Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2004, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2004, Page 25
DV Fókus FIMMTUDAGUR 6. MAl2004 25 Flutningabílstjóri á Akureyri, Jens Óli Kristjánsson, þykist himinn höndum hafa tekið því von er á hetjunni hans til landsins. Jens Óli er aðdáandi Kristofferson númer eitt á íslandi. Hann segir hér frá ýmsu sem á daga hans og Kris hefur drifið, til dæmis þegar í öllum látunum fórst fyrir að tekin yrði mynd af Jens með átrúnaðargoðinu, því sjálfur var hann á bak við vélina. „Þegar við er að eiga örg og gratandi ungabörn er ekkert betra en að setja plötu með Kris á fóninn. Þau eru kannski org- andi en eru farin að brosa eftir smá „Auðvitað ætla ég á tónleikana. Og ef verða fleiri en einir, þá fer ég á þá líka," segir Jens Óli Kristjánsson flutningabílstjóri. Hann er einhver heitasti aðdáandi Kris Kristofferson sem um getur á fslandi og þó víðar væri leitað. í svo miklum hávegum er þessi sveitasöngvari og kvik- myndaleikari hjá okkar manni að hann skírði son sinn í höfuðið á Kris. Jens Óli er á 45. aldursári, búsett- ur á Akureyri, fjölskyldumaður með fjögur börn en ekur reglulega milli Akureyrar og Reykjavíkur á sínum flutningabíl. Og þá er að sjáffsögðu hlustað á Kris... „Já, og Johnny [Cash]. Kris leit afveg gríðarlega upp td hans og þegar Johnny var jarð- settur, en jarðarförin fór fram í kyrr- þey, þá var Kris einn sárafárra sem var viðstaddur. Hann og A1 Gore.“ Jens spilar ekld sjálfur á lijóðfæri þó svo að faðir hans hafi verið tónlistar- maður og leikið bæði á orgel og harmonikku. „Ég á reyndar þessi hljóðfæri eftir föður minn og hefði gjarnan viljað kunna eitthvað fyrir mér en læt mér nægja að hlusta á aðra tónlistarmenn og raula með.“ Vinur lítilmagnans Jens býr yfir hafsjó fróðleiks um Kris Kristofferson, sem væntanlegur er til landsins eins og flestir ættu að vita, og segir hann alveg magnaðan persónuleika. „Hann er sprenglærð- ur, var einn sárafárra sem valinn var úr sem afburðanemandi og boðið að nema við Oxford sem hann og gerði. Kris er prófessor í enskum bók- menntum en þrátt fyrir þetta eru ekki til í honum merkilegheit. Hann tók sér Johnny Cash til fyrirmyndar í því eins og svo mörgu öðru: Vinur lítilmagnans. Ég á tónleikaupptöku þar sem þeir troða upp saman og Kris er eins og feiminn kxakki við hliðina á Johnny." Þessi aðdáandi Kris Kristofferson númer eitt á Islandi á gríðarlega mikið efni sem tengist átrúnaðar- goðinu svo sem plötur og diska, bíó- myndir sem Kris hefur leikið í og þykka úrklippubók en hann hefur ldippt út mikið sem um Kris hefur verið skrifað og sagt. Kris starfaði m.a. sem flutn- ingabílstjóri í raun er erfitt að beina talinu að Hjk Jens Óla sjálfum þegar hann er byrjaður að tala um Kris Kristoffers- son. „Ég náttúrulega heyrði lög með honum þegar ég var krakki og kynntist honum í gegnum þekkt lög á borð við Why me?, Help me make it, Me and Bobby McGee ... og fleiri en ég get ekJd sagt að ég hafi þelckt til hans þá. En það var fyrir tvítugt sem ég fór að veita honum athygli og kaupa það sem gefið hefur verið út með honum." Kris var kominn með prófessors- stöðu við West Point háskólann, að sögn Jens Óla, þegar hann skyndi- lega söðlar alfarið um og ákveður að lifa alfarið af tónlistinni. Það gekk ekki vel hjá honum tO að byrja með og hann þurfti að starfa við eitt og annað til að sjá sér farborða. Þá var hann giftur Ritu Coolidge og drakk svolítið af amerísku viskíi eins og góðra manna er siður. Hann starfaði í hljóðveri, einnig sem þyrlu- og orrustuflugmaður og ... sem flutn- ingabflstj óri! „Nei nei, það réði nú ekki því að ég gerðist flutningabílstjóri. En ég hef náttúrlega oft séð myndina Con- voy þar sem Kris er í aðalhlutverki og fjallar meðal annars um flutn- ingabílstjóra." Hefur róandi áhrif á börn Eins og áður sagði er dálæti Jens á Kris Kristofferson svo mikið að hann skírði son sinn, sem nú er tveggja ára, í höfuðið á Kris Kristofferson. „Kris var skírður Kristopher Kristopherson og ég nefndi son minn Jens Kristofer, en hann er alltaf kallaður Kris.“ Kristofferson mun vera af sænskum ættum en þó er þrálátur orðrómur þess efnis að hann eigi ættir að rekja til íslands. Jens Óli hefur heyrt þetta en orðrómurinn hefur ekJd fengist staðfestur. Fjöldi tónlistarmanna hafa flutt lög Kris og hljóðritað og hefur Jens Óli það meðal annars til marks um hversu mikill sniilingur maðurinn er, og frábær laga- og textasmiður. Það sem helst háir honum, að sögn Jens, er feimnin sem þó telst partur af hinum milda sjarma sem frá honum stafar. Og eitt er afar at- hyglisvert við tónlistarmanninn Kris Kristofferson og ætti í raun að rannsaka betur. „Þegar við er að eiga örg og grátandi ungabörn er ekkert betra en að setja plötu með Kris á fóninn. Þau eru kannski org- andi en eru farin að brosa eftir smá stund. Þetta er ég margbúinn að sannreyna og hef notað þessa að- ferð með góðum árangri við mín börn og önnur. Hann hefur svo ró- r andi rödd, lögin róleg og textarnir sömuleiðis. En þú sofnar ekld yfir lögunum," segir Jens. Hitti Kris en klikkaði á myndatökunni Jens fór nýlega á tónleika með Kris Kristofferson í Dyflinni og segir hann farinn að eldast en standi fyrir sínu og vel það. „Alveg í hörku- formi." Og vitaskuld var Jens mættur þegar Kris kom til íslands fyrir rúm- um tíu árum og tróð upp á tveimur tónleikum sem haldnir voru á Hótel íslandi. Jens mætti á báða þá tón- leika, og það sem meira er, Jens hitti átrúnaðargoðið sitt! „Á föstudagskvöldinu fór ég með konunni og stökk niður að sviðinu þegar hann fór í pásu og kallaði á hann. Kris heilsaði mér með handa- bandi og ég fékk hjá honum eigin- handaráritun." Aðspurður segist Jens ekld mikið hafa getað talað við Kris, bæði er að hann talar ekki ensku og „svo var ég nánast í transi. Maður getur lítið tjáð sig þegar maður stendur frammi fyr- ir svona goði.“ Jens lét sig eldd vanta á tónleik- ana sem voru næsta kvöld, laugar- dagskvöld. Þá fór hann með þrem- ur vinum sínum. Þeir höfðu sama hátt á og náðu sambandi við hetj- una. Þá átti sér reyndar stað mein- legur misgáningur. „Við stukkum þarna niður fjórir og ekki málið, hann tók okkur af sinni alkunnu ljúfmennsku. Ég var með myndavél með mér og félagarnir stilltu sér upp við hlið hans og ég tók mynd- ina. Eftir á, og við höfðum ekki at- hugað það í öllu panikkinu, kom náttúrulega í ljós að við höfðum ekki haft rænu á því að taka mynd af honum með mér því ég var nátt- úrulega bak við vélina. En það gerir mér ekkert. Nóg var fyrir mig að hitta hann.“ jakob@dv.is Úrslit kynnt í hugmyndasamkeppni Landsbankans um framtíðarmiðbæ verða kynnt á laugardaginn Framtíðarhugmyndir um miðbæinn kynntar Á laugardaginn verða úrslit kynnt í hugmyndasamkeppni Landsbankans um framtíð miðbæjar Reykjavíkur. Ljóst er að áhuginn var gríðarlegur því innsendar tillögur vom 600 talsins. Dómnefndina skipuðu Hallgrímur Helgason, rithöfundur og myndlistar- maður, Ingibjörg Pálmadóttir at- hafnakona og innanhúsarkitekt, Guð- jón Friðriksson sagnfræðingur, Mar- grét Harðardóttir arkitekt, Eva María Jónsdóttir dagskrárgerðarkona og Björgólfur Guðmundsson, stjórnar- formaður Landsbankans. Vandi dómnefndar var mikill því innsendar tillögur vom margar og framsetningin ljölbreytt, allt frá því að vera skipulagsteikningar unnar af arkitektum í einfaldar ljósmyndir með litlu textabroti. Svo mikið var um góð- ar hugmyndir að dómnefndin hefur ákveðið að velja 3 hugmyndir í fyrsta sæti og fær hver hugmynd verðlaun sem nema 450.000 krónum. Auk þess hefur verið ákveðið að veita 21 viður- kenningu uppá 5.000 krónur, fyrir skemmtilegar tillögur. Klukkan eitt á laugardaginn verður opnuð sýning í ráðhúsinu þar sem verðlaunin verða afhent og fólki gefst kostur á að skoða hugmyndirnar í Tjarnarsal ráðhúss- ins. Sýningin verður opin í eina viku. Hluti af dóm- nefnd Lands- bankans Ingi- björg Pálma- dóttir, Björgólfur Guðmundsson, Guðjón Friðriks- son og Hallgrim- urHelgason þegarsam- keppnin var kynnt. L ^ 'i íú i>,.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.