Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1984, Side 15

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1984, Side 15
seinni mælingar. Við hilamælingar í borholum vegna neðanjarðarmann- virkja eru notaðir viðnámshitamælar sem virka allt upp í 150° C. Hita- mælingar og mismunahitamælingar benda á helstu vatnsæðar, þ.e. helstu lekastaði, í holunni. Oft hefur þeirra orðið vart meðan á borun stóð, en dýpi þeirra e.t.v. ekki nákvæntlega þekkt. Straummæling hjálpar einnig við að meta vatnsæðarnar, þ.e. hverjar gefa vatn og hvort og hve mikið lekur á milli þeirra, sem bendir á mismunandi vatns- þrýsting í aðskildunt grunnvatns- kerfum. Þrýstimælingar, þ.e. vatns- borðsmælingar í borholunni eru mjög mikilvægar meðan á lektarprófum stendur (sjá nánar síðar), því vatnsborð- ið í holunni er þá ntikið á hreyfingu. Halla- og stefnumælingar eru nauð- synlegar sérstaklcga i djúpum holum og skáholunt til að gefa nákvæma staðsetn- ingu holunnar í þrívíðu rúmi, en það er mikilvægt fyrir gerð nákvæms jarðlaga- líkans af gangaleiðinni. Vatnssýni úr ýmsum vatnsæðum sem gefa e.t.v. mismunandi efnainnihald og samsætur benda á fleiri en eitt grunnvatnskerfi sent holan sker. Nú á siðustu árum hcfur það færst í vöxt að mæla ýmsa eðliseiginlcika bor- holuveggjanna, svo sem viðnám, rúm- þytigd, grop og geislavirkni bergsins. .larðeðlisfræðilegar mælingar eru Mynd 15. Kjarnaborar: A) Kjarnaborinn Dugandi að bora tœplega 400 m djúpa skáholu (45°) á mögulegri fall- gangaleið Blönduvirkjunar. Byggja þurfti sérslakt hliðarmastur fyrir skáborun. B) Einföld skýringarmynd af fremur litlum kjarnabor. mastur einnig í reynd viss greining á bergteg- undum. Náttúruleg gamma geislun bergs er nokkurn veginn í beinu hlutfalli við kísilsýruinnihald (Si02) bergsins, svo þær mælingar sýna nákvæmlega hvar í holu eru súr eða ísúr jarðlög. Svipaðar upplýsingar fást einnig ntcð þvi að ntæla samtímis grop og rúmþyngd borholu- veggjanna. Grop er mælt á þann hátt að í borholumælitækinu er geislavirkt efni sent sendir út nifteindir, auk þess sem þar er einnig nifteindanemi sent skráir hvernig nifteindirnar dreifast og end- urkastast frá berginu (neutron-neutron mæling). Nifteindirnar, sem eru álíka þungar og kjarninn i vetnisatóminu, eru TÍMARIT VFÍ 1984 — 31

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.