Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1984, Qupperneq 10

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1984, Qupperneq 10
eru beindrifnir (sjá mynd 15). Mikil sjálfvirkni er komin í útbúnað til þess að skrúfa stangir sundur og saman aftur og raða þeim í grind við hlið bormasturs- ins. Sparar þetta mikla vinnu. Meðan lítið er vitað um jarðfræði svæðis þarf að staðsetja borholur þannig að þær gefi sem mestar upplýs- ingar um legu jarðlaganna og hægt sé að tengja jarðlögin á milli holanna eða úr holu í bergopnur á yfirborði. Eftir- farandi atriði ætti að hafa í huga varð- andi kjarnaboranir: 1. Ekki byrja kjarnaboranir fyrr en búið er að beita ódýrari aðferðum á yfirborði eins og hæfilegt þykir. 2. Fyrstu holuna skal bora þar sem mest óvissa er í jarðlagalíkani mann- virkjasvæðisins eða þar sem yfirborðs- athuganir benda til að rannsaka þurfi nánar. Oft er ekki rétt að bora fyrstu holuna nákvæmlega þar sem talið er við fyrstu sýn að væntanlegt mannvirki verði. 3. Þar sem landslag og erfiðar aðstæður ráða oft miklu um staðsetn- ingu borhola, þarf að nota hentug bor- tæki sem eru auðveld í flutningi. Borstjórar færa skýrslu um borverkið fyrir hvern dag eða hverja vakt. Þar er oft að finna mikilvægar upplýsingar fyrir túlkun á eiginleikum jarðlaganna, t.d. borhraða eða lit og hegðan skol- vatns. Sérstaklega eru mikilvægar upp- lýsingar um hvernig vatnsstaða breytist í holunni við borun og þarf að mæla dýpi á vatn hvenær sem hlé er á boruninni. Allur kjarni sem upp kemur úr hol- unni er greindur nákvæmlega og Ijós- myndaður (mynd 16) og lýsing hans færð á sérstök eyðublöð (mynd 17). Þar eru skráðar hæðir á lagamótum og vatnsborði, lýsing jarðlaga, kjarna- heimta, hve sprungið bergið er, lekt o.n. 3.2 Berggæðamat Framar í þessari grein var minnst á að meta má berg sem jarðgangaberg með vissum aðferðum. Þessu berggæðamati má beita á yfirborði ef góðar opnur eru í bergið, en annars er því beitt á bor- kjarna frá viðkomandi jarðgangaleið. Helstu berggæðamatskerfi sem notuð hafa verið á síðustu árum eru (Hoek og Brown 1980): 1. Suður-Afríkukerfið (CSIR Geo- mechanics Classification), (Bieniawski 1974). 2. Norska kerfið (NGI Tunnelling Quality Index, eða Q-system), (Barton o.lT 1974). Berggæðamatskerfin eru mjög nyt- samleg, sérstaklega meðan á undir- búningsrannsóknum stendur til þess að: 1. Bera saman berg á mögulegum gangaleiðum. 2. Áætla styrkingar í væntanlegum neðanjarðarvirkjum. Berggæðamatskerfin má hins vegar alls ekki nota ein sér til að: 3. Ákveða styrkingu í neðanjarðar- virki í byggingu. Styrkingu í jarðgöngunt og öðrum neðanjarðarvirkjum á að ákveða eftir aðstæðum sem koma í ljós eftir að gangagerðin er hafin. Hér á landi hefur aðallega verið beitt norska kerfinu (Björn A. Harðarson 1984) og hér á eftir er lýst hvernig það er . x*,. _ - - 'asi&imi i -•• -•••’•*— r*rr .• : • _* -ru-. •■: , .fíZr * ■‘■sit.*' . . ; ■' ■. ''Tr:"-1:". Mynd 8. Hljóðhraðamcelingum (seismic) beill við könmm á þykkt lausra jarðlaga á mögulegri skurðleið frá frárennslisgöngum Bessastaðaárvirkjunar í Fljólsdal. í baksýn er Valþjófs- staðarfjall, sem hlaðið er upp úr nœr láréttuin basaltlögum frá tertier, sums staðar með set- bergslögum á milli. HLJÓOHRAÐI í KM/S I---1--1— yfirborðslog LEIR STORKUBERG GRANÍT BASALT MOBERG SETBERG FLÖGUBERG ISHALE) SANDSTEINN SILTSTEINN LEIRSTEINN VÖLUBERG (CONGL.) PURSABERG(BRECCIA) ■^JÖKULB. OG JÖKULRUÐN RIPPANLEGT J L 2 -1---1 I L. 3 4 -J—I I I I I I I 3 EKKI RIPPANLEGT KXWWVT) AÐ MESTU BYGGT Á CATEPILLAR PERFORMANCE HANDBOOK ED 10 MYNDIN ER ÖRLÍTIÐ LÖGUÐ AO ÍSLENSKUM AOST/EÐUM (■*■). BREYTINGIN BYGGIR EKKI Á SKIPULEGRI GAGNASÖFNUN OG SKAL TEKIN MEÐ FYRIRVARA. E 81.06.0799 Mynd 9. Hljóðhraðamœlingar geta bent á vinnsluhœfni mismunandi jarðlaga, þ. e. Iivort jarðýta með riftönn (hér Cat. 9) vinnur á berginu, eða beita þarf sprengingum. 26 — TÍMARIT VFÍ 1984

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.