Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1981, Blaðsíða 22

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1981, Blaðsíða 22
Var því lagður annar 3x16 mm2 Cu- strengur meðfram nýrri vatnsæð að gjánni og holu 5, en þaðan var lagður 3x95 mm' álstrengur til Fitja. í spennistöðinni í dæluhúsinu er auk spenna fyrir 660 V dælumótora og spennis fyrir venjulega notkun á 400 V gert ráð fyrir rofavirki til tengingar við Rafveitu Njarðvíkur og rými fyrir einn dreifispenni RN. í upphafi er gert ráð fyrir 600 kW dæluafli í stöðinni en með tímanum mun það væntanlega aukast upp í 1200 kW. Þegar svo er komið, annar streng- urinn á milli ekki lengur orkuþörfinni á 6,3 kV spennu. Þá er ráðgert að hækka spennuna á kerfinu í 11 kV með því að setja tvo 1200 kVA 6,3/11 kV spenna við OV 2 í Svartsengi. Til tengingar við kerfi Rafveitu Njarðvíkur er gert ráð fyrir einum 1000 kVA millispenni, ef ekki verður búið að breyta þvi i 11 kV þegar að þessu kemur. 5. ORKUVER 2 í orkuveri 2 eru 6,3 kV safnskinnur sem tengjast: 8 : — orkuveri 1, eins og áður er getið (HR8) — 1200 kVA 6,3/0,69 kV spenni fyrir dælur (HR9) — 315 kVA 6,3/0,4 kV spenni fyrir aðra notkun (HR10) — háspennukerfinu fyrir kaldavatns- dælingu og dælustöð á Fitjum (HR 11). Eins og áður er sagt er þetta kerfi nú rekið á 6,3 kV spennu. Síð- ar er fyrirhugað að hækka spenn- una í 11 kV og verða þá settir tveir millispennar 6,3/11 kV, hvor 1200 kVA að afli. Samsvarar það flutn- ingsgetu strengjanna. — orkuveri 3 (OV 3), (þ.e. raforkuveri 2 (ROV 2)), með 2 x 3 X 240 mm2 eir- streng (HRI2). í orkuveri 2, dælustöð á Fitjum og spennistöðvum 2 og 3, er notuð 660 V spenna til að knýja dælur í stað 400 V spennu sem er venjuleg hér á landi. Þessi spenna reyndist verulega hag- kvæmari en 400 V vegna grennri strengja og þó sérstaklega vegna ein- faldari ræsibúnaðar. 6. ORKUVER (Raforkuver 2) í raforkuveri 2 er 6 MW (7,5 MVA) gufuhverfilssamstæða. Hún tengist 6,3 kV safnteinum (HR19) sem aftur tengjast 33 kV kerfi Rafmagnsveitnanna gegnum 10 MVA 33/6,3 kV spenni (HR18). Að auki er samband við safnskinnur í orkuveri 2 eins og áður getur (HR17). Hagkvæmnisreikningar, sem gerðir voru fyrir Hitaveitu Suðurnesja, sýndu, að 6 MW aflvél mundi verða hentugasta vélastærð með tilliti til nýtingar gufu frá orkuveri 2, sem rekið yrði í samræmi við heitavatnsþörf á hverjum tíma. Orkuvinnsla í Svartsengi sem þessu nemur mun auk þess að veita orku til kerfisins, hafa þann kost, að spennu- ástand flutningskerfisins til Suðurnesja mun batna og hægt er að fresta um all- mörg ár lagningu nýrrar flutningslínu þangað. Mynd 1. Hitaveita Suðurnesja. — Háspennukerfi, einiínumynd. 14 — TÍMARIT VFÍ 1981 L.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.