Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1971, Blaðsíða 38
48
TÍMARIT VFI 1971
nú tilbúnir til útsendingar til gagnrýni. Staðlarnir eru
um: 1) mátkerfið 2) byggingarmát. 3) hönnunarmát og
4) salarhæð.
Nefndin þýddi úr sænsku bæklinginn Mátkerfið ABC,
sem nú er í prentun.
9. Bandalag háskólamanna:
Guttormur Þormar,
Haukur Pálmason,
Jakob Björnsson,
Jón A. Skúlason.
Varamenn:
Björn Sveinbjömsson,
Einar B. Pálsson,
Guðmundur Björnsson,
Sveinn Björnsson.
Helztu mál, sem stjórnin hefur fjallað um á árinu:
1. Fráfarandi stjórn hafði sementsverksmiðjumálið til
meðferðar, en þótti ekki rétt að aðhafast í málinu
meðan framkvæmdastjóri verksmiðjunnar var verk-
fræðingur, enda þótt hann væri í fríi. Á seinasta
aðalfundi VFl hafði framkvæmdastjóri verksmiðjunn-
ar sagt starfi sínu lausu fyrir nær 2 mánuðum og
þótti stjórn félagsins því einsýnt, að auglýsa bæri
starf framkvæmdastjórans laust til umsóknar fyrir
verkfræðilega menntaðan mann í samræmi við lög
verksmiðjunnar. I þessu sambandi komu verkfræð-
ingar sementsverksmiðjunnar á fund með stjórn VFl
12/3 1970 og í framhaldi af þeim fundi hófust bréfa-
skipti félagsins við verksmiðjustjórnina varðandi aug-
lýsingu á lausu starfi framkvæmdastjóra sements-
verksmiðjunnar. Bréfaskiptin báru ekki tilætlaðan ár-
angur, svo stjórn VFl sá sig að lokum tilneydda að
óska eftir rannsókn saksóknara ríkisins á því, hvort
stjórn sementsverksmiðjunnar færi að lögum. Þetta
skeði 8. okt. 1970, en 14. okt. 1970 hélt stjórnin blaða-
mannafund um málið og afhenti blaðamönnum afrit
af öllum bréfaskiptunum ásamt afriti af bréfi VFl
tii saksóknara. Ekki er ástæða til að rekja efni bréf-
anna, þar sem þau hafa þegar birzt í dagblöðum.
Afleiðingar þessara aðgerða félagsins urðu þær, að
iðnaðarráðherra skipaði nefnda til þess að semja
frumvarp að nýjum lögum fyrir Sementsverksmiðju
ríkisins, en saksóknari sá ekki ástæðu til aðgerða
af sinni hálfu eins og öllum er kunnugt. Einn stjórn-
armanna verksmiðjunnar lézt I vetur, en Alþingi
kaus verkfræðing í stjórn verksmiðjunnar í hans stað
og er það e. t. v. einnig árangur af aðgerðum félags-
ins. Þá var einnig haldinn félagsfundur um íslenzkt
sement, ástand og horfur, eins og áður er getið, og
er skýrsla um niðurstöður þess fundar komin út
í Tímariti VFl. Stjórnin vonar, að einnig hún hafi
nokkur áhrif I sementsverksmiðjumálinu.
2. Á stjórnarfundi 12. marz 1970 var ákveðið að skrifa
forstjórum opinberra stofnana og spyrjast fyrir um
reynslu þeirra af að láta tæknileg verkefni til úr-
lausnar hjá verkfræðilegum ráðunautum og hver
stefna þeirra sé I þeim efnum. Afrit af þessu bréfi
var sent 4 ráðherrum og borgarstjóranum I Reykja-
vík. Svör bárust frá flestum og voru ýmisleg eins
og vænta mátti: Yfirlit yfir niðurstöður svaranna
verður birt I Tímariti VFl innan skamms.
3. Hinn 2/4 1970 ákvað stjórnin að ráða Pál Theodórs-
son ritstjóra fyrir Tímarit VFl til þess að sjá um að
bæta ritið og koma þvi út 6 sinnum á ári. Stjórnin
gerir sér vonir um að þessi nýbreytni beri góðan ár-
angur. Fjórða hefti árgangs 1970 er komið út og
von er á 5. og 6. hefti innan skamms. Síðan verður
reynt að koma út árgangi 1971 á þessu ári.
4. Á stjómarfundi 4/6 1970 skýrði formaður frá fundi
sínum með formönnum norrænu verkfræðingafélag-
anna, sem var haldinn í Gautaborg 23.—27. maí 1970.
1 framhaldi af því var ákveðið að taka meiri þátt í
samstarfi norrænu verkfræðingafélaganna en verið
hefur og bjóða til fundar hér 1972 í sambandi við 60
ára afmæli VFl, þar sem jafnframt yrði haldin ráð-
stefna stefnumarkandi um tækniþróun á Islandi.
5. Á stjórnarfundi 12/11 1970 var undirritaður samning-
ur við Dansk Ingeniörforening um tvöfalda félags-
aðild og afslátt af félagsgjöldum í því sambandi.
Unnið er að því að koma á sams konar samkomulagi
við öll verkfræðingafélögin á Norðurlöndum.
6. Menntamálaráðuneytið skipaði í sumar er leið Verk-
og tæknimenntunarnefnd. Tæknifræðingafélag Is-
lands fékk sérstakan fulltrúa í nefndina, sem annars
var skipuð skólastjórum og forstöðumönnum skóla
eingöngu. Af þessu tilefni óskaði stjórn VFl eftir
því að fá að tilnefna fulltrúa í nefndina og féllst
ráðuneytið á það. Stjórn VFl tilnefndi fyrst Einar
B. Pálsson I nefndina, en hann reyndist ekki hafa
nægan tima til nefndarstarfa og óskaði eftir því að
verða leystur frá nefndarstörfum. Stjórnin féllst á
þetta og tilnefndi þá Jóhannes Zoega í Verk- og
tæknimenntunarnefnd. Formaður nefndarinnar er
Andri Isaksson. Nefndin er að störfum.
7. Á stjórnarfundi 8/7 1970 var nefnd um menntamál
frá hugmyndaflugsráðstefnu um markmið félags-
ins falið að starfa áfram undir forustu dr. Vilhjálms
Lúðvikssonar og gera tillögnr um frekari aðgerðir
I menntamálunum. Nefndin gerði samanburð á nefnd-
aráliti háskólanefndar VFl, skýrslu háskólanefndar
H. I. og nefndaráliti Stjórnunarfélags Islands um
menntamál. Nú er í undirbúningi að koma þessu áliti
á framfæri við menntamálaráðherra.
8. Hinn 28/1 1971 var tekið til meðferðar bréf, dags. 22/1
1971, frá Skipulagsstjóra ríkisins, þar sem hann ósk-
ar eftir þvi að VFl tilnefni mann I dómnefnd vegna
samkeppni um skipulag í tilefni af því, að 27. júni
n. k. eru 50 ár liðin frá því að lög um skipulag bæja
tóku gildi hér á landi. Stjórnin tilnefndi Gústaf E.
Pálsson, borgarverkfræðing í dómnefndina af hálfu
VFÍ.
AÖ lokum skal þess getið, að „Námssjóður I. C. Möll-
ers frá 6. okt. 1938“ er I vörzlu Verkfræðingafélags Is-
lands, og stjórn sjóðsins skipa Steingrímur Jónsson,
Sigurður Briem, stjórnarráðsfulltrúi og Hinrik Guð-
mundsson. Sjóðstjórnin veitti styrk á liðnu ári Ágústi
H. Bjarnasyni, rafmagnsverkfræðinema við tæknihá-
skólann í Lundi, dkr. 3.000,00.
Námssjóður I. C. Möllers er að mestu í dönskum verð-
bréfum og geymdur hjá R. Henriques, víxlara í Kaup-
mannahöfn. Hann er að fjárhæð um 720.000 ísl. krónur.
Þá skal þess einnig getið, að formaður VFl á sæti 1
stjórn Minningarsjóðs Jóns Þorlákssonar, verkfræðings,
ásamt háskólarektor og forseta Verkfræðideildar háskól-
ans. Styrkveiting á árinu 1970 var til Skúla Jóhanns-
sonar, byggingaverkfræðinema, kr. 9.600.