Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2004, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2004, Qupperneq 11
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVMEBER 2004 11 Kennedy- fjölskyldan er brjáluð Kennedy-fjölskyldan er brjáluð af reiði og hneykslun þessa daga vegna vídeóleikjar þar sem þátttak- endum er ætlað að taka þátt í laun- morðinu á John F. Kennedy forseta í Dallasfyrir41 ári. Það eru leikja- hönnuðirnir í Traffic Games í Glasgow sem búið hafa til leikinn sem heitir JFK Reloaded. Þátttak- endur skora stig með því að skjóta á bílalest forsetans út um gluggann á bókasafninu þar sem Lee Harvey Oswald var staðsettur á morðdag- inn. Edward Kennedy bróðir Johns F. Kennedy segir að leikurinn sé „hreinn viðbjóður". Raunveru- leikaþáttur með sniglum Sjónvarpsstöo hefur hafið sýningar á raunveruleikaþætti með sniglum sem byggður er á þáttunum „Ég er þekkt - komið mér héðan“. Breska sjónvarps- stöðin UKTV G2 segir að þættirn- ir standi yfir í ellefu daga og aðal- leikararnir eru afriskir risasniglar með nöfnum á borð við Slime- On Cowell, Snailey Thompson, Snail Porter og Carol Slimey. Þeir munu leysa ýmsar sniglaþrautir eins og 100 millimetra maraþon- ið og kálát. Einn snigill er síðan kosinn út á hverjum degi. Reikn- að er með fjörlegu kynh'fi í þátt- unum þar sem afrískir risasniglar eru þekktir fyrir að fjölga sér hraðar en kanínur. Stærsti ham- borgari í heimi Stærsti hamborgari í heimi sem er á daglegum matseðli er 5,5 kfló- gramma skrímsli. Aðeins er vitað um einn mann sem tókst að torga honum öllum. í borgaranum eru tæp 700 grömm af fitu. Hann telur um 12.500 kaloríur, eða tífaldan ráðlagað dagskammt - og það er án frönsku kartaflnanna sem fylgja. Borgarann, sem ber nafnið Ye Olde ‘96er, er hægt að kaupa á tæp 13 pund á barnum Denny í Clearfield í Pennsylvaníufylki. í honum eru nær þrjú kíló af kjöti og tæplega tvö kíló af osti og öðru meðlæti auk brauðsins. Ótrúlega góður tenór Maður getur ekki annað en ver- ið jákvæður og menningarlegur í þetta sinn. Það er nóg fjallað um brunann og alls konar mál í þjóð- félaginu en efst í mínum huga núna er leiksýning sem ég fór á í Óli Ómar Ólafsson hreifst afsýningu I Iðnó. Leigubílstjórinn segir Iðnó f vikunni. Ég fór á Tenórinn með honum Guðmundi Ólafssyni og sýningin var frábærlega skemmtileg. Innihaldið var gott þar sem hann fjallaði um lífið og fjölskylduna og svo syngur hann ótrúlega vel. Ég er yfirleitt ekki mikið fyrir að fara í leikhús heldur vil ég frekar eyða tíma í sumarbústaðnum á sumrin þegar ég á frístundir en stundum er maður dreginn út í alls konar hluti af æðra valdinu. Ég viðurkenni alveg að ég fór með hálfum huga á þessa sýningu, sem kom mjög á óvart. Við fórum þrenn hjón saman og skemmtum okkur öll konunglega. Guðmund- ur var að gera góða hluti og það var greinilegt að söngnámið hans hefur borgað sig. Ég sé ekki eftir þessu. Ég hef ekki komið í Iðnó lengi og það var gaman að koma þang- að aftur. Maður fór í gamla daga af og til en aðalbreytingin er að maður getur núna farið á barinn í hálfleik. Það er frábært þegar menn geta komið málunum svona vel frá sér eins og Guðmundur gerði, þannig að maður verður glaður lengi á eftir. Auður Laxness vill að Hannes Hólmsteinn Gissurarson greiði henni 7,5 milljón krónur í bætur fyrir að hafa stolið texta Halldórs Laxness og notað í fyrsta hluta ævisögu sinnar um skáldið. Hún tiltekur í stefnu 120 atriði um ritstuld og krefst alls hagnaðar hans af útgáfu bókarinnar. AuDur Laxness krefst 7,5 nilljóni frá Kmnsi Auður Laxness með Halldóri Auður krefst þess að fá 5 milljón króna áætlað- an hagnað Hannesar Hólmsteins af bókinni um Halldór Laxness. Auður Laxness, ekkja nóbelsskáldsins HaUdórs Laxness, hefur höfðað mál gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, prófessor við Háskóla íslands, vegna ritstulds. Hún krefst þess að hann verði dæmdur til refsingar og að hún fái allan þann hagnað sem hann hafi fengið af útgáfu bókarinnar. Hún vill að Hannes verði dæmdur til að greiða henni 7,5 milljónir króna í bætur. Lögmaður Auðar, Halldór H. Back- man, segir í stefnu sem verður þingfest hjá Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun, að Auður hafi komist að því þegar bók Hannesar, Halldór, kom út um jólin í fyrra, að hann hefði nýtt sér í miklum mæli texta Halldórs Laxness. Það hafi hann gert „bæði í heimildaskyni án þess að geta heimilda með viðhlítandi og með beinum hætti án þess að til- greina réttan höfund textans. Þá vom talsverð brögð að því að stefndi bein- línis nýtti texta Halldórs Laxness en breytti honum að eigin geðþótta og birti í bók sinni, í flestum tilfellum sem eigin texta". Auður segir að ekki hafi legið fyrir samþykki sitt eða annarra erfingja Hall- dórs fyrir noktun Hannesar á óútgefnu efiti Halldórs. Auður höfðar málið í eig- in nafni þar sem hún situr í óskiptu búi Halldórs. Hún segir í stefnunni að bók Hannesar sé að miklu leyti endursögn á endurminningabókum Halldórs Laxn- ess sem Halldór hafi skilgreint sem skálsdögur í ritgerðarformi og því hafi efni þeirra „ekki endiiega borið keim sagnfiæðilegs sannleika". 120 dæmi Með málinu er lögð ffam skýrsla Helgu Kress, prófessors í bókmennta- fræði, þar sem hún ber saman ffum- texta Halldórs Laxness og samsvarandi blaðsíður úr bók Hannesar. Síðan til- tekur lögmaður Auðar 120 atriði þar sem hún telur að höfundarréttur hafi verið brotinn. Auður vill 2,5 milljónir í miskabætur vegna meintra höfundarréttarlaga- brota en 5 miiljónir að auki í bætur. Hún vill einnig dráttarvexti og að Hannes borgi málskosmað. Hún krefst refsingar þar sem brotin hafi verið ffamin af ásetningi eða að minnsta kosti stórfelldu gáleysi. Refsiramminn markast af höfundalög- um þar sem talað er um sektir eða fang- elsi í allt að tvö ár. í stefnunni segir að við refsikröfur sé á því byggt að taka verði tillit til stöðu Hannesar Hólmst- eins, gríðarlegs umfangs málsins og þess að brotin hafi verið framin í ágóðaskyni. „Stefnandi byggir einnig á því að stefhdi hafi með ítrekuðum og grófum hætti brotið gegn höfundarrétti Hall- dórs Laxness með því að breyta fium- texta höfundarins og aðlaga hann að eigin texta. Þannig hafi stefndi ýmist slitið einstakar setningar úr samhengi og bætt þeim inn í sinn eigin texta, fellt út orð eða bætt við orðum." Vill uppræta hagnað Hannesar I sambandi við miskabætur segir lögmaðurinn að 2,5 milljónir sé hæfileg taia með hiiðsjón af miklu umfangi brotanna og grundvallarréttindum höfundarréttarins. „Telur stefnandi að hafa beri í huga að Halldór Laxness hafi verið og sé enn einhver merk- asti rithöfundur þjóðarinnar og að verk hans og sá höfundarréttur sem þeim fylgi, sé í senn mikilvægur og verðmætur. Stefndi hafi, með ólög- mætum og saknæmum hætti, eign- að sér ritverk Halldórs í miklum mæli, sér tii hagsbóta." Fimm milljón króna bætumar em miðaðar við meintan ávinning Hann- esar af brotum sínum, enda eigi Harni- es ekki að njóta fjárhagslegs ávinnings af útgáfu bókarinnar. Fjárhæðin er miðuð við áætlun sem taki mið fjölda seldra eintaka bókar Hannesar samkvæmt upp- lýsingum frá Al- menna bókafélag- inu. Auður skorar á Hannes að upp- lýsa um allar tekjur sem hann hafi haft af ritun og útgáfu bókarinnar. Auður stefnir Hannesi að mæta eða láta mæta í fyrramálið klukkan 10 í Héraðsdóm Reykjavíkur þegar málið verður þingfest til að svara til saka. Þegar DV ræddi við Hannes Hólm- stein í gær hafði hann ekki séð stefn- una. „Ég hef ekki séð þetta og get þar af leiðandi ekkert tjáð mig um þetta," sagði hann. kgb@dv.is Hannes Hólmsteinn Gissurarson Getur ekki tjáð sig um stefnu sem hann hef'■ ur ekki séð. Höfrungar bjarga fólki frá hákarli Hópur sundfólks á Nýja-Sjá- landi hefur greint ffá því hvernig hópur af höfrungum kom þeim til aðstoðar og bjargaði þeim frá árás hvíts hákarls. Um var að ræða strandverði sem voru við æfingar undan ströndinni við Whangarei á norðureyju Nýja-Sjálands. Þriggja metra langur hákarl- inn kom að hópnum og byrjaði að synda ógnandi í kringum hann. Þá bar að hóp af höfrungum sem mynduðu hring í kringum sund- mennina og stugguðu hákarlinum í burtu. Sjávarlíffræðingar segja að svona hegðun sé ekki óalgeng hjá höfrungum. Enn meiri verðlækkun! ÓDÝRARA ATLAS^FRELSI More Minutes f More Countries ✓ Less Price 1000 kr. að hringja til útlanda atlas<íreIsi Fasst um land allt: Olís - Hagkaup -10-11 ■ Sparkaup ■ Penninn - Samkoup -Úrval - Nettó www.atlassimi.is 2000 kr. Lönd í ódýrasta verðflokki ÍOOO kr. Lönd í ódýrasta verðflokki Canada 540 min Canada 270 min China 310 min China 150 min Denmark 540 min Denmark 270 min France 540 min France 270 mln Germany 540 min Germany 270 min lreland 540 min Ireland 270 min Italy 540 min Italy 270 min Netherlands 540 min Netherlands 270 min Norway 540 min Norway 270 min Poland 370 min Poland 180 min Spain 540 min Spain 270 min Sweden 540 min Sweden 270 min UK 540 min UK 270 mln USA 540 min USA 270 min

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.