Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2004, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2004, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ2004 Fréttir 0V 3500 f,Kr, Súmerar finna upp fyrsta letriö. 105 f.Kr. Kínverji finnur upp pappír. 59 f.Kr. Sesar hefur útgáfu á daglegu fréttabréfi í Róm. 1440 e.Kr. Gutenberg þróar prentvél sína. Prent- uð fréttabréf fljótlega gefin út í Þýskalandi og víðar. 1562 Mánaðarrit gefið út í Feneyjum sem kostar eina „gazettu"-smá- mynt. „Gazetta" verður síðan heiti á prentuðum blöðum sem fjölgar mjög næstu áratugi og aldir. 1705 Heimsmálapistill Arni Bergmann veltir fyrir sér fjölmiðlaumhverfi heimsins en hér eftir mun hann skrifa vikulega heimsmálapistla í DV. Honum finnst hann sífellt heyra og sjá sömu fjórar fréttirnar. Eina um forseta Bandaríkjanna, aöra um stríö dagsins, þá þriöju um einhvern forsætisráöherra og sú fjórða er um glæp dagsins. Við segjum færri og færri fréttir Dagblaðið The Daily Universal Register byrjar að koma út í London. Þremur árum seinna er nafn- inu breytt i The Times ofLondon. Heimurinn er á svonefndri upplýsingaöld stútfullur af fréttum, En ein af þversögnum tímans er samt sú, að í reynd sjáum við og heyrum alltaf færri og færri fréttir. Og ekki fjölgar þeim sem lagt er út af í blaðagreinum. Rifji nú hver upp sína reynslu. Þú situr á hóteli t.d. í Hollandi og horfir á sjónvarpsfréttir kvölds og morgna. Og sama er hvort horft er á sjónvarp heimamanna, þýskt, franskt, ítalskt eða breskt sjónvarp: aUsstaðar er ver- ið að segja sömu þrjár eða fjórar frétt- anna og fá sömu svörin, en það skipti ekki máli: allir urðu að sýna lit í því að sinna Sögu dagsins. Svo er lfklegt að flestir fjölmiðlar taki sér nú langa og rækilega hvíld ff á öllum Evrópumálum. Það fýlgir fá- breytni alþjóðlegs fréttaflutnings á Meðan Sovétríkin voru annað tveggja risavelda voru þau fastagestur í allri umfjöllun og aðalritari Kommúnista- flokksins harður keppinautur Banda- ríkjaforseta um tíðar umgetningar. Síðan hrundu Sovétríkin og Rússland hvarf af fféttakortinu og kemur ekki inn á það nema þá sjaldan að það tengist við „stríðsfrétt dagsins" (hryðjuverk í Moskvu) eða stórfiska- leik dagsins (Pútín forseti talar við Bush eða setur auðjöfur í tukthúsið). Það reyníst ofmikll fyrirhöfn fyrir fjölmiðla að segja aðra sögu en söguna frá því i gmr - auk þess sem krafan um að allt sé einfalt heimtar aö fréttamenn fínnl góðu og vondu gæjana í snatrí. 183$ Morse þróar sím- skeyti. 1876 Bell þróar símann. 1935 Segulband fundið upp. 1946 Frumstæðar tölvur fundnar upp. 1949 Ein milljón Banda- ríkjamanna komin með sjónvarp. 1980 CNN fréttastöðin byrjar útsendingar. Helmurinn ferekkl versnandl, það er bara fréttaþjónustan sem fer batnandl. Speki sem gjarnan er kennd Oscari Wilde, þótt vafasamt sé. hverjum degi, að ýmist eru heilir málaflokkar, heimshlutar eða lönd eins og kjöftuð í hel eða þá að þögn breiðist yfir þau, eins og þau hafi aldrei verið til. Annars er Rússland varla til, þaðan af síður að reynt sé að láta fjölmiðlanot- endur fylgjast með firamvindu mála þar í landi: hvað er að gerast og af hveiju? Stríð dagsins Tökum eldra dæmi um smærra land. Árum saman var stríð dags- ins háð í Alsír sem þá laut franskri stjórn. Enginn sem þá las blöð komst hjá því að þekkja borgir og bæi í því landi, franska herstjóra og alsírskar sjálfstæðishetjur. Svo lauk stríðinu, landið fékk sjálfstæði, franskir íbúar landsins fluttu heim. Og eftir skamma hríð var landið horfið úr fréttum, gleymskan gleypti menn og kennileiti, enginn vissi lengur hvað gerðist í þessu landi sem hafði fyrir skemmstu vakið svo mikla forvitni og kannski eftirvæntingu. Alsír komst ekki á kortið aftur fyrr en þar byrjuðu fyrir nokkrum árum mikil hryðjuverk, sem voru bæði kennd íslömskum hreyf- ingum og ríkisstjórn her- foringja, sem hafði tekið tilburði til lýðræðis úr sam- bandi. Það mikla mannfall datt svo fljótt út úr fjöl- miðlum aftur, vegna þess að enginn treysti sér til að út- skýra fyrir öðrum en kannski Frökk- um til hvers menn dræpu hver annan af miklum móð í Alsír. irnar frá morgni til kvölds. Ein er um forseta Bandaríkjanna. Önnur er um stríð dagsins, hvort sem það er háð í Afganistan eða írak. Hin þriðja er heimaffétt: forsætisráðherrann í hverju landi er að segja eitthvað. Hin fjórða er glæpur dagsins í næsta ná- grenni við viðkomandi sjónvarps- stöð. Helst er von á fjölbreytni í fréttaflutningi þegar svo vel vill til, að náttúruhamfarir útvega sjónvarps- stöðvunum dramatískar myrídir af húsum að fjúka í fárviðri eða skol- ast burt í flóðum. Svipað er á döf- inni í dagblöðum - nema hvað f þeim er það kannski enn meira áberandi en í sjónvarpi að tíðindi eru persónubundin: þar eru líka sögð fastatíðindi af voldugasta manni heims, Bandaríkjaforseta, en í meira mæli en í sjón- varpi fýlgja með tíðindi af öðru ffægu fólki, ekki síst úr bíómyndum og poppi. Ofskrif og vanskrif Þegar einhver fágæt tíðindi verða - í þeim skilningi að þau muni ekki endurtaka sig eins og styijaldirnar og fræga fólkið - þá einhenda allir íjölmiðlar sér á það að breiða sem allra mest úr sér um efnið. Gott dæmi er stækkun Evr- ópusambandsins til austurs sem átti sér stað nú um mánaðarmót- in: allir gerðu sér að skyldu að hafa sem flest orð um marga plúsa og nokkra mínusa í væntingum manna um verulegar breytingar á högum manna í tíu ríkjum. Flest- ir voru reyndar að segja hið sama, spyrja sömu spurning- Krafan um einföldun Dæmið af Alsir minnir á það, að vissulega er það ekki nýtt að heims- hlutar skjótist inn á og út af fréttakorti. Við skulum samt ekki gefa frá okkur þá kenningu, að nú séu sagðar æ færri ff éttir af alþjóðlegum vettvangi - en því fleiri úr næsta umhverfi. Að fjölmiðlar, og þá ekki síst okkar eigin, verði æ stað- bundnari og þá útúrborulegri. En sé þessi kenning rétt, hvemig stendur á þeirri þróun? Hér væri af mörgu að taka. Það gild- ir um fréttaheiminn eins og auglýs- ingaheiminn: það er æ erfiðara að vekja athygli á nýrri vöru, taka upp nýja sögu. Það er þægilegast að byggja á því sem allir þekkja: Bush forseta, Kóki, Diönu prinsessu, Ikea, Palestínu og Byko. Ofgnótt upplýsinga eða áreitis leiðir til þess, að við fáum ekki fjölbreytni, held- ur meira af því sama. Segðu mér sög- una aftur, söguna frá því í gær. Skiljanlegt samhengi í gal- skapinn Að því er varðar fréttir um og skýr- ingar á því sem er að gerast í heimin- um, þá hefur minnkandi vægi póli- tískra hugmynda og hreyfinga þau áhrif, að forvitni um slík efni minnkar. Margir láta vanmáttarkennd and- spænis þeim „ósýnilegu" markaðsöfl- um, sem stjóma flestu f iífi þeirra, lama allan áhuga á þessum hlutum. Hér við bætist, að þegar risaveldin í heiminum em ekki lengur tvö þá verð- ur erfiðara fýrir hvem venjulegan mann að fella fjarlæg tíðindi inn í mynstur. Áður efldi það áhuga manna á því sem gerðist, einnig í mjög íjar- lægum löndum, að þeir gátu spurt: hver er að græða núna í heimstaflinu? Em þessir atburðir Amrikönum eða Sovétmönnum í hag? Þar með var sem fengist skiljanlegt samhengi í galskap- inn. Meðan barist var í Bosm'u sýndi þýskur starfsmaður hjálparstofnunar erlendum sjónvarpsmönnum eitt sinn múslímaþorp sem Serbar höfðu brennt. Síðan bauðst hann til að sýna þeim serbneskt þorp sem múslímar höfðu brennt. Þeir sögðu nei takk, það verð- ur of flókið! Þeir töldu víst að fréttavið- takendur réðu ekki við ill tíðindi nema geta einfaldað þau í huga sér, fundið sér sökudólga og saklausa, góða gæja og illa. Málin em alltaf flóknari en svo - og þá verður freistandi að gefast upp fýrirfram við að útskýra þau.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.