Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2004, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2004, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVMEBER 2004 Fréttir DV Mest af síldinni í frystingu Veiðar á íslensku sumar- gotssfldinni hafa gengið ágætlega undanfarnar vik- ur. Upp- sjávarfyrir- tækin á Austur- landi hafa notið góðs af því að veiðin hef- ur undan- farið verið fyrir austan landið. Stór hluti aflans, eða ríflega 60%, hefur farið í frystingu eða söltun sem eykur afla- verðmætið til muna. Til samanburðar fór 47% í frystingu/söltun á vertíð- inni í fyrra. Nokkur skip- anna hafa fryst aflann beint um borð en önnur séð vinnslunni í landi fyrir hrá- efni með því sem næst dag- legum löndunum undan- farnar vikur. Greining ís- landsbanka segir frá. Sérbýli í sérflokki Ahrif lægra vaxta og rýmri veðheimilda á fasteignalánum eru nú að koma fram á fast- eignamarkaðnum. Ljóst er að fasteignaverð hefur hækkað verulega sam- kvæmt vísitölu íbúðar- húsnæðis, eða um 14% síðastliðna 12 mánuði. Það sem vekur þó eink- um athygli er hve verð á sérbýli hefur tekið við sér en það hefur hækkað um 21,5% síðastliðna 12 mánuði en verð fjölbýli hefur hækkað um 11,5% á sama tíma. Greining KB banka segir frá. Flúðir þú gúmmibrunann hjá Hringrás Hilda Hafsteinsdóttir, ibúi á Kleppsvegi. „Nei, ég tók ekki eftir neinu. Vissi samt aö eitthvað væri að brenna. Fann lyktina þegar ég fór i vinnuna í morgun. Ég heyrði I gær að maöur ætti að ioka gluggum og kynda ofna. Mér fannst það ágætt. Enda ekki óvön því að kynda vel." Hann segir / Hún segir „Ég fór i nótt og ætlaði að kíkja á þetta. Þaö var bara svo vitlaust veður. Nei, það var enginn reykur hjá mér. Ástandið var verra á efri hluta Kleppsvegar. Annars er hræði- legt þegar svona gerist. Veðrið varlíka vitlaust." Sævar Ciesielski, íbúi á Kleppsvegi. Guðmundur Eiríksson, sendiherra íslands í Kanada, er sagður í tygjum við Adrienne Clarkson landstjóra. Stórblaðið The National Post lætur að þessu liggja í dálkum sínum en sendiherrann ber þær sögur allar til baka og segist aðeins vera vinur landstjórans og fjölskyldu hans. Islensk sendiherrann sagöur í ástarsnmbandi viö kanadíska Inndsflórann Kanadíska stórblaðið The National Post staðhæfir að náið sam- band sé á milli íslenska sendiherrans í Kanada og kanadíska landstjórans, frú Adrienne Clarkson. Því er haldið fram í blaðinu að eiginmaður landstjórans sé hættur að mæta í samkvæmi með eigin- konu sinni vegna aðdáunar hennar á Guðmundi Eirflcssyni sendiherra sem á síðum blaðsins er lofaður fyr- ir glæsileika og sagður nýjasta stjarnan á himni samkvæmislífsins í Kanada: „The silver-haired, silver tongued Eiriksson," eins og blaðið kýs að lýsa íslenska sendiherranum. Guðmundur Eiríksson, sem verið hefur sendiherra í Kanada síðan í september 1993, aftek- ur með öllu að hann eigi í ástarsambandi við kanadíska landstjórann. Bara vinir „Við erum nánir vin- ir eins og þarna segir en að öðru leyti er ekki fót- ur fyrir þessum skrif- um,“ segir Guðmundur og ítrekar að sérlega góð vinátta sé á milli fjöl- skyldu sinnar og fjöl- skyldu landstjórans og eigi það bæði við um maka og börn. „Sannleikurinn er sá að þetta blað hefur lagt land- stjórahjónin í einelti um langt skeið og þessi skrif eru hluti af því. Blaðamaðurinn sem þetta skrifar er þekktur fyrir þessa gerð blaða- mennsku," segir sendiherrann og viðurkennir að víst séu þessi skrif bagaleg fyrir sig og eiginkonu sína: „Konan mín hefur lesið þetta og auðvitað er leiðinlegt fyrir alla sem í svona lög- Guðmundur Eiríksson og Adrienne Clarkson Sendiherranum llkt viö tunguiipran silfurrefsem skot- ist hafi upp á kanadískan samkvæm- ishimin á ótrúlega skömmum tima. uðu lenda og sérstaklega fyrir þá sem ekki eru vanir því." Rótgróin andúð Andúð The National Post á kanadísku landstjórahjónunum skín í gegn í öllum skrifum blaðsins um meint ástarsamband íslenska sendi- herrans og land- stjórans. Eiginmaður landstjórans, heimspekingurinn Ralston Saul, fær þá einkunn að öll skrif hans á fræði- vellinum séu lflcust hitabeltissvampi og sjálfur sé landstjórinn allt að því heimsþekktur fyrir peningabruðl sitt á kostnað kanadískra skattgreið- enda. Dýrt ferðalag Reynar komst frú Adrienne Clarkson í fréttir þegar hún heim- sótti ísland í upphafi ársins ásamt fjölmennu fylgdarliði. Tók hún þá 109 herbergi á leigu á Hótel Nordica og lét sítengja þau öll við netið. Var þá haft eftir starfsmönnum hótels- ins að aldrei fyrr hefðu þeir fengið aðra eins gesti. Kanadíski land- stjórinn var þá á ferð um norð- urslóðir með viðkomu á íslandi, Finnlandi og Rússlandi en alls kostaði ferðalagið rúmlega fimm milljónir dollara, eða um 275 milljónir ís- 'ff?| lenskra króna. „Innilegt samband" í grein The National Post segir orðrétt: „Hinn ómótstæði- legi, tungulipri silfurrefur Eiriks- son - sem reynar er fæddur í Winnipeg - er nú stjarna í sam- kvæmislífi diplómatanna sem á annað borð umgangast Clarkson sem sýni- lega er hrifin af íslenska sendiherranum og samkvæmt áreiðanlegum heimild- um okkar er sú hrifning gagnkvæm. Þau tvö eiga í „innilegu sambandi”," segir einn sem vel þekkir til." Sem fyrr segir ber Guðmundur Eiríksson sendiherra allar þessar fréttir til baka og vísar til föðurhús- anna. Þetta sé eitthvað sem menn verði að búa við í Kanada umgangist þeir landstjórann og eigi að vini eins og raunin sé í tilviki hans. Jólagjöfin í ár kostar 8.500 krónur. Snjóhvítar tennur á jólunum „Þessu er penslað á tennurnar og nægir í fjórtán skipti," segir Heiða Björk tanntæknir sem hefur, starfs síns vegna, fyrir löngu komið auga á jólagjöfina í ár. Litla buddu með búnaði til að gera tennur hvítari, meðferð sem hingað til hefur verið veitt á tannlæknastofum. Buddan er til sölu á fjölmörgum tannlækna- stofum og ábyrgjast þeir sem til þekkja að árangur sé öruggur. „Ann- ars getur fólk bara skilað buddunni. Sjálf hef ég notað þetta í tvígang með frábærum árangri," segir Heiða Björk og það fer ekkert á milli mála þegar hún brosir: Tennurnar eru Heiða Björk með jólgjöfina Allt i einum pakka til að gera tennurnar hvítari um þessi jól. mjallahvítar. í buddunni er sérstakt krem og penslar auk tannbursta. Meðferðin er einföld og skýrir sig sjálf þegar leiðbeiningar eru lesnar. Heiða Björk segir þessa jólagjafa- hugmynd skemmtilega, ekki síst með tilvísun í hvít jól sem eru ein- kenni velheppnaðra jóla eins og best er þekkt úr jólalaginu White Cristmas. Þessi hátíðlega útgáfa af tannlýs- ingu er seld undir vörumerkinu Viva-Sfyle Paint-On, Professional Tooth Whitening System. Buddan kostar 8.500 krónur. „Allt í einum pakka," segir Heiða Björk. Söng fyrir mömmu Kristján Jóhannsson og fleiri stórsöngvarar sungu fyrir fullum sal í dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri á mánudagskvöld. Með Kristjáni voru Jóhann Már Jóhannsson bróðir hans og stórfrændi þeirra bræðra, Örn Við- ar Birgisson. Þetta kemur fram á heimasíðu Akureyrarbæjar. Þeir voru þangað komnir til að syngja fyrir móður bræðranna, Fanneyju Odddgeirsdóttur sem býr í Hlíð, og aðra heimilismenn Öldrunarheim- ila Akureyrar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.