Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1926, Side 110
hans, mad. Kristjanu Jónsdóttur, að skrifa Birni presti
Halldórssyni1) í Garði og segja honum frá námfýsi
Bergs og gáfum, og með því síra Björn hafði pá til
margra ára verið við skólakennslu, hafði nokkur
áhöld til þess, en þótt mörg að láni, og var því álit-
inn einhver sá bezti kennari í því plázi, bað síra
Jón Björn prest Halldórsson að taka Berg pilt Guð-
mundsson til kennslu af Hvammshjónum. Siðan
undirbjó sira Jón hann lítið eitt um vorið í 7*/3
viku, svo sem að koma honum niður í dönsku, en
annarslags bækur til kennslu hafði hann þá ekki,
við hvað lærdómslyst örvaðist svo mjög hjá Bergi,
að hann um sumarið strax, þann 28. Julii, skrifaði
bréf Birni presti Halldórssyni í Garði í Kelduhverfl
sama efnis, hvar upp á hann fekk andsvar frá presti,
daterað 1. Septembris s. á., hvar í hann sagði Bergi
standa frítt fyrir að vitja til sín á næslkomanda
hausti. Bréf þetta meðtók Bergur skólapiltur Guð-
mundarson þann 10. ejusdem af mad. Ólöfu Hannes-
dóttur, og fínnst enn nú orðrétt í því svo kallaða
Bréfasafni Bergs scholastici Guðmundarsonar.
Nú á þessu vori, 1825, heflr Bergus Gudmundides
scholasticus verið fjóra vetur til kennslu hjá Birni
presti Halldórssyni í Garði, nema hvað sá fyrsti vet-
ur var lítið eitt skertur. 2) Hóseas Arnason,2) skóla-
piltur hjá sama, frá Sigurðarstöðum á Sléttu, hefir
verið rétta fimm vetur við lærdóm hjá síra Birni.
3) Magnús Jónsson,3) skólapiltur, hefir þar [verið]
sex(?) vetur til kennslu og áður sem svaraði vetri
hjá föður sínum, sira Jóni Stefánssyni, og síðan hjá
síra Vernharði4 5) í Nesi. 4) Mr. Árni t’órðarson,6) hefir
1) d. 1841.
2) Síðast prestur að Berufirði, d. 1861.
3) Vigðist aðstoðarprestur að Sauðanesi 1836 og andaðist þar 1839.
4) P. e. Porkelssyni, síðast presti að Reykholti, d. 1863.
5) Sonur Pórðar á Kjarna, Pálssonar. Árni hélt um tíma hálft
Munkaþverárklaustur og bjó að Arnarnesi; hann andaðist i júni 1857.
(106)