Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2004, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ2004
Fréttir DV
Fór létt með
ógeðsdrykk
„Baldur drakk ógeðs-
drykk í settinu hjá okkur
og tók áskorun sem var að
borða heila matskeið af
smjöri og fór hann létt
með það,“ segir Jóhannes
Ásbjörnsson, einn af
stjórnendum 70 mínútna.
Jóhannes segir forseta-
frambjóðandann hafa
verið nokkuð stressaðan
en engu að síður hafi hann
verið hress og skemmtileg-
ur. Hann segir þá félaga
reyna að forðast allt mál-
efnalegt spjall og því hafi
viðtalið verið á léttu
nótunum og gengið mjög
vel.
„Hann bragðaði vel á
ógeðsdrykknum, sem var
algjörlega ódrekkandi að
þessu sinni. Hann innihélt
sítrónusafa, Aromat krydd,
Worcester-sósu sem er
svipuð og balsamedik, lýsi
og svo auðvitað mjólk,“
segir Jóhannes.
Að sögn Jóhannesar er
mjólk alltaf undirstaðan í
ógeðsdrykknum; þeim
dýrindis kokkteilum sem
þeir félagar hafi blandað
mikið af í gegnum tíðina.
Ástþór Magnússon hef-
ur áður komið í 70 mín-
útna þáttinn. Stefnan er
nú sett á að fá Ólaf Ragnar
Grímsson áður en kosið er
á laugardaginn.
Skífusalan
breytti öllu
Samkeppnisráð segir
að með sölu Skífunnar
út úr Norðurljósum hafi
verið komið í veg fyrir
skaðleg áhrif sameining-
ar Fréttar ehf. við Norð-
urljós. Samkeppnisráð
vísar einnig til sam-
þykktar fjölmiðlalaga
rfldsstjómarinnar. Ekki
sé ástæða til að fjalla
frekar um hugsanleg
samsteypuáhrif. Frétt
gefur út DV og Frétta-
blaðið og Norðurljós
standa meðal annars að
Stöð 2 og útvarpsstöð-
inni Bylgjunni.
Ekkerl
fræðirit
Helga Kress, prófessor í
bókmenntafræði, hefur birt
fyrri hluta ritdóms síns um
bók Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar um Halldór
Laxness í tímaritinu Sögu.
Hún fer hörðum orðum um
vinnubrögð Hannesar.
„Það kann vissulega að vera
fengur að ýmsum þeim
ffóðleiksmolum sem Hann-
es hefur safnað saman
um „menn og atvik"
og hefði bók hans
getað nýst sem upp-
sláttarrit ef heimilda
hefði verið vel
getið og þeim
að treysta.
Hins vegar
verður ekki
séð að bókin bæti nokkru
sem máli skiptir við þá
fræðilegu þekkingu sem
fyrir var," segir í greininni.
Forsetakosninqar 2004
Umijöllun DV um forsetakosningarnar heldur áfram og
fylgst var með Baldri Ágústssyni þegar hann mætti í þáttinn 70 mínútur í gær.
Blaðamaður og ljósmyndari DV mættu á staðinn og urðu undrandi á dónaskap og
leiðindum forsetaframbjóðandans.
skellir í lás
Kosningastjóri Baldurs Ágústssonar, Hrafnhildur Hafberg, var
búin að gefa okkur leyfi til þess að fylgjast með Baldri í upptök-
um 70 mínútna og var talað um að hittast uppi á Popptíví rétt
fyrir upptökur. Baldur brást hins vegar hinn versti við þegar
mætt var á staðinn og leyfði okkur ekki að fylgjast með sér í þann
klukkutíma sem um var rætt.
13:30-Baldurmætir
upp í Norðurljós
Lítill grænn Suzuld-jeppi bakkaði
í stæði fyrir utan hús Norðurljósa að
Lynghálsi 5 og út úr honum steig
Baldur Ágústsson forsetaframbjóð-
andi, sem er að leggja lokahönd á
kosningabaráttu sína.
Það lá greinilega ekki vel á Baldri
og hafði hann af einhvetjum ástæð-
um gleymt að hneppa tveimur efstu
tölunum á skyrtimni sinni. Hins veg-
ar gæti verið að tölurnar væru hluti
af þeirri ímynd sem Baldur reynir að
skapa sér. Hann hafði einnig gleymt
að loka glugganum aftur í á forseta-
frambjóðendabflnum og því engu
lflcara en hann hafi farið öfugt fram
úr rúminu í morgun.
Baldur gekk til okkar þungum
skrefum og blaðamaður DV kynnti
sig með nafni. Þvf næst spyr hann
okkur hvað við séum að gera hérna
því hann viiji ekkert við okkur tala.
Hann hristir hausinn þegar honum
er tjáð að leyfi hafi fengist hjá kosn-
ingastjóra hans fýrir því að fá að
fylgjast með honum við upptökur á
þættinum. Auðunn Blöndal, um-
sjónarmaður þáttarins, mætir á
svæðið og býður Baldri inn.
13:33 — Baldur skellir á
nefið á blaðamanni og
Ijósmyndara
Eftir þessi orðaskipti segir Baidur
okkur að tala við kosningastjórann
sinn og hverfur inn í húsið. Hringt er
í Hrafnhildi kosningastjóra og hún
segist ekkert skilja í málinu:
„Það sfðasta sem ég sagði við
hann þegar hann labbaði út var að
þið mynduð hitta hann uppi á Popp-
tíví," segir Hrafnhildur. Blaðamaður
DV biður hana um að ná sambandi
við Baldur og fá á Jireint hvað sé í
gangi. Einnig er henni tjáð að skrifað
verði um þann klukkutíma sem um
var rætt og ef hann vilji hafa þetta
svona þá verði svo að vera.
„Ég skil þetta ekki alveg en hann
verður þá bara að taka þennan
skell," sagði Hrafnhildur, sem var
hin kurteisasta og vildi allt fyrir
okkur gera.
„Það síðasta sem ég
sagði við hann þegar
hann labbaði út var að
þið mynduð hitta
hann uppi á Popptívi
segir Hrafnhiidur.
13:50 -Beðið eftir
Baldri
Lítið annað var hægt að gera á
þessari stundu en bíða eftir að kosn-
ingastjórinn næði sambandi við
frambjóðandann og málið yrði leyst.
Spjaliað var við upptökustjóra 70
mínúma og sagði hann strákana
hafa farið út til þess að taka upp eitt-
hvert atriði en þeir kæmu fljótlega í
hús. Kosningastjóri Baldurs hringir
og segist ekkert ná í hann því fram-
bjóðandinn sé búinn að slökkva á
símanum sínum en biðst afsökunar
á þessari framkomu.
14:10-Enn er beðið
eftir Baldri
Fljóúega er okkur tjáð að fjöl-
miðlafulltrúi framboðsins hafi verið
settur í máiið og sé á hælunum á
Baldri til þess að ræða máhn. Hið
ágætasta veður var og leiddist okkur
var hægt aö gera á þessari
stundu en blöa eftirað kosninga-
stjórínn næði sambandi viö fram-
bjóðandann og málið yröi leyst.
biðin ekkert svakalega, okkur var
meðal annars boðið inn á kaffistofu
Norðurljósa þar sem sást bregða
fyrir ýmsum þekktum andlitum í
kaffipásu.
14:20- Baldur kemur
úr upptökum
Loksins er olckur sagt að félag-
arnir séu á leiðinni í hús og fljótlega
mætir Popptíví jeppinn á fullri sigl-
ingu með Jóhannes Ásbjörnsson
við stýrið. Auðunn Blöndal og
„Ofúr" - Hugi sitja í aftursætinu en
Baldur vermir framsætið og getur
því stjórnað tónlistinni í bflnum
eftir eigin hendi.
Jeppanum er bakkað inn í stæði
af stakri snilld og fjórmenningarnir
stíga út úr bflnum. Forsetafram-
bjóðandinn spyr okkur hvers vegna
við séum hér enn:
„Eruði ekki á bfl? Þarf ég að skutla
ykkur heim? Eruð þið ekki með
eyru? Ég vil ekki tala við ykkur," voru
setningar sem Baldur hreytti út úr
sér þegar reynt var að útskýra máhð.
Hann sagði að honum þætti leiðin-
legt að við hefðum farið fýluferð til
þess að fylgjast með sér og sagðist
ekki vilja íeyfa okkur að fylgjast með
upptökunum.
„Ertu að hóta mér," sagði Baldur
þegar honum var tjáð að skrifað yrði
um þennan kluldcutíma sem við
fylgjast með honum. Og ef hann
vildi eyða honum með þeim hætti
sem hann gerði yrði svo að vera.
Umsjónarmenn 70 mínútna
horfðu á gest sinn ræða við blaða-
mann DV og voru þeir skiljanlega
undrandi á framkomu Baldurs
Ágústssonar.
14:26- Baldur kveður
Þannig var sá klukkutími sem við
„áttum" með Baldri Ágústssyni, sem
vonast eftir stuðningi landsmanna í
forsetakosningunum á laugardag-
inn. Baldur á Bessastaði. Af virðingu
við land og þjóð.
breki@dv.is