Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2004, Qupperneq 11
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ2004 11
Ávöxtur gefur
mjúkar línur
Ávöxtur frá frumskógum
Amazon-svæðisins er orð-
inn mjög vinsæll meðal
kvenna í Perú sem segja að
hann gefi þeim mýkri og
kvenlegri línur. Ávöxturinn
sem ber nafnið Agu-
aje er sagður inni-
halda töluvert magn
af hormónum sem
hafa þessi áhrif.
Ávöxturinn, sem er á
stærð við hænuegg og gul-
ur og brúnn að ht, er einnig
sagður ágætis ástarmeðal.
Kvenmenn sem borða
ávöxtinn segja að hann gefi
þeim h'nur eins og hjá Jay-
Lo á nokkrum mánuðum.
Nakin í
búðarferð
Fyrsta nakta búðarferð-
in var nýlega haldin með
pomp og prakt í miðborg
London. Þeir sem stóðu að
uppátækinu í Plaza kringl-
unni í Oxford stræti urðu
þó fyrir vonbrigðum með
aðsóknina því aðeins 15
naktir gestir mættu til að
versla. Aðstandendur voru
þó með skýringu á lélegri
þátttöku, jú, Evrópumeist-
aramótið er í fullum gangi.
Þeir ætla því ekki að láta
deigan síga og stefna
ótrauðir á fleiri naktar búð-
arferðir í framtíðinni.
Geymdu fisk
í líkhúsi
Starfsmenn líkhúss
borgar einnar í norður-
hluta Indlands hafa orð-
ið uppvísir að því að
geyma fisk meðal þeirra
látnu í líkhúsinu. Munu
þeir hafa gert samkomu-
lag við starfsmenn fisk-
markaðar í grendinni
um að geyma ihsh-fisk í
kældri hkgeymslunni
síðan í mars síðastliðinn.
Upp komst um þessa
aukabúgrein þeirra er
rannsóknarblaðamaður
þefaði af málinu. Ilish-
fiskurinn þykir annars
hið mesta lostæti þama
um slóðir en hann hefur
nú kostað líkmennina
starf sitt.
Schroeder
bannar bók
Þýski kanslarinn Gerhard
Schroeder hefur fengið bók
bannaða sem fjallar um óá-
nægðan verslunareigenda
sem drepur kanslara sem
þykir líkur Schroeder. Höf-
undur bókarinnar ber nafnið
Reinhard Lieberman en bók-
arheitið er „Endalok kanslar-
ans - skotið í sjálfsvöm.“ I
bókinni verður verslunareig-
andinn gjaldþrota vegna
slæmrar stöðu þjóðarbúsins
og kennir kanslara sínum
um hvemig komið er. Því
tekur hann sig til og myrðir
hann. Bókin mun ekki hafa
selst í nema um þúsund ein-
tökum áður en hún var
bönnuð.
Stórt hneykslismál er komið upp hjá lögreglunni í Nashville, Tennesse. Fíkniefni,
peningar og vopn hafa horfið í stríðum straumum úr geymslum lögreglunnar þar í
borg. Sextán handteknir, þar á meðal tveir starfsmenn geymslunnar.
komst á sporid i tramnaiai ai
rannsókn á öðru máli
Rannsókn stendur nú yfir á umfangsmikiu hneykslismáli sem
komið er upp í Memphis-lögreglustöðinni í borginni Nas-
hville í Tennesse. Á undanförnum árum hafa fíkniefni, pen-
ingar og vopn horfið úr sönnunargagnageymslum lögreglu-
stöðvarinnar.
Talið er að kókaínhringur
standi á bakvið þjófnaðinn en alls
hafa horfið fíkniefni að andvirði
240 milljónir króna, peningar að
upphæð rúmlega 12 milljónir
króna og töluverður fjöldi af vopn-
um, einkum skammbyssum.
Sextán hafa verið handteknir
og ákærðir vegna málsins, þar af
tveir opinberir starfsmenn
geymslunnar. Enginn lögreglu-
maður hefur hinsvegar verið
ákærður.
Barnastjarnan Mary-Kate Olsen bugast
undan frægðinni
Tvíburastjarna með lyst-
arstol og milljarð í banka
Tvíburasysturnar As-
hley og Mary-Kate Olsen
hafa verið stjörnur síðan í
vöggu. Nú hefur hin 18
ára Mary-Kate bugast
undan frægðinni og er
komin með lystarstol.
Hún var lögð inn á sjúkra-
hús nýlega vegna þessa
vandamáls. Talsmaður
þeirra systra hefur stað-
fest að Mary er komin á
sjúkrahús vegna heilsu-
kvilla en vill ekki ræða
nánar um málið.
Ashley og Mary-
Kate urðu sjónvarps-
stjörnur er þær voru
níu mánaða gamlar og
léku í sjónvarpsþátt-
unum „Full house“. Það hlutverk
höfðu þær fram til níu
ára aldurs. Þær fengu sitt
eigið framleiðslufyrir-
tæki er þær voru sex ára
gamlar og urðu þar með
yngstu framleiðendur í
heimi. Síðan hafa þær
haldið áfram að leika og
búa til sjónvarpsþætti og
kvikmyndir og hafa kom-
ist vel í álnir. Þær munu
eiga um milljarð dollara í
bankabókinni, hvor um
sig.
Á sama tíma hafa
þær báðar puðað við
heimalærdóminn í
Háskólanum í New
York og þetta var víst
allt of mikið í fang færst hjá Mary-
Kate.
Schvill, gaf út um málið segir hann
meðai annars: „Við kölluðum eftir
utanaðkomandi aðstoð til að sýna
fram á að okkur var full alvara að
komast til botns í málinu. Við vild-
um gera rétta hlutinn."
Á annað hundrað kíló af kóki
Við endurskoðun bókhaldsins
kom m.a. í ljós að um 116 kg af
kókaíni höfðu horfið úr vörslu lög-
reglunnar á síðustu tveimur árum,
nær 300 kg. af marijúana auk pen-
inga og um 66 skotvopna. Schvill
segir að gera verði ráð fýrir að þess-
um hlutum hafi verið stolið og að
ekki sé slæmu bókhaldi um að
kenna. Talsmaður alríkislögregl-
unnar FBI, sem einnig var kölluð
til, vildi ekki tjá sig um málið við
CNN.
Fylkisendurskoðandinn John
Morgan segir að endurskoðendur
hafi varað lögreglustöðina við að
vandamál væru í bókhaldinu á
stöðinni þegar árið 1999 eða þrem-
ur árum áður en byrjað var að
rannsaka þjófnaðinn og að þau
vandamál hefðu aldrei verið leyst.
Lögregluyfirvöld hafa síðan sagt
að þau hafi ráðið bót á þessu vanda-
máli með því m.a. að setja upp betra
eftirlitskerfi og myndatökuvélar í
geymslumar.
Endurskoðendur á vettvang
Rannsóknarlögreglan í borginni
komst á sporið í ffamhaldi af rann-
sókn á öðm máli. Fíkniefnasali var
handtekinn og í framhaldinu
greindi hann lögreglunni frá hin-
um umfangsmikla þjófnaði úr
hirslum lögreglunnar. Endurskoð-
endur fylkisins vom kallaðir til og
fóm þeir yfir bókhaldið í geymsl-
unum.
í yfirlýsingu sem aðstoðarlög-
reglustjóri borgarinnar, Ray
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3 ■ 105 REYKJAVÍK ■ SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Hlemmur og næsta umhverfi,
deiliskipulagsvinna
Skipulags- og byggingarnefnd Reykjavíkur hefur
samþykkt að unnin verði tillaga að deiliskipulagi Hlemms
og næsta umhverfis. Tilefni þessarar vinnu eru m.a. áform
Strætó bs. um breytingar á leiðarkerfi almenningsvagna
sem krefst breytinga á skipulagi umferðar um svæðið auk
þess sem gert er ráð fyrir að Hlemmur verði endastöð sex
stofnleiða. Samkvæmt hugmyndum sem leiðakerfis-
breytingarnar hafa í för með sér er m.a. gert ráð fyrir að
loka Hverfisgötu milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs fyrir
almennri umferð til að almenningsvagnar komist fyrir í
götustæðinu. Þá er gert ráð fyrir að lega Laugavegar á
svæðinu austan Rauðarárstígs breytist. Auk breytinga á
umferðarkerfi svæðisins tekur deilskipulagið til húsanna
innan reits sem afmarkast af Laugavegi til suðurs, Snorra-
braut til vesturs, Hverfisgötu til norðurs og Rauðarárstíg
til austurs. Gert er ráð fyrir að heimilað verði að hækka og
stækka húsin að Hverfisgötu 112, 112A og 114 til sam-
ræmis við önnur hús á reitnum.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar og drög að deili-
skipulagi svæðisins í upplýsingaskála skipulags- og
byggingarsviðs að Borgartúni 3 eða á vefsíðu stofnunar-
innar http://skipbygg.is. Er þeim sem hafa ábendingar
eða athugasemdir varðandi skipulag svæðisins bent á að
koma þeim skriflega á framfæri til skipulagsfulltrúa,
skipulags- og byggingarsviði Borgartúni 3,105 Reykjavík,
eða á tölvupósti á tölvupóstfangið jsk@rvk.is fyrir 3. júlí
nk. Að þeim tíma liðnum verður unnin tillaga að deili-
skipulagi svæðisins sem auglýst verður til kynningar í
samræmi við ákvæði skipulags- og byggingarlaga.
Reykjavík, 22. júní 2004,
skipulagsfulltrúi Reykjavíkur.