Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2004, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2004, Page 12
Níu tónlistarmenn með átta hljóðfæri skipa hljómsveit sem heitir Nix Noltes og spilar þjóðlög ættuð af Balkanskaga. í haust hefur Nix Noltes haldið tónleika hverja einustu helgi á hinum og þessum stöðum. Hljóm- sveitin vekur einnig athygli fyrir meðlimina, þeir hafa flestir sannað sig rækilega með öðrum sveitum landsins. Stórsveit Nix Noltes: Óli Björn Ólafsson trommari. Kristín Anna Valtýsdóttir, harmonikku- og melódíkuleikari, Páll Ivan Pálsson bassaleikari. Hallvaröur Ásgeirsson rafmagnsgítarleikari. Guömundur Steinn Gunnarsson kassagítarleikari. Gestur Guömundsson rafmagnsgítarleikari. Hiidur Ingveldardóttir Guönadóttir sellóleikari. Ólöf Arnalds fiöluleikari. Áki Ásgeirsson trompetleikari. í skrýtinni hljómsveit „Það þurfa allir að sýna við- leitni til þess að halda hljómsveit- allt: Café Kúltúr er þeirra helsta tekur vel í þetta. Þó að þetta séu vígi, brúðkaup á Þingvöllum þjóðlög sem fæstir hér hafa inni saman. Við erum svo mörg,“ hennar kemur frá fyrsta tón- óvenjulegasti staðurinn og Hótel heyrt.“ segir Óli Björn, trommari Nix Noltes. Óli Björn varð atvinnu- laus í haust og klæjaði svo mikið í finguma eftir sþilamennsku að hann endurvakti þessa stórsveit, sem fæddist í Listaháskólanum fyrir tveimur árum. Frá uppris- unni hefur hún spilað ótt og títt, nú síðast í Austurbæ á þriðjudag- inn. Leikari á smjörsýru Flestir meðlima Nix Noltes eru tónlistarnemendur i Listaháskól- anum. Aðrir kenna þar, eru út- skrifaðir eða starfandi tónlistar- menn. Þau eru öll með færustu tónlistarmönnum sinnar kynslóð- ar. Enda þarfnast þjóðlagatónlist- in frá Balkanskaganum sem þau spila fingraleikni, æðri taktskiln- ings og almennrar sveiflu. „Það var kúrs í skólanum sem Hilmar Jensson kenndi. Við rædd- um hvað ætti að spila í honum og hann dró þetta upp úr hattinum," leikaplakatinu. Það prýddi ógæfu- leg mynd af leikaranum Nick Nolte, tekin þegar hann var hand- tekinn á smjörsýru. Síðan spilaði sveitin með löngum hléum þar til Óli Björn tók sig til í haust og bókaði tíu tónleika í einni bunu. Lög fyrir dansiböll „Það er betra að taka túr. Spila oft á stuttum tima. Þá verður hljómsveitin þéttari. Hugmynd- irnar grassera. Þegar hljómsveitir spila sjaldan verða þær oft gisnar,“ segir Óli Björn. Kristín harmonikkuleikari seg- ir að þetta hefði þó ekki orðið að veruleika án æfingaaðstöðu sem sveitin fékk í Klink og Bank. Pláss fyrir níu manns er ekki auðfeng- ið. „Þar gátum við æft upp nóg af lögum til að spila á dansiböllun- um.“ Stemningin á tónleikum Nix Noltes er engu lík. Undanfarna mánuði hafa þau spilað úti um ri, \ m Borg besti tónleikastaðurinn. „Stundum var svo pakkað á Café Kúltúr að ég þurfti að troða mér aftur og passa að ég stingi engann með boganum," segir Ólöf fiðluleikari. Hildur tekur undir þetta, endaði sjálf eitt skiptið uppi á magnara með sellóið í fanginu. Óla Birni finnst þessi stemning í anda tónlistarinnar. „Sveitt fyll- erí eins og þessir kallar í Búlgaríu spila á. Það er magnað hvað fólk Hljómsveitir sem meðlimir Nix Noltes spila einnig með þessa dagana: múm - Hestbak - 5ta herdeildin - Kammer- hópurinn Stelkur - Steypa - Representative IVIan - Kuai - Hljómsveit Sigríðar Níelsdóttur - Rúnk - Right of the Richter - Mulinex - Líkn - Slowblow - Hljómsveit Skúla Sverrissonar - Kammerhópurinn Atón - Sæborgin - hip- hopsveitin ESP (þetta er ekki tæmandi listi.) Djúpar danstúlkanir Þó að tónlistin sé vissulega hressandi getur oft verið erfitt að fylgja taktbreytingunum. Þær eru tíðar og óvæntar. Enginn nema æfð hljómsveitin getur fylgt örugglega. Kristín segir gestina oft lenda í vandræðum. „Það er fallegt að sjá fólk reyna að dansa við þessa tónlist. Það gefst upp á að halda taktinum og fer í djúpar danstúlkanir." Miðað við færni hljóðfæraleik- aranna og góða reynslu af tónleik- um hlýtur rökrétt framhald Nix Noltes að liggja í augum uppi. „Að fá borgað?" spyr Kristín, en Óli Björn tekur við: „Við ætlum að gefa út plötu. Orri Jónsson í Slowblow er upptökustjórinn okk- ar. Nokkrir af tónleikunum voru teknir upp og við viljum ólm taka upp meira. Förum eflaust bráðum að huga að því.“ Hrekkjavakan enda Þá er það orðið nokkuð óum- deilanlegt að George W. Bush bar sigur úr býtum í forsetakosning- unum í Bandaríkjum. Mér skilst að það eigi eftir að telja einhver atkvæði í Ohio en samkvæmt sér- fræðingum þar ytra, eiga þau ekki að skipta miklu máli. Ég var eins og svo margir aðrir jarðarbúar að vona að Kerry myndi vinna en það verður að viðurkennast að hann rak nokkuð lélega kosninga- haráttu. Sá grunur læðist helst að mér að þessi gífurlega andúð annarra jarðarbúa á Bush hafi styrkt hann enn í sessi. Það vill enginn að honum sjáifum sé sagt til verka, sérstaklega ekki Banda- ríkjamönnum, og það sýndu þeir með því endurkjósa Bush og styrkja stöðu repúblikana í öld- ungadeildinni enn frekar. Það eru ekki góðir tímar framundan hjá demókrötum i Bandaríkjun- um. Kræst! En það var eitt sem ég fór að velta fyrir mér um þrjúleytið aðfaranótt miðvikudags, meðan ekkert benti enn til þess að annar hvor frambjóðandinn myndi sigra, og það var þessi gífurlegi áhugi minn á þessum forseta- kosningum. Ég hafði viku áður ákveðið að fá mér Breiðbandið svo að ég gæti fyllilega fylgst með aðdraganda kosninganna og á kosninganóttinni ætlaði ég ekki að hlusta á repúblikanafrétta- stjórann á RÚV segja mér hvern- ig bæri að túlka fyrstu útgöngu- spár. Nei, í þessum kosningum ætlaði ég að hafa allt á hreinu, fá sem flestar upplýsingar beint í æð og fagna því síðan með öðrum jarðarbúum þegar Kerry fagnaði sigri gegn Döbuja. En þegar ég fór út á svalir um þrjúleytið til að viðra mig, tók ég eftir að i öðru hverju húsi voru ljósin enn kveikt og sums staðar hafði fólk safnast saman til að fylgjast með kosningunum. Og það á virk- um degi. Það rann samt fljótlega upp fyrir mér að þetta væri ekkert skrítið. Ekki einungis væru Bandaríkin mesta stórveldi heimsins í dag, heldur væru áhrif Bandaríkjanna á okk- ar eigin menningu svo gríðarleg að erfitt væri að finna alíslensk- an hlut, ef frá eru talin tungu- málið og þorrablótin. Og þá væri alla vega annað þeirra í undan- haldi. Bandarikin hefðu líklega aldrei áður í sögunni verið okkur jafn mikilvæg og nú. Næstum því öll okkar menning kæmi frá Banda- ríkjunum. Matvörumar og gos- drykkirnir koma þaðan og varnir landsins, þessa sjálfstæða lands, eru i höndum manns sem er kall- aður Rummy af besta vini sínum Döbuja. Og þá fór ég að velta því fyrir mér hversu mikil áhrif okkar alþingiskosningar hefðu í raun- inni á okkur íslendinga i saman- burði við forsetakosningarnar i Bandaríkjunum. Líklega ekki mikil ef hægt væri að treysta á að vinstri grænir yrðu í samsteypu- stjórn, kæmust þeir til valda. Og hvað væri þá allt þetta tal um sjálfstæði landsins ef það í raun sveiflaðist eins og maur á hala asnans - eða ætti ég frekar að segja fílsins í ljósi úrslita kosn- inganna þar vestra. Höskuldur Ólafsson Pissaö upp í vindinn f ó k u s 5. nóvember 2004

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.