband,
er nefnist FIDIC (Federation Internationale des Ingen-
ieurs Conseils) með búsetu í ZUrich í Sviss. Það var stofn-
að árið 1913.
Félag ráðgjafarverkfræðinga hefur frá stofnun sinni
haft samband við FIDIC og á ráðstefnu, er haldin var