Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1984, Blaðsíða 32

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1984, Blaðsíða 32
3.2 Aðrennslisgöní> Umfangsmesta verkið við jarðganga- gerðina var að sprengja aðrennslis- göngin. Byrjað var á því að sprengja út rými við endann á aðkeyrslugöngununi til að setja saman borvagninn (drill Jumbo) og var því lokið í árslok 1966. Verktakinn valdi að sprengja göngin í fullt þversnið og notaði til þess sérsmíð- aðan borvagn. Borvagninn var ntikið tæki með fjórum vinnupöllum og slcð- um fyrir borvclar. Við borun voru not- aðar 10 BBC 24W borvélar ntcð ýmist kcðju- eða loftfærslu og 2 BBC 16W handborar. Borvagninn var á gúmmí- hjólum og var ýtt til með hjólaskóflu. Að jafnaði unnu 8 manns við borun og hleðslu á hvorri vakt. Á mynd 5 er sýnt það bormynstur sem verktakinn valdi í byrjun. Opnun var plógkíll með 30 liolum og bordýpt 5,6 m og áætluð inndrift 5,0 m. Alls voru boraðar 79 holur og í botnhleðslu notað dýnamít en nabít í súlu. I hvern salva fóru 370 kg af sprengiefni, þar af 137 kg í kíl og losaði það um 450 m' af bergi, sem gefur meðalsprengiefnisnotk- un 0,83 kg/nr'. Boraðir voru 422 bor- metrar sem gefur 0,95 bormetra/m' bergs. Þetta bormynstur reyndist ckki alltaf sem best, einkum í breksíulögun- um og síðar var borholum fjölgað í 97 til 110 cftir aðstæðum á hverjum stað. Kílholum var fjölgað í 36 og nteðal sprcngicfnisnotkun i salva fór yfir 1,0 kg/m'. Vinnsla aðrennslisganganna gekk al’ ýmsum ástæðum hægar en áætlað var. I byrjun voru erfiðleikar við notkun bor- vagns og reyndist nauðsynlegt að slyrkja hann og endurbæta. Breytilegt berg og breksiumillilög sent oft voru í stafni (face) ollu erliðleikum við borun og hleðslu og sífellt þurfti að aðlaga bormynstur slíkum aðstæðum til að fullur árangur næðist við sprengingu. Talsverðar tafir urðu vegna styrkinga bæði í tveirn sprungusvæðum og einnig 1 greiningu, en þar var auk mikillar bolt- unar komið fyrir steyptri súlu þegar vídd ganganna fór yfir 13,5 m. Að þess- um svæðum undanskildum var stæðni bergsins góð og vatnsagi var lítill. Nú verður vikið nokkru nánar að sprengingu ganganna og bráðabirgða- styrkingum og er framvindan sýnd á mynd 6. Janúar/Mars 1967: Gröftur aðrennslis- ganganna hófst við enda aðkeyrslu- ganganna við stöð 866, en þar höfðu göngin áður verið sprend í fulla breidd og hæð milli stöðva 845 og 897. Unnið var i báðar áttir, fyrst með ca. 35 m2 byrjunargöngum að stöðvum 798 og 991, sem síðan voru víkkuð í fullt snið niður að stöð 991. Við lok tímabiisins voru 106 m af göngunum komin í fullt þvcrsnið, auk þess 87 m af byrjunar- göngum, sent samsvarar að 14% af verkinu væri lokið. Apríl/Júní 1967: Áfram var unnið í báðar áttir og lokið við göng niður að greiningu í stöð 1064,6 og byrjað á vinnslu á láréttum þrýstigöngum nr. 1. í efri enda voru göng komin í fullt þver- snið að stöð 700 og þar með var 31% búið af göngunum. Júlí/September 1967: Á þessu tínra- bili var aðallega unnið á milli stöðva 700 og 530 og þessi 170 m kafli sprengdur í fullt snið. Miðaði verkinu nokkuð vel í 2 mánuði þar til það stöðvaðist í sprungusvæði F-2 við stöð 530. Sprungusvæðið er óreglulega brotið á margra tuga metra belli. Meginsprungur eru i stefnu sprungusvæðis, en auka- sprungur víkja mjög frá þessu og eru mjög hallandi. Þetta olli lélegri stæðni og hruni úr þekju. Þegar hér var komið urðu tafir á verki um tíma meðan beðið var eftir stálbogum til styrkingar sent eftirlitið krafðist að settir yrðu upp og 48 — TÍMARIT VFÍ 1984

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.