Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2004, Page 29
DV Fókus
FÖSTUDAGUR 14. MAÍ2004 29
Nornin eign*
aðist strák
Nomin Piper úr þáttunum Charmed
hefur eignast sitt fyrsta barn. Holly
Marie Combs leikuríþáttunum
ásamtAiyssu Milano og fyrrverandi
kærustu rokk-
arans Marylin
Manson, Rose
McGowan. í
þáttunum á
Piper tvö börn
meö hinum
yfírnáttúru-
lega Leo en
litli strákur-
innerfyrsta
barn hennar og eigin-
manns hennar. Þau giftu sig á síö-
asta Vaientínusardegi en þá var leik-
konan komin sjö mánuði á leið. Holly
Marie mun fljótlega halda áfram að
leika íþáttunum en sjöunda þáttar-
röð verður tekin upp í sumar.
fe
Leikarinn Macaulay
Culkin hefur látið
skrifa ævisögu sína,
aðeins 23 ára gamall.
Með útgáfunni reynir
Culkin að sætta sig
við erfiðleikana sem
fylgdu frægðinni og
fjölskylduvandamálum. Leikarinn varð
að stórstjörnu aðeins níu ára gamall
eftir hlutverk sitt í Home Alone og var
meðal annars návinur Michaels
Jackson. Þegar hlutverkunum fór fækk-
andi fór lífið að halla til hins verra fyrir
leikarann. Hann lenti meðal annars í
deilum við pabba sinn um peningana
sem hann græddi og átti í stuttu hjóna-
bandi þegar hann var 18 ára.
í Vestmannaeyjum býr blaðamaðurinn Jóhann Ingi Árnason
sem hefur meðal annars þann starfa með höndum að fylgjast
með ferðum hinna ríku og frægu til íslands. Hann hefur þeg-
ar unnið fréttir fyrir þetta frægasta slúðurtímarit heimsins og
dæmi um það eru þegar Chelsea Clinton, Kevin Costner og
Viggó Mortensen gerðust íslandsvinir.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti (slands,
er 61 árs í.dag. „Andlega þenkjandi og
ánægt fólk á ávallt von á því
þesta og á það vel við mann-
inn. Hann ætti að minnka
kröfur sínar og gefa fólkinu í
kringum sig lausan tauminn.
Æðri leiðsögn og viska leið-
beinanda bans veitir
honum sjaldséðan
styrk," segir í stjörnu-
spá hans.
Ólafur Ragnar Grímsson
VY Vatnsberinn (20.jan.-1s. tebrj
XX --------------------------------
Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Takist þér að stýra orku þinni öðlast þú
stjórn á lífi þínu í stað þess að vera fórn-
arlamb aðstæðna. Þú ert fær um að
skara fram úr og ert fljót/ur að læra en
hér kemur fram að þú hefur jafnvel fleiri
járn í eldinum en þú ræður við.
fiskmw (19.febr.-20.mars)
Eftirvænting og bjartsýni ein-
kennir stjörnu þína um þessar mundir.
Þú virðist ekki taka ákvörðun án þess að
kanna huga þeirra sem tengjast hérna
einhverju máli. Þér er ráðlagt að læra að
stilla þig betur.
Hrúturinn (21.mars-19.apny
Hrúturinn er fær um að gera
alia þá hluti sem hann dreymir um að
gera ef hann heldur fast í sjálfið og jafn-
vægi tilverunnar sem felst í því að gefa
°g Þ'ggja.
Nautið (20. apríl-20. maí)
Vanafesta einkennir þig hér að
sama skapi og þér er ráðlagt að æfa þig
að koma á breytingum í tilveru þinni
með því að brjóta vanann og reyna eitt-
hvað nýtt en mundu að vera vakandi
yfir boðum sem berast þér frá hjartanu.
Tvíburarnir (21. maí-21.júni)
Fylgdu hlutunum eftir af
þrautseigju ef hugur þinn og hjarta þrá
að takast á við það sem um ræðir
hérna. Fjölhæfni þín segir til um mikinn
styrk, minntu þig á það endrum og
sinnum.
Krabbinn(22j™-22.yú/(j
----------------------------------
Þú býrð yfir sannri vitund ef
þú ert fædd/ur undir stjörnu krabbans
sem er hæfileikinn til að fá það sem þig
vanhagar um en á því er enginn vafi.
Ekki gleyma þér í leitinni að öryggi í
formi fjármuna næstu misseri.
\.)Óf\\b(23.júll-22.ógúst)
Þú hefur af einhverjum ástæð-
um komið þér upp tilfinningalegri fjar-
lægð við manneskju sem unnir þér. Það
er án efa eðli þitt að draga þig í hlé
þegar líðan þín er annars vegar til að
kanna betur heildarmyndina hér en þú
hefur án efa mikla þörf fyrir ást, nálægð
og væntumþykju á þessum árstíma.
Meyjan (23. ágúst-22. sept.)
Njóttu þín enn betur daglega
með því að opna tilfinningagáttir þínar
og losaðu þig úr þeirri prísund sem
kann að angra þig sökum reynslu þinn-
ar af einhverjum ástæðum.
' Voqm (23. sept.-23.okt.)
Þér mun takast að snúa að-
stæðum þér í hag þegar þú hlustar á
undirmeðvitund þína og leyfir líkama
og sál að starfa saman. Ef þér verður
ögrað á einhvern hátt næstu daga mun
háttvísi þín og einlægni eiga vel við.
Sporðdrekinn (2iokt.-21.n0v.)
Öryggi felst eflaust í fjármun-
um að þínu mati þó þú birtist ekki sem
fégráðug manneskja. Leyfðu þér ekki
að gleyma þeim eiginileika sem þú
býrð yfir þegar þarfir náungans eru
annars vegar. Gjafmildi þín er mikil hér.
/
Bogmaðurinn (22.n0v.-21.desj
Ef þú tekur af skarið, hugsar
um heilsu þina á andlega sviðinu og því
líkamlega mun velgengni vera þér hlið-
holl án efa.
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
Það er komið að þér að njóta
tilverunnar með þeim sem þú unnir.
Hættu að eyða tíma þínum í óþarfa
áhyggjur.
SPAMAÐUR.IS
breska
kvikmyndagerð
Á fundidómara Cannes-kvikmyndahá-
tíðarinnar lét leikstjórinn Quentin Tar-
antino hafa eftirsérað græðgi breskra
leikara væri að
drepa breska
kvikmynda-
gerð.„Einungis
í þremur lönd-
um er virkilega
góður kvik-
myndabransi. í
Bandaríkjun-
um, Kína og
Indlandi. Um
leið og leikarar í Bretlandi ná að slá í
gegn drífa þeir sig til Hollywood til að
græða."Leikstjórinn, sem er dómariá
Cannes, sagði að svona hátíð væri eins
og veisla.„Efþú fílar kvikmyndir þá er
þetta staðurinn til að vera á.“
Vaktar há frægu á fslandi
fyrir The National Enquirer
„Þetta er nú kannski meiri
uppsláttur en nokkuð annað.
Jújú, þetta er reyndar alveg
rétt," segir Jóhann Ingi Árna-
son en fram kemur á vef hans
eyjar.net að fyrirtæki hans
hafi samið við The National
Enquirer um fréttaöflun af
Hollywood-stjörnum sem
ferðast um ísland.
Jóhann gefur út tímarit í
Vestmannaeyjum sem heitir
Vaktin samhliða því að reka
fréttasíðuna á netinu. Auk
starfrækir hann fréttaþjónustu og
mun hann til dæmis annast ffétta-
flutning af íþróttaviðburðum fyrir
DV í sumar. Fyrir þá sem ekki vita er
The National Enquirer söluhæsta
tímarit Bandaríkjanna og hefur ver-
ið kennt við hina gulu pressu - tíma-
ritið hefur einkum áhuga á hvað
hinir frægu og ríku eru að sýsla
hverju sinni.
Jóhann er ekki á föstum launum
hjá tímaritinu heldur verktaki sem
gerir ritstjórninni viðvart ef eitthvað
er útt af ferðum fræga fólksins, flæk-
Chelsea Clinton á íslandi The National
Enquirer sýndi ferðum forsetadótturinnar
mikla athygli og þá áttu þeir hauk í horni á
Islandisem erJóhann ingi.
ist það hingað til íslands. Þannig var
hann beintengdur við The National
Enquirer þegar Chelsea Clinton var
hér á ferð en tímaritið sýndi ferðum
þessarar fyrrum forsetadóttur gríð-
arlegan áhuga. Einnig var Jóhann
tengiliður við tímaritið þegar Kevin
Costner kom hingað á sínum tíma
sem og Viggó Mortensen. Aðspurður
hvort þetta snúi þá ekki einkum að
ferðum hinna frægu út í
Eyjar þá segir hann frétta-
flutning sinn ekki bundinn
af því. Hann hefur verið í
samstarfi við ljósmyndara
Séð og heyrt, Sigurjón
Ragnar, og felst starf hans
meira í því að hafa vakandi
auga með öðrum fjölmiöl-
um og gera hinu banda-
ríska slúðurblaði viðvart.
„Hann hefur ekki hugmynd
um hvar ég bý," segir Jó-
hann og vísar til tengiliðs
síns innan blaðsins. Tengiliður Jó-
hanns er blaðamaður The National
Enquirer sem Jóhann kynntist þegar
hann var við nám í fjölmiðlafræði úti
í Bandaríkjunum.
Jóhann segir að í raun sé miklu
minna greitt fyrir þetta en menn
gætu haldið. „Þeir borga 500 dollara
fyrir fréttaskotið en ef maður vinnur
fréttina eitthvað frekar þá bætist lít-
ið við. Betra að vera ekki blaðamað-
ur heldur sá sem kjaftar frá og kem-
ur með skúbbið," segir Jóhann.
jakob@dv.is
Jóhann Ingi Rekur fjölmiðlafyrirtæki úti i
Eyjum og sendir The National Enquirer fréttir
af ferðum þeirra riku og frægu. Hann segir
timarítið ekki greiða neitt i líkingu við það
sem menn gætu ímyndað sér-500 dollara
fyrir fréttaskotið og litið umfram það.
Ég held að ég hafi loksins áttað
mig á því af hverju andstaðan við
fjölmiðlafrumvarpið er svona mikil.
Ég held að það eigi ekkert skylt við
takmörkun á athafnafrelsi eða mál-
frelsi, meint brot á blessaðri stjórn-
arskrá okkar íslendinga (sem fæstir
vita út á hvað gengur) eða annað í
þeim dúr. Ég held að ástæðan liggi
mun dýpra, ég held að hún liggi
djúpt í undirvitund hins almenna Is-
lendings, í þrá hans eftir afþreyingu.
Það er bara einfaldlega svo að þegar
mannskepnan er orðin vön ein-
hverju, verður það aflimun líkast
þegar það er tekið frá henni. Og nú
þegar þróunin virðist ætla að verða
sú, ef lögin taka gildi, að þorri sjón-
varpsstöðvanna og útvarpsstöðv-
anna hverfi, verður fólk ósjálfrátt
svolítið uggandi. Finnst jafnvel að
vegið sé að réttindum þeirra til af-
þreyingarefnis.
Ef Davíð hefði lofað landsmönn-
um því að við gildistöku fjölmiðla-
laganna myndu tíu aðrar sjónvarps-
stöðvar spretta upp, fimmtán dag-
blöð og þrjátíu útvarpsstöðvar grun-
Psstoað?
ar mig að margir hefðu kært sig koll-
ótta um takmörkun á athafnafrelsi
nokkurra moldríkra einstaklinga. Ef
Davíð hefði verið jafn bjartsýnn í tali
og þegar hann talaði niður krepp-
una hér um árið, finnst mér líklegt
að landsmenn hefðu fylkt sér um
foringjann í þessari síðustu kross-
ferð hans.
Því hefur verið haldið fram að
einn mikilvægasti eiginleiki stjórn-
málamanns sé hæfileiki hans til að
skynja skoðanir fólksins í landinu og
án þessa hæfileika sé frami í stjórn-
málum illmögulegur; mér dettur ein
undantekning strax í hug sem sann-
ar þessa reglu, en það er annað mál.
Hafandi þetta í huga finnst mér
skrítið að Davíð sem er þekktur fyrir
þennan hæfileika, skyldi ekki skynja
þessa andstöðu á fjölmiðlafrum-
varpinu fyrirfram. Á sínum tíma þeg-
ar hann stormaði niður í KB banka
og tók út peningana sína, vissi hann
að fólkið myndi hugsa, „Það var lag-
legt Davíð, sýndu þeim nú hvar þú
keyptir ölið!" En núna! Núna héld ég
að hann hafi annað hvort gleymt
fólkinu í landinu eða þá að hann hafi
bara einfaldlega misst það - hæfi-
leikann, það er.
Þriðji möguleikinn er þó enn fyrir
hendi, sá skelfilegasti jafnvel og það
er sá möguleiki að Davíð hafi ein-
faldlega staðið á sama hverjar skoð-
anir landsmanna voru. Að hans eigin
skoðun og persónulegur vilji hafi
vegið þyngra á metunum en þjóð-
hagslegir hagsmunir. Ef sú tilgáta
reynist rétt, hlýtur hann einnig að
hafa misst það - vitið, það er.
Höskuldur Óiafsson
Stjörnuspá
Ævlsagaa
komm ut