Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2004, Page 3
W Fyrst og fremst
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ2004 3
Arnþrjíður varðsljóri
í vettvangsrannsókn
„Já ég man eftir þessu augnabliki en þama er ég varðstjóri í
umferðarlögreglunni og þetta hefur verið árið 1976 en þá bar ég
númerið 170 á einkennisbúningnum," segir Amþrúður Karls-
dóttir, hin skelegga útvarpskona á Útvarpi Sögu, en hún prýðir
gömlu myndina í DV í dag. „Þarna er ég að ræða við vitni að því
að bíll hafði keyrt utan í annan og stungið svo af. Um var að
ræða sendiráðsbíl sem flúði af vettvangi en við höfðum uppi á
honum síðar og leystum máhð.“
Arnþrúður segir að hún eigi margar minningar frá vem sinni
í lögreglunni, bæði skemmtilegar og miður skemmtilegar. Hún
varð síðar rannsóknarlögreglumaður um átta ára skeið eftir að
hafa þjónað í almennu lögreglunni. Á þessum árum var hún
einnig framarlega í kvennahandboltanum og spilaði með
landsliðinu þar til hún lenti í slæmu
slysi í vinnunni sem næstum
kostaði hana aðra hendina.
En skondnar uppákom-
ur komu einnig til í starf-
inu af og til. „Ég man að
við vomm tvær kven-
löggur sendar í útkall
til konu sem kvartaði
undan mús í íbúð
sinni,“ segir Arn-
þrúður. „Við kom-
um þarna báðar
kvenhetjumar til að
leysa vandamál þess-
arar konu en enduðum
báðar hrópandi með
henni upp í sófa í stofunni
og þurftum svo sjálfar
hringja í lögregluna eftir að-
stoð."
Spurning dagsins
Borðarðu gellur?
Eg elska gellur
„Steiktar, marineraðar, djúpsteiktar,
soðnar, grillaðar; já, ég borða gellur.
Þetta er þvílíkur herramannsmatur og
bara sjávarmeti yfir höfuð sem ég borða
mikið af. Ég hefselt sjávarafurðir í tíu ár
og get því ekki talað nema vel um þær
afurðir. Ég elska gellur en þið megið ekki
misskilja það.“
Gunnar Örn Örlygsson
alþingismaður
_________________________________
„Nei, veistu ég
hefbara aldrei
prófað þær. Ég
myndisamt
gera það efein-
hvern myndi
bjóðamérað
smakka. Ég held nefnilega að
maður þurfi að smakka allt en
þetta er hinsvegar mjög tvíræð
spurning. En efeinhver býður
mér þá segi ég já, takk. “
Svali á FM, útvarpsmaður
„Nei það geri ég
ekki. Ég hef
reyndar smakk-
aðþærogmér
fannst þær frek-
ar vondar. Ég
borða hinsveg-
ar alveg sjávar-
meti og þá aðallega humar og
lax. Svo er líka ágætt að fá sér
sushi svona afog til. Kampavín
og kavíar er fyrir poppstjörnur
þannig að ætli maður fari ekki
að fá sér það í öll mál."
Steinunn Camilla í Nylon,
söngkona
„Úff, nei ég geri
það ekki.
Amma var
reyndar stund-
um með þetta í
matinn en ég
held að ég hafi
ekkismakkað
þetta. Ég skammast mín nú fyrir
það vegna þess að ég get svarið
það að ég borða nánastallt. Ég
borða allt nema kartöflur og
gellur."
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir,
fyrrv. umsjónarmaður ats
„Hérna borða
ég gellur
spyrðu.Já ég
borða gellur
frekaren ellur.
Égerallurífisk-
inum og kann
vel að meta hann. Hvort sem
hann er grillaður, steiktur eða
soðinn þetta er allt fyrir mig. Svo
finnst mér rosalega gott að fá
mér sushi, það er sko ég."
Atli Erlendsson í hljómsveit-
inni Dáðadrengir
Sigvaldi Gunnlaugsson gelluframleiðandi sagði í viðtali við DV í
gær að erfitt væri að koma gellum ofan í ungu kynslóðina.
Hið óstöðvandi
endalausa klúður
„Ef eitthvað getur klúðr-
ast, þá klúðrast það."
Þannig hljómar hið svo-
kallaða „lögmál Murphys" og
munu flestir hafa sannreynt
það á sjálfum sér. Lögmálið
heitir eftir höfuðsmanni og
verkfræðingi í bandaríska
flughemum, Edward
Murphy. Árið 1949 hafði
hann þann starfa á Ed-
wards-flugstöðinni í
Kalifomíu að aðstoða
við prófanir á hversu
mikið álag mannslíkaminn þolir við
flugslys. Dag nokkurn kom í ljós að
misvitur tæknimaður hafði tengt víra
í einhverju mælitæki vitlaust og
Murphy larást illa. Hann bölvaði
tæknimanninum og sagði: „Ef það er
einhver leið til að klúðra því, þá finn-
ur hann hana.“ Fufltrúi verktaka á
staðnum hafði þann sið að skrifa hjá
sér ýmislegt skemmtilegt og þetta
skráði hann sem sagt undir heitinu
„lögmál Murphys".
Nokkrn síðar var haldinn blaða-
mannafundur um prófanir flughers-
ins og þar lét yfirlæknirinn á flugstöð-
inni svo um mælt að sérlega lága
slysatíðni við prófanimar mættí rekja
til þess að menn gerðu sér grein fýrir
„lögmáli Murphys" og reyndu því æv-
inlega að búa svo um hnútana að ekk-
ert gæti farið úrskeiðis.
Blaðamenn höfðu þetta
eftir lækninum og þannig
komst lögmálið í umferð -
þótt ýmsar aðrar myndir
þess hafi svo sem verið á
sveimi meðal fólks áður.
Síðan hafa menn
skemmt sér við að bæta
við fleiri greinum í
„lögmál Murphys" og
er andinn í þeim flest-
um svipaður; aflt
klúðrast.
Fleiri greinar Murphys-lögmáls
Ekkert er eins auðvelt og það h'tur út
fyrirað vera.
Allt tekurlengri tíma en þú heldur.
Ef nokkrír hlutir geta
faríð úrskeiðis, þá
mun sáþeirra fara úr-
skeiðis sem veldurmestum skaða.
Ef eitthvað getur ails ekki klúðrast, þá
klúðrast það samt.
Efþú hefurþefað uppi fjóra hluti sem
gætu faríð úrskeiðis og lagar þá, þá
muntu í leiðinni skapa fímmta hlut-
inn sem samstundis mun þá fara úr-
skeiðis.
Sérhver lausn hefur í för með sér ný
vandamál.
Lögmál hvunndagslífsins
Sveitarstjórinn &
forstjórínn
Karl Steinar Guðnason, fyrrum þingmaðurAlþýðuflokksins og núverandi
forstjóri Tryggingastofnunar, er faðir sveitarstjórans skelegga ó Raufarhöfn,
Guðnýjar Hrundar. Karl Steinar satsem kunnugt er ó þingi ó drunum 1978-1993
allt þar til hann var skipaður forstjóri Tryggingastofnunnar ríkisins.
Guðný Hrund, sem er rétt rúmlega þritug, er þriðja í röð fjög- ájk
urra barna Karls og konu hans, Helgu Þórdísar Þormóðsdóttur fT
félagsróðgjafa.Guðný komst óvænt i fréttir fyrir tveimur órum 1
þegar hún tók við einu versta búi landsins í Raufarhafnar- Á|j
hreppi og hefurþótt standa sig vel ístarfi sínu á erfiðum tím■
um nyrðra.Karl Steinar hættir hins vegarstörfum hjá
Tryggingastofnun á hausti komanda.
FORSALA HEFST Á SUNNUDAGINN
í VERSLUNUM SKÍFUNNAR 0G
BT Á AKUREYRI 0G EGILSSTÖÐUM
SÉRSTÖK FORSALA AÐEINS FYRIR
M12 ÁSKRIFENDUR Á LAUGARDAGINN
í SÖMU VERSLUNUM
LAUGARDALSHOLL
FÖSTUDAGINN 20. ÁGÚST
aðeinsA380Ö,r istíeði oj> |Ö00 kr i stúkii.
ATH! ENGINN MÖGULEIKI A AUKATÓNLEIKUM
FERNANDOSAUNDÉR
MIKE RATHKE
JANE SCARPANTONI
TONY SMITH
VIKING
JSKONROK