Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1984, Síða 8

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1984, Síða 8
Jarðeðlisfræðilegum mælingum er mikið beitt við yfirlitsrannsóknir, þegar þarf að fá heildarmynd á fremur ódýran hátt, oft á kostnað nákvæmni. Mynd 10 sýnir helstu tegundir slíkra mælinga sem að gagni koma vegna neðanjarðar- mannvirkja. Þar kemur fram sú sér- staða þeirra, að þær gefa vísbendingu unt ákveðin atriði, en mæla þau ekki beint. Fyrir utan hljóðhraðamælingar (seismic) sem getið var að ofan má nefna segulmælingar þar sem segulsvið jarðlaganna er mælt. Segulsvið yfir berggöngum er ntjög einkennandi og sjáist slíkt í mælingu má staðsetja berg- ganginn án þess að önnur vitneskja um tilvist hans liggi fyrir. Nýlega er farið að beita hér svokölluðum VLF-mælingum (Very Low Frequency), sem geta bent á vatnsleiðandi brotalínur (Þorsteinn Egilsson 1983). Einnig hefur verið beitt fljótvirkum spanviðnámsmælingum (electro magnetic resistivity profiling) sem mæla þykkt yfirborðslaga á mjög ódýran hátt (Kristján Ágústsson 1984). Jarðeðlisfræðimælingar eru því oft nefndar óbcinar mælingar og fylgja þeim bæði kostir og gallar. Almennt eru þetta fremur ódýrar mælingar, sem beitt er á fyrri stigum rannsókna til að fá grófa heildarmynd, sem síðan er fyllt inn í með nákvæmari og dýrari rann- sókn. Jarðeðlisfræðilegum mælingunt er einnig bcitt i borholum á síðari rann- sóknarstiguni, sjá borholumælingar í kafla 3.4 og töflu á mynd 26. 2.3 Grunnar horanir Djúprannsóknir vegna jarðganga eru aðallega kjarnaboranir og rannsóknir tengdar þeint, en eftir að lega væntan- lcgra jarðganga er orðin nokkurn veginn Ijós er oft beitt grunnum cobra- og loftborunum við væntanlega ganga- munna, auk þess sem gryfjur eru grafn- ar þar með gröfum eða ýtum og bergið e.t.v. sprengt til könnunar ef þurfa þykir. Á cobrabornum, sem vegur aðcins 25 kg, er bensínvél og hver sprenging í hcnni slær aukastimpli niður á hnall efst á borstöngunum. Þetta nægir til þess að reka 25 mm sverar stangir niður í laus jarðlög, sjá ntynd 11. Lagskipting finnst eftir því hve hratt stöngin gengur niður, allt niður á ”fast” (Birgir Jónsson 1978). Loftborar Itafa aðallega verið notaðir til þess að bora sprengiholur í fast berg við alls kyns mannvirkjagerð. Borunin fer þannig fram að borkrónunni er bæði snúið og hún barin niður mcð aflmikl- um lofthamri, scm annað hvort er lestur við bormastrið eða neðst á borstanga- lengjuna fyrir ofan borkrónuna. Loftborar geta verið afkastamikil og hentug tæki til að auðvclda tengingu milli kjarnahola, sem yfirleitt eru nokk- uð dýrari. Með því að mæla bor- hraðann fyrir hvern metra má fá nokkra hugmynd um hörku jarðlaganna (mynd 12). Einnig eru tekin sýni úr svarfinu, sem berst upp úr holunni, og er yfirleitt hægt að greina jarðlögin eftir þeint (Birgir Jónsson 1978). Oft eru þessir borar með útbúnaði til þess að bora niður fóðurrör gegnum laus yfirborðslög (t.d. OD eða ODEX), svo að hoian hrynji ekki saman. Getur Mynd 4. Jarðfrceðikorl og jarðlagasnið ár innanverðum Fljólsdal. Neðanjarðarvirki Fljóls- dalsvirkjunar verða auslan jarðlagasniðsins, nálcegl Hóls- og Teigsbjargi (Ág. Guðm. 1978). Mynd 5. Sprungurós sem sýnir helstu sprungiislefniir i ið neðanjarðarvirki BlOnduvirkjiinar. lieyni er að lúta slærslu hvelfinguna, slöðvarliellinn, smia þvert á sprtmgurnar og sama gildir fyrir önniir göng eftir þvi seni við verður komið. 24 — TI'MARIT VFÍ 1984

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.