Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2004, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ2004
Fréttir J3V
hefur sérhæft sig í framleiðslu á gell-
um af fiskhausum, svaraði tölvu-
pósti frá Nígeríumanninum Abiola
Williams sem kynnti sig sem starfs-
mann seðlabanka Nígeríu. Þessi
tölvupóstur er reyndar alþekktur og
hafa fjölmargir fengið Scims konar
bréf. Sigvaldi hefur reynslu af rekstri
og hefur starfrækt sjávarútvegsfyrir-
tæki bæði á íslandi og í Kanada. Ní-
geríumaðurinn gaf Sigvalda upp
símanúmer og þeir ræddu oft sam-
an auk þess að senda hvor öðrum
tölvupóst. Eftir að þeir voru orðnir
vel kunnugir bauð Abiola Sigvalda
hlutdeild í ágóðanum af því að koma
fjármunum út úr Nígeríu í samstarfi
við bankamann í Höfðaborg, Tavo
Khumalo. Peningarnir áttu að hafa
ii
29. MAÍ 2004. Á 35
ára afmælisdegi (slend-
ingsins voru „pen-
ingarnir" enn sagð-
ir fastir í London
þar sem Sigvaldi
gat ekki borgað 15
þúsund sterlingspund.
staðið óhreyfðir á bankareikningi á
annan áratug og Nígeríumaðurinn
útskýrði að lögum samkvæmt
myndi bankinn eignast dollarana ef
enginn vitjaði þeirra innan tiltekins
tíma. Sá tími var á þrotum að sögn
Abiola og því seinustu forvöð að ná
peningunum áður en þeir yrðu
merktir bankanum. Upphæðin var
20 milljónir dollara og umbun ís-
lendingsins átti að vera fjórar millj-
ónir dollara, eða 20 prósent. Þarna
var ekki um neinar smáupphæðir að
ræða því heildarupphæðin er rúm-
lega 1,5 milljarðar íslenskra króna og
þóknun Dalvíkingsins um 300 millj-
ónir króna. Sigvaldi ákvað að slá til
og þarna hófst samstarf sem allt til
þessa dags hefur kostað íslending-
inn gríðarleg útgjöld þótt ekkert bóli
vali
16.JUNl2004.Sig
valdi Gunnlaugsson
mætti ekki í Afabanc
til að gera grein fyr-
ir 20 milljón dollur-
unum og borga
15.000 sterlingspund.
Samskipti við afrískan svikabanka sem er skráður á falskt heimilisfang
Lék konu og karl til skiptis
Dalvíkingur á fertugsaldri, Sig-
valdi Gunnlaugsson, hefur undan-
farið ár eytt stórfé úr eigin vasa í
þeim tilgangi að koma 20 milljónum
dollara frá Nígeríu um Suður-Afríku
og Bretland til Kanada. Dalvík-
ingnum var talin trú um að hann
væri þátttakandi í því að ná um-
ræddri fjárhæð út af bankareikningi
í samstarfi við þarlendan banka-
mann og Nígeríumann. fslendingur-
inn hefur lagt milljónir króna í að
koma dollurunum á milli landa án
ci ■ i
o
27. MAÍ 2004. Norman
Hood hjá millifærsludeild
■Afabanc í London, stað-
festir að 20 milljón doll-
arar hafi borist bankan-
um. Hann segir rann-
sóknadeild bankans yfir-
fara millifærsluna.
o
28. MAl 2004: Norman Hood
lét Sigvalda vita að rannsóknar-
deild Afabanc hefði millifærsluna á
20 milljón dollurum til athugunar
en bankinn vildi umfram allt forða
honum frá rannsókn Bresku
leyniþjónustunnar, MI6 eða
rannsókn breksra skattayfir-
valda. Leiðin til að forðast slfkt
væri að greiða rannsóknadeild
bankans 15 þúsund sterlingspund
eða mæta ella til yfirheyrslu og
greiða jafnframt umrædda upp-
hæð.
21. MAl 2004:5.150
.dollarar færðir frá
Sparisjóði Bolungar-
•JH víkur á íslandi til
Höfðaborgar í Suður-
Afrfku. Viðtakandi var
Bianca Phumiaduda.
Áfangastaður
peninganna er
Nýfundnaland.
JÚNl 2003: íslendingur-
inn fór til Madridar á Spáni
Sjk og fékk að sjá álkistu
Ngfc með 20 milljón dollur-
wjjp um. Ekki tókst að leysa
^ upp blek á peningunum
og „tilraunin" mistókst.
DV hafði áhuga á að vita hvers
konar þjónustu bankinn African
Amalgamated Bank Corporation veit-
ir mönnum sem vilja flytja peninga
milli landa. Á heimasíðu bankans
kemur fram að hann er við 14 High
Street Ux bridge í London. Á því
heimilisfangi er bókasafnsþjónusta
íyrir skóla hverfisins. Kona sem varð
þar fyrir svörum kannaðist ekki við að
banki væri í húsinu. Hún hafði ekki
orðið vör við að afrískir menn stund-
uðu viðskipti í hennar húsi. „Nei, það
kannast ég ekki við," sagði konan sem
heitir Gwen.
Á vefsíðu afríska bankans var
símanúmer fyrir landlínu í London.
Þegar hringt er þangað þarf að bíða
nokkra stund, svo er eins og símtalið
sé flutt á annað númer. Fyrst þegar
hringt var svaraði karlmannsrödd,
dulbúin sem kvenmannsrödd. Fram-
burðurinn var á affískri ensku. Þegar
spurt var eftir Norman Hobd var sagt
að hann væri á fundi. Blaðamaður
spurði hvort það væri rétt að Norman
Hood væri yfirmaður millifærslu-
deildar afríska bankans í London, og
sagði kvenmannsröddin: „That is
correct". Síðan sagði röddin blaða-
manni að hringja aftur eftir hálftíma.
Næst þegar hringt var svaraði sama
rödd, en sambandið slitnaði. í þriðja
sinn kom símsvari en í íjórða sinn
svaraði sama rödd aftur. Spurt var
eftir Norman Hood og kvenmanns-
röddin sagði augnablik. Þá var eins og
einhver ýtti nokkrum sinnum á takk-
ana á símanum og maður kom sem
kynnti sig sem Norman Hood. Hann
talaði með afrískum hreim. Líklega
var þetta sami maðurinn og talaði
með kvenmannsrödd áður. Blaða-
maður spurði hann hvaða þjónustu
hann gæti veitt og hvort mögulegt
væri að hitta hann í London. Norman
sagði það ekkert vandamál og að á
heimasíðunni væri hægt að finna
heimilisfangið.
„Þangað getur þú komið og ég get
hitt þig,“ sagði hann.
Hvaða dagur er heppilegastur fyr-
ir okkur að hittast?
„Heimilisfangið er á netinu, af
hverju kemurðu ekki þangað?"
Það er 14 High Street Uxbridge?
„Já“
Ættum við að koma þangað og þú
hittir okkur þar?
„Auðvitað, ég verð á skrifstofunni
þegar þið komið."
Ættum við að ákveða tíma eða
hvað?
„Auðvitað, þegar þú kemur til
London, hringdu þá í mig."
Er einhver dagur hetri en annar?
„Hvað viltu eiginlega
gera, viltu láta fé inn í bankann eða
hvað?“
Þetta er nokkuð sem ég vil ekki
tala um ígegnum símann, ekkifara út
ínein smáatriði.
„Þú ert með netfangið mitt, af
hverju sendirðu mér ekki tölvupóst?
Þá getur þú sent mér tölvupóst áður
en þú kemur til London."
Svo stafaði hann netfangið fyrir
blaðamann.
Geturðu gefíð mér leiðbeiningar,
hvernig kemst ég að skrifstofunni í
lest eða leigubO?
„Veistu hvað vinur, þegar þú kem-
ur til London, þá hringir þú í mig og
við gerúm ráðstafanir til að sækja þig
hvar sem þú ert, eða þú kemur til
okkar."
Allt í lagi, ef ég er í Uxbridge, þá
fínn ég bara heimilisfangið, er það
ekki? Það er 14 á High
street í Uxbridge er það ekki?
Þama slitnaði símtalið.
Blaðamaður hringdi aftur og karl-
maðurinn með kvenmannsröddina
svaraði aftur. Röddin sagðist gefa
samband og aftur heyrðist eins og
slegið væri nokkrum sinnum á
hnappaborð símans. Þá var Norman
mun fámálli en áður, sagðist vera
upptekinn en ítrekaði að best væri að
hringja þegar komið væri til London.
Daginn eftir sendi blaðamaður
tölvupóst til mannsins sem kallaði sig
Norman Hood. Þar lét hann vita að
hugsanlega kæmust íslendingarnir
fyrr til London en áætlað hefði verið.
Svar barst þar sem Norman Hood
sagðist ekki geta hitt nokkurn nema
vita hvernig hann hefði komist yfir
nafii hans og netfang. kgb&dv.is
FEBRÚAR 2003: Sigvaldi
Gunnlaugsson kynntist Nf-
gerfumanninum Abiola
Willians. Hann sendi hon-
um tölvupóst með ósk
um samstarf og sagðist
vera bankastarfsmaður í
Seðlabanka Nfgerfu. Sigvaldi
svaraði og atburðarásin
hófst.
Sigvaldi Gunnlaugsson, 35 ára Dalvíkingur, hefur lagt stórfé í
að ná 20 milljónum dollara út úr banka í Höfðaborg. Átti að fá
300 milljónir íslenskra króna fyrir að hjálpa Nígeríumannin-
um Abiola Williams að koma 1,5 milljörðum króna til Kanada.
Millifærslur í gegnum sparisjóð á Vestflörðum. Blekkingar-
vefur í London og Dalvíkingurinn er fórnarlamb svikamyllu.
25. MAÍ2004.Tavo
Khumalo staðfestir að 20 millj-
ónir dollara hafi farið frá bank-
anum f Suður-Afrfku til sam-
starfsbanka f Bretlandi.
Hann minnir Sigvalda á að
greiða inn á bankareikning
Chen Menghsun fTapei f
Tafvan þá 100 þúsund dollara
sem um hafi verið samið.
„Mundu bróðir samkomulag
okkar".
þess að neitt bóli á umbun hans sem
átti að vera fjórar milljónir dollara.
Nígeríumaður
Upphaf þessa máls má rekja til
þess að Sigvaldi, sem undanfarið
I 25. MAf 2004. iooo
^^^dollarar sendir frá
Sparisjóði Bolungar-
llgíjgji víkur til Höfðaborg-
ar. Viðtakandi var
Mathega Priscilla.