Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2004, Page 31
jyV Síðast en ekki síst
FÖSTUDAGUR 14. MAÍ2004 31
Að snapa fæting...
Mig dreymdi í fyrrinótt að ég væri
orðinn alþingismaður - Alþingi fór
reyndar fram á róluvellinum við
Hringbraut. Svo sagði ég eitthvað
óvarlegt og Davíð Oddsson sem sat á
ská í röðinni fyrir framan leit iilyrmis-
lega á mig. Næsta sem ég vissi var að
búið var að loka mig inni í einvhverri
hlöðu.
Kjallari
Egill Helgason
furðarsig á fárinu í
þjóðfélaginu.
Ríkisstjórn upp á kant við
þjóðina
Þetta hefur verið skrítinn vetur í
pólitíkinni, á köflum frekar gúrkuleg-
ur, en svo er allt í fári þess á milli. Rrk-
isstjómin hefur verið upp á kant við
þjóðina - og alveg jafnt stuðnings-
menn sína - í hverju málinu á fætur
öðru, nefnum eftirlaunamálið, íraks-
stríðið, útlendingalögin, ráðningu
hæstaréttardómara og nú fjölmiðla-
frumvarpið. Maður hefði ímyndað
sér að ráðherrar hefðu getað átt
nokkuð rólega tíma - þannig er það
oftast stuttu eftir kosningar - en í
staðinn er l£kt og sumir þeirra leggi
beinlínis lykkju á leið sína til að
snapa fæting.
Hér er því allt í krampaköstum
með stuttu tnillibili - að miklu leyti
vegna þess að óþol hefur gripið suma
ráðherrana eftir langan
feril og þeir eru farnir að
gleyma almennri kurt-
eisi. Traustið á
’ stjórnmálamönn-
um hefur sjaldan
verið minna - og
það þrátt fyrir
að allt sé
með blóma
í efnahagslíf-
Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun
telja 57 prósent að Davíð Oddsson sé
ekki traustsins verður. Fylgi Sjálf-
stæðisflokksins er komið niður í 27
prósent - tölur sem hafa ekki sést síð-
an Þorsteinn Pálsson átti í höggi við
Albert. Er furða þó stjómmálafræð-
ingar tali um þreytu meðal kjósenda?
Æ skrítnari tíðindi
Meðfram er maður farinn að
heyra æ skrítnari ú'ðindi af ástandinu
á stjórnarheimflinu: Af þingmanni
sem játar í miklum hugaræsingi á
knæpu að hann geti ekki annað en
samþykkt fjölmiðlafrumvarpið, ann-
ars sé voðinn vís fyrir sig. Af dúkuðu
borði í horni kafflstofu Alþingis þar
sem bara mestu fyrirmenni mega
sitja. Af bræðiskenndum viðbrögð-
um forsætisráðherra þegar fjölmiðla-
skýrslunni var skrifað. Af ásökunum,
mæltum fram af miklum þunga, um
gamlar og grandvarar þingkonur sem
eigi aðeins einn leiðtoga í lífinu - Jón
Ásgeir.
Fyrir utanaðkomandi -
sem hefur svosem ekki
meiri innsýn inn í þennan
heim en hver annar -
minnir þetta á eins konar
bunker ástand, þar sem all-
ir híma saman ofan í byrgi, úr
sambandi við raunveru-
leOcann, telja sig
umsetna af
óvinveittum
öflum - og
ætla aldrei að
Ástþór tapar
tombólunni
„Við vOjum skOja við
Ástþór í friði," segir Sig-
urður Þórðarson, for-
maður Lýðræðishreyfing-
arinnar. Á stjórnarfúndi
sem haldinn var í félaginu
í byjun maí var Ástþór
Magnússon felldur úr
stjórninni. Lýðræðis-
hreyfingin hefur stutt við
bakið á Ástþóri í kosn-
ingabaráttunni og er
meðal annars skráð fyrir
tombólunni sem skOa átti
Ástþóri mOdum gróða.
„Hann náði einfaldlega ekki kjöri
aftur,“ segir Sigurður og bætir við að
Ástþór sé afar ósáttur. „Hann hefur
hótað okkur lögffæðingum og öllu illu
en þetta er lýðræðishreyfing og Ástþór
verður bara að sætta sig við hvemig
lýðræðið virkar.“
Lýðræðishreyfingin er ekki ný af
nálinni. Hún hefur starfað í nokkur ár
og fannst á sínum tíma flla vegið að
Ástþóri. Þeir komu því Ástþóri til
hjálpar en nú em áherslurnar orðnar
aðrar. „Við styðjum Ástþór enn að
sumu leyti," segir Sigurður, „þó við
séum ekki sáttir við aflt sem hann ger-
ir. Hans tími var einfaldlega liðinn."
Ástþór Magnússon segist ekki
kannast við umræddan stjómarfund.
Hann hafi ekki fengið fundarboð og
því sé fundurinn greinflega ólöglegur.
„Sigurður hefur grafið
undan framboði mfnu
síðastliðna mánuði,"
segir Ástþór. „Þetta er
moldvörpustarfsemi og
ég veit ekki á hvaða for-
sendum hann er.
Kannski annar fram-
bjóðandi hafi ráðið
hann tfl að skemma
framboðið."
Miklar deilur
hafa staðið í lýðræð-
issamtökunum undan-
famar vikur. Ástþór boðaði stjómar-
fund nýlega þar sem Sigurður var kos-
inn út úr stjóminni. Sá fundur var
boðaður með símbréfi með fjögurra
daga fyrirvara. Sigurður brást hinn
versti við og sagði fundinn ólöglegan á
þeim forsendum að boða eigi stjómar-
fúndi með sjö daga fyrirvara.
Nú hefur leikurinn endurtekið sig
nema Ástþór er kominn út úr stjóm-
inni. Sú staða kemur honum afar illa
þar sem tombólan sem Ástþór hefur í
undirbúningi er skráð á nafn félagsins.
Hann mun því hljóta töluverðan fjár-
hagsskaða ef hann dettur úr stjóm-
inni.
„Ég hef boðað nýjan stjórnarfúnd á
miðvikudaginn," segir Ástþór. „Hann
er fúflkomlega löglegur og þar munum
við klára þessi mál.“
simon@dv.is
Athugasemd
Það var greint frá því í DV í vikunni að bandarískur hermaður hefði ekki verið al-
sáttur við veru sína i varnarliðinu á Kefiavíkurflugvelli. Hann fann íslendingum flest
til foráttu og lagði til að ísiandyrði notað sem tilraunastöð fyrir kjarnorkusprengj-
ur. Þegar málið er kannað nánar, kemur í Ijós að þessi hermaður, Scott McKenzie
var að lýsa dvöi frá því fyrir um 25 árum síðan og lýsing hans er fjarri veruleika her-
manna ídag. Þegar McKenzie þjónaði hér var, samkvæmt upplýsingum frá varnar-
liðinu, allt annað umhverfi fyrir hermenn ennú er, mikiar hömlur á ferðalögum
þeirra tii og frá varharsvæðinu og samskipti við íslendinga í lágmarki...
viðurkenna að þeir geti haft nema
rétt fyrir sér. Samt er svo einkennilegt
að fyrir utan er nokkuð gott loft,
næstum heiður himinn.
Eða hvað á maður að halda um
ff ásögn af því hvemig fjölmiðlamálið
er afgreitt í allsherjamefnd þingsins?
Hálftíma eftir að miklum langloku-
fundi lýkur, þangað sem hefur borist
mikið lesefiú og fjöldi manns komið
fyrir nefndina, er sjö blaðsíðna
nefndaráliti og breytingartiflögum
dreift á þingfundi. Rikið það er ég -
annars kæri ég mig koflóttan.
Samheldni stjórnarliðsins
byggir á valdboði
Maður getur ekki varist þeirri til-
hugsun að hálfgert upplausnar-
ástand ríki í stjómariiðinu, þrátt fyrir
eindregna viðleitni til að sýna sam-
stöðu út á við. Samheldnin virðist
byggja á valdboði, undirgefiú, met-
orðafíkn, ótta; maður hlýtur að ætla
að slíkt ástand geti ekki varað lengi,
einn daginn muni aUt Uðast sundur.
Bragð er að þá barnið finnur. Nú
grípa til dæmis Sjálfstæðisfélag
HU'ða- og Holtahverfis og Framsókn-
arfélag Mýrarsýslu tfl þess ráðs að
mótmæla fjölmiðlafrumvarpinu. Ég
ímynda mér að í þessum félögum
starfi rólynt sómafólk - þau verða
seint talin athvarf fyrir uppreisnar-
menn.
Áþekk mótmæU sem berast víða
vekja spumingar um hvernig flokks-
starfi er núorðið háttað. Em flokks-
menn yfirleitt hafðfi með í ráðum um
nokkurn skapaðan hlut, eru mál
rædd þversum og langsum í flokkun-
um - eða em flokksmenn eins og
pappaspjöld sem hægt er að stflla
upp á landsfundum? Er lýðræðishaU-
inn orðinn svo algjör að flokkarnfi
eru einkaeign foringjanna til að
ráðskast með að vild - lflct og írak, eft-
irlaunamál og íjölmiðlafrumvarp
vfiðast sanna? Nú vilja ráðamenn
fara að efla Ríkisútvarpið - ég veit
ekki betur en landsfundfi Sjálfstæðis-
flokksins hafi margoft samþykkt að
selja batteríið.
Færri skálaræður með
Michael Caine?
Nú veit ég ekki hverrúg þessu fjöl-
miðlamáU reiðfi af næstu dagana, ég
held þefi hafi ætlað að klára það fyrfi
helgina. Það tekst varla. Atburðarásin
er mjög sérkennileg. Stjórnarand-
staðan stendur uppi í pontu og er far-
in að lesa úr Frelsinu eftfi Mfll. Ólafur
Ragnar hraðar sér heim og vfiðist
vera tilbúinn að sleppa konunglegu
brúðkaupi í Kaupmannahöfn - skyldi
það vera af ótta við að HaUdór Blön-
dal verði látinn stelast tfl að skrifa
undfi lögin?
Ólafur er í frekar ruglingslegri
stöðu. Valinkunnfi fræðimenn eins
og Sigurður Líndal og Gunnar Helgi
Kristinsson hvetja hann frekar tfl að
skrifa ekki undfi lögin. Mefia en þrfi
fjórðuhlutar þjóðarinnar vfiðast vera
á móti þeim. I fyrra Ufi sínu, sem for-
maður Alþýðubandalagsins, var
Ólafur hins vegar áhugasamur um að
sett yrðu lög á fjölmiðla. Helsti trún-
aðarmaður hans er Sigurður G. Guð-
jónsson, forstjóri Norðurljósa. Dóttfi
hans vinnur hjá Baugi. Það er spurn-
ing hvort maður Dorritar vfll hætta
sínu góða lífi í póUtískum átökum.
Það yrði þá minna af skálarræðum í
veislum með Michael Caine.
Þá er hægt að tala um valda-
rán
í vetur höfum við hlustað á mikið
þref um valdsvið forsetans. Þegar nú
blasfi við að hann kunni að þrýsta á
öryggishnappinn, verður ekki betur
séð en að málskotsrétturinn sé blá-
kaldur veruleiki. Altént vfiðist ekki
mikið gefandi fyrir þá lögskýringu
Bjöms Bjarnasonar og fleiri að ráð-
herrar fari í raun með synjunarvald-
ið. Ef Ólafur skrifar ekki undfi, heyrfi
maður varla að menn fari að hrópa -
þetta er ómark, þú mátt þetta ekki, og
láta svo Halldór Blöndal mæta með
pennann. Þá væri lfldega hægt að tala
um valdarán.
Menn hafa haft þung orð um
ástand sem hér kann að skapast ef
forsetinn beitfi synjunarvaldinu. Vel
má vera að hér komi upp stjórn-
málakreppa um tíma. Kannski er þó
óþarfi að mála það svo sterkum litum
- við fengjum tfl dæmis blómstrandi
umræðu um samspfl valdþátta í lýð-
ræðisrfld og veitfi ekki af. Kannski er
ákveðin uppstokkun í stjómmálalíf-
inu Iflca tímabær. í versta falli sætum
við uppi með að Ólafur Ragnar færi
frá eða að Davíð færi, eða báðfi tvefi
- en varla em það nein endalok þó
þessfi sömu menn séu ekki alltaf við
völd á íslandi.
En Ólafur skrifar undir
Að þessu sögðu tek ég fram að ég
hef enga trú á því að Ólafur skrifi ekki
undir. Hins vegar tel ég víst að lögin
verði ekki að veruleika í núverandi
mynd; það em tvö ár þangað til þau
eiga að taka gildi - á þeim tíma verð-
ur öllum Ijóst að þau ganga ekki upp.
Ólafur mun leyfa þessu tækifæri að
fljóta hjá og við munum áfram búa
við þá mótsagnakenndu hefð að
þjóðkjörinn forseti okkar er fyrst og
ff emst puntudúkka - þessa daga birt-
ist áhrifaleysi embættisins ekki síst í
því að enginn býður sig ffarn í for-
setakosningunum nema vitleysingar.
Var þetta satt með drauminn í
upphafi greinarinnar? Jú, hreina satt!
í nótt dreymdi mig svo að ég væri
ráðherra, held að ég hafi átt að fara
með samgöngumál, en fann ekki
dagskrána mína og vissi ekki hvar ég
ætti að mæta á fund.
*
w
um allt land a
Nýttu eigin orku og vertu með!
■
Skráning og nánari upplýsingar
www.isisport.is
Island
áÍðí
>