Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1984, Side 17

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1984, Side 17
ingu er liætt. Ef fleiri en einn vatns- leiðari finnst í holunni er hægt að loka á milli þeirra með pakkara og mæla þrýstihæð í hverjum leiðara fyrir sig (Snorri Zóphóníasson 1983, Þórólfur H. Hafstað 1983). 3. Dæluprófanir: ídæling ódýr, — úr- dæling dýrari, — geta mælt mikinn leka, — ntæla lekt við dæluholu og væntanleg afköst holu. Dælt er úr holu eða í hana sífcllt meira vatni í ákveðnum þrepum, stund- um i langan tíma, og fylgst með vatns- borðsbreytingum í holunni og nálægum holum ef unnt er (Jón Ingimarsson 1983). Lekateiðir við mismunandi jarðfrœði- legar aðstœður: Erfitt er að alhæfa um lekaleiðir í mismunandi jarðmyndunum en hér á eftir er minnst á helstu lekaleiðir sem búast má við hér á landi í jarðlögum frá ýmsum aldri. Leggja ber áherslu á að nákvæmt jarðlagalíkan skiptir höl'uð- máli til þess að hægt sé að setja upp gott grunnvatnslíkan og saman eiga þessi líkön að benda á mögulegar lekaleiðir. Tertiert berg. Yfirleitt er tertíert berg orðið mjög þétt vegna útfellinga í gropum og sprungum og lekaleiðir því oftast eftir brotalínum og misgengjum sem myndast hafa síðar, þótt aðrar lekaleiðir kunni að vera enn opnar t.d. lagamót. Þetta kemur fram þannig að á einstaka stað í borholum lekur mikið en e.t.v. lítið þar á ntilli. Misgengin geía líka verið þétt vegna ummyndunar, samlímdrar misgengisbreksíu og sprungufyllinga. Nokkrir aðskildir vatnsleiðarar, sent afmarkast af vatns- heldunt setlögum að ofan og neðan og þéttri misgengisbreksiu til hliðanna geta því verið til staðar. Á jarðgangaleiðum bæði Blöndu- og Fljótsdalsvirkjunar finnast slíkar aðstæður, en þar eru þó yfirleitt aðallekasvæðin bundin við brotalínur, sjá ntynd 28. Ár og miðkvartert berg. Þetta berg er yfirleitt orðið nokkuð þétt vegna holu- og sprungufyllinga, en óregla vegna upphleðslu móbergsmyndana eykur einnig á óvissu um lekaleiðir. Brotahnur og ntisgengi í þessum jarðmyndunum hafa yfirleitt sömu áhrif og í tertíeru bergi, þ.e. annað hvort hindra grunn- vatnsstreymi þvert á brotflötinn, eða beina vatni eftir brotasvíeðinu, sé það ennþá nógu opið. Til dæmis var eini lekinn í jarðgöngunum við Laxárvirkj- un (Laxá III) um sprungur (30-40°C) en einnig lak töluvert af köldu vatni úr yngra móbergi sem er fyrir ofan jarð- göngin niður um borholur og loku- stokk. Mestur hluti Búrfellsganga er ofan grunnvatnsborðs en í þrýstigöng- unum nálægt stöðvarhúsi lak dálítið um sprungur. Síðkvartert berg. Þetta berg er það ungt að það hefur litið þést vegna útfell- inga og reynt er að forðast að velja neð- anjarðarmannvirkjum stað í slíku bergi. Leki er því að miklu leyti eftir upp- haflegum lekaleiðum í berginu, t.d. í bólstrabergi og í basaltlögum er mikill leki bæði í lagamótakarga og eftir stuðlasprungum. í þessu bergi eru brotalínur auðvitað einnig mögulegar lekaleiðir sérstaklega nálægt virkum svæðum t.d. við Dettifoss. Setbergslögin í þessum jarðmyndun- unt eru cinnig mjög mislek, t. d. eru fín sandsteins-, siltsteins- og túfllög yfirleitt þétt en völuberg og jökulberg Dog*«tnm( Gart of___ Hc^’j holu J l~TvW. I^i?' JSB________ 3V0.9 VIRKJUNARSTAOUR f’sultrvrtavigiwivUju.v' Hmt X y dí0i.??8iT BOR HOLUSNK) sio6„. S&wh&tli C O C W § X A GREINING «5 O JVB LEKT PERME- Borholo nr CL A SS/F/CA T/ON c tr GWT ABILITY BIOÓ Ot ^ ki o * LU | Mynd 17. Allur borkjarni er greindur nákvœmlega og upplýsingarnarfœrðar á eyðubtaöið til vinstri. Aðalatriðin af því eyðublaði sjást síðan í einfaldara fortni á myndinni til hœgri (dýpi 96-106 m), en þannig birtast kjarnalýsingarnar í fjölfölduðutn skýrslum og átboðsgögnum. TIMARIT VFÍ 1984 — 33

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.