Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2004, Side 18
78 FIMMTUDACUR 24. JÚNÍ2004
Fréttir 0V
• Olof Mellberg, fyrirliði sænska
landsliðsins, sagði í gær að ítalir
gætu eingöngu kennt sjálfum sér
um að vera fallnir úr keppni á
Evrópumótinu í Portúgal. Svíar
gerðu jafntefli, 2-2, við Dani og
gerðu úrslit leiksins, Ítalía -
*- Búlgaría, þýðingarlausan. ítalir voru
með jafnmörg stig og Danir og Svíar
en skoruðu fæst mörk í
innbyrðisviðureignum liðanna
þriggja. „Liðin hafa örlög sín í
mótinu í eigin höndum þegar mótið
byrjar og ítalir hafa einfaldlega ekki
gert nóg til að komast áfram. Allt tal
um svindl er bull og ekki vert að
svara," sagði Mellberg sem viil helst
mæta Lettlandi í átta Uða úrslitum.
• Morten Olsen, þjálfari danska
landshðsins í knattspyrnu, blæs
einnig á sögusagnir þess efnis að
hans menn og Svíar hafi spilað upp
á 2-2 jafhtefli í leiknum á þriðju-
dagskvöld, jafntefli sem kom
báðum liðum áfram. „Alhr sem sáu
leikinn tóku eftir því að enginn
reyndi að ná fram ákveðnum
úrslitum," sagði Olsen og kallaði
ásakanirnar fáránlegar. Franco
Carraro, forseti ítalska knatt-
spyrnusambandsins, sagði eftir
leikinn að eins og leikurinn hefði
þróast þá var það ljóst að bæði liðin
stefndu að jafntefli. Jon Dahl
Tomasson, sem skoraði bæði mörk
Dana í leiknum, sagði þessi orð
Carraro bull og að bæði liðin hefðu
spilað til sigurs. „Það voru aðeins
síðustu þrjátíu sekúndur leiksins
sem leilonenn liðanna voru varkárir
- annars var spilað á fullu," sagði
Tomasson.
• Otto Rehhagel, þjálfari gríska
landsliðsins, hefur sagt sínum
mönnum að fá ekki martraðir þótt
þeir séu að fara að mæta stjörnum
prýddu liði Frakklands í átta liða
úrslitum Evrópumótsins á morgun.
„Ég sagði við strákana mína í gær
að þeir þyrftu ekki að vera hræddir
þótt þá dreymdi Henry eða
Lizarazu. Við vitum meira um
Frakkana en til dæmis rússneska
liðið og það hjálpar okkur. Við
vitum að Frakkar eiga marga af
bestu leikmönnum heims en við
mætum með sama kraftinn og
sömu ástríðuna í þennan leik og
hina leikina á þessu móti. Ég hef
engar áhyggjur af þessu því að við
höfum aÚt að vinna en engu að
tapa," sagði Rehhagel.
tómatsósa
Það skipti engu máli þótt Tékkar hvíldu níu leikmenn úr byrjunarliðinu í fyrstu
tveimur leikjunum þegar liðið mætti Þjóðverjum í lokaumferð riðilsins í gær.
Framherjinn Marek Heinz, sem kom inn á sem varamaður gegn Lettum og skoraði,
var í byrjunarliði Tékka að þessu sinni og hann þakkaði pent fyrir sig með því að
skora fýrra mark liðsins og leggja upp það síðara. Þjóðverjar sitja eftir með sárt ennið
en HoÚendingar, sem unnu Letta, 3-0, standa í þakkarskuld við Tékkana því sigur
þeirra gerði það að verkum að Hollendingar fylgja þeim.
„Við getum þakkað Tékkum fyrir að vinna
Þjóðveija fýrir okkur. Við heyrðum það á
viðbrögðum stuðningsmanna okkar að Tékkar
hefðu skorað annað mark og það gaf okkur
aukaorku á lokamínútum leiksins," sagði Philip
Cocu, fýrirliði hollenska landshðsins, eftir að
hann og félagar hans höfðu tryggt sér sæti í átta
liða úrsUtum Evrópumótsins þar sem þeir mæta
Svíum á laugardaginn.
HoUendingar höfðu mikla yfirburði gegn
Lettum og gerðu út um leikinn á stuttum kafla í
fyrri hálfleik. Þá skoraði markahrókurinn Ruyud
van Nistelrooy tvívegis, fyrst úr vítaspyrnu á 27.
mínútu eftir að brotið hafði verið á Edgar Davids
og síðan með skaUa af stuttu færi á 34. mínútu.
Eftir það var aðeins spurning hversu stór
sigurinn yrði og það kom síðan í hlut annars
markahróks, Roy Makaay, sem leikur með
Bayem Múnchen, að guUtryggja sigur
HoUendinga sex mínútum fyrir leikslok. Makaay
kom inn á sem varamaður í fyrsta sinni í mótinu
tólf mínútum áður fékk góða sendingu frá Arjen
Robben og afgreiddi boltann af öryggi í netíð.
sigurinn staðreynd og HoUendingar fögnuðu
gífurlega eftír að ljóst var að Tékkar höfðu unnið
Þjóðverja.
Skoruðum ekki mörk
„Okkar aðalvandamál í mótínu var að við
skoruðum ekki mörk. Við fengum fuUt af
tækifærum en komum ekki boltanum inn í
markið. Við höfum spUað verri leiki á síðustu
árum en samt unnið. Tékkar spUuðu með
varalið sitt en samt var það ekki nóg. Við gerðum
okkar besta en því miður dugði það ekki að
þessu sinni. Nú verðum við að horfa tíl framtíðar
og vinna betur fram að heimsmeistara-
keppninni í Þýskalandi eftir tvö ár. Ég ætla ekki
að ásaka neinn. Allir gerðu sitt besta en það
dugði því miður ekki," sagði Michael BaUack,
markaskorari og bestí maður Þjóðverja, eftir
leikinn gegn Tékkum í gær.
Tékkar með mikla breidd
Tékkar geta verið ánægðir með sig eftír að
hafa lokið keppni í D-riðli, hinum svokaUaða
„Dauðariðli" með fuUu húsi stíga. Þeir lentu
undir í öUum þremur leikjunum en komu tU
baka og unnu þá aUa. í gærkvöld stiUtu þeir upp
varaliði sínu og sýndu og sönnuðu að þeir eru
með aragrúa góðra leikmanna. Einn stóð þó
upp, framherjinn ljóshærði Marek Heinz, sem er
á góðri leið með að gera Heinz nafnið vinsælt
fyrir annað en tómatsósu. Heinz skoraði
stórkostlegt mark úr aukaspymu þegar hann
jafnaði metin fýrir Tékka eftír hálftíma leik og
það var hann sem lagði upp markið fyrir MUan
Baros, markið sem skaut Þjóðverja endanlega út
úr keppninni. Tékkar mæta Dönum í átta Uða
úrsUtum keppninnar á sunnudaginn og miðað
við spUamennsku Uðanna tveggja
það sem af er keppninni má búast
við hörkuleik.
Rudi VöUer, þjálfari þýska
Uðsins, sagðist vonast eftir því að
þjálfa þýska liðið áfram.
„Ég verð að vera raunsær fyrst að
við duttum út strax. Ég er með
samning tU ársins 2006 og vU halda
áfram mínu starfi. Ég sagði það fyrir
ári að ég myndi ekki hætta og stend
við það. Auðvitað förum við yfir
mótið í ró og næði á næstunni og
sjáum hvað fór úrskeiðis," sagði
VöUer daufur í dálkinn.
oskar@dv.is
Tékkar og Hollendingar eru komnir í átta liða úrslit
Evrópumótsins í Portúgal. Þjóðverjar sitja eftir í
riðlinum eftir tapið í gær gegn varaliði Tékka.
Heinz Ekki
B-riðill M EMífótbolta
(2-0)
Holland 3-0 Lettland
1-0 2-0 Van Nistelrooy, víti (27.) Van Nistelrooy, skalli (35.)
3-0 Makaay, skot (84.) Tölfræðin:
28 Skot 6
16 Skot á mark 2
2 Varln skot markvarSa 13
11 Skot innan teigs 4
9 Horn 3
21 Aukaspyrnurfengnar 15
2 RangstöSur 4
0 Gul spjöld 1
0 RauS spjöld 0
69% Boltl innan IISs 31%
MAÐUR LEIKSINS
Ruud van Nistelrooy, Hollandi
B-ríðill jg EMífótbolta
Þýskaland 1-2Tékkland
1-0 Ballack, skot (21.)
1 -1 Heinz, aukaspyrna (30.)
1-2 Baros, skot (77.)
Tölfræðin:
17 Skot 8
10 Skot á mark 6
4 Varin skot markvarða 9
8 Skot innan teigs 4
9 Horn 1
20 Aukaspyrnurfengnar 24
5 Rangstöður 2
3 Gul spjöld 1
0 Rauð spjöld 0
58% Bolti innan IISs 42%
MAÐUR LEIKSINS
Marek Heinz, Tékklandi
r