Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1984, Blaðsíða 31
Ef þú málar meÓ STEINAKRÝLI frá Málningu hf
þarftu ekki að bíða eftir málningarveðri!
Frábærar niðurstöður íslenskra sérfræðinga.
Efnaverkfræðingar MÁLNINGAR h/f hafa staðið fyrir
víðtækum prófunum á STEINAKRÝLII rúmlega þrjú
ár. Niðurstöður þeirra eru m.a. þær, að STEINAKRÝL
er hægt að nota á flestum árstímum og STEINAKRÝL
er endingargóð útimálning. STEINAKRÝL er þv(
einstaklega hæf fyrir íslenskar aðstæður.
^uftsmitandi fletir valda ekki lengur erfiðleikum.
Með STEINAKRÝLI geturðu málað beint á duftsmitandi
ffeti án þess að eiga á hættu flögnun málningar, sem
er óhugsandi með hefðbundinni plastmálningu.
ffigningarskúr er ekkert vandamál.
STEINAKRÝL erterpentínuþynnanleg málning, sem
er óvenjulega hæf fyrir íslenskar aðstæður STEIN-
AKRÝL endist. Rigningarskúr skiptir litlu máli, þú færð
Þér bara kaffisopa á meðan rigningin gengur yfir - og
heldur svo áfram að mála; STEINAKRÝL þolir
rigningu fljótlega eftir málun.
'málningL
Nú geturðu málað í frosti.
Yfirburðakostur nýju útimálningarinnar frá MÁLNINGU
h/f er einfaldlega sá, að þú þarft ekki lengur að hafa
áhyggjur af veðrinu. STEINAKRÝL er akrýlbundin
útimálning með sléttri áferð. Þú getur málað með
STEINAKRÝLI við mjög lágt hitastig. Jafnvel í 10
gráðu frosti (celcius) ef þú endist til að mála í svo
miklum kulda. STEINAKRÝL ENDIST!
STEINAKRÝL
- málningin sem andar
málning