Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2004, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2004, Side 25
DV Menning MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 2004 25 Jón Leifs og Jóhann Jóhannsson vekja lukku í útlöndum íslenskri tónlist hampað Virðulegir forsetar eftirJóhann Jó- hannsson kom nýlega út hjá enska forlaginu Touch. Diskurinn er tek- inn til skoðunar á vefnum Pitch- fork Media, sem ýmsir áhugamenn um framsækna tónlist þekkja fyrir metnaðarfulla og ákafa umfjöllun. Er skemmst frá því að segja að Mark Richardson, gagnrýnandi vefsins, á ekki orð til að lýsa hrifn- ingu sinni og var þó fyrir ekki minna ánægður með Englabörn. Fær diskurinn 8.81 einkunn. Þá er Mark ekki síður hrifinn af DVD-disknum sem fylgir I pakkan- um og lýsir fögrum orðum birtunni í Hallgrímskirkju þegar afritun verksins stóð yfir. Svona á að lifa, segir maðurinn alsæll. Það lýsti nokkrum metnaði, efekki fíflsku, hjá forsvarsmönnum sænsku tónlistarútgáfunnar BIS að hljóðrita öll verk Jóns Leifs. Nú hef- ur enn einn geisladiskurinn, Vík- ingasvar, ratað i hillur verslana og fær mjög jákvæðar umsagnir fag- aðila i tónlist víða um heim. I októberhefti BBC Music Magazi- ne, einu afvirtari tóniistartímarit- um heimsins, fær geislaplatan ákaflega góða dóma. Sinfóníu- hljómsveit íslands leikur undir stjórn Hermanns Baumer auk þess sem Mótettukórinn og Schola Cantorum syngja undir stjórn Harðar Áskelssonar, Karlakórinn Fóstbræður syngur undir stjórn Árna Harðarsonar og Kór Kársnes- skóla undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Guðrún Edda Gunn- arsdóttir, Finnur Bjarnason og Ólafur Kjartan Sigurðarson syngja nokkur verka Jóns. Um verk Jóns Leifs segir gagnrýnandinn Calum MacDonald meðal annars:„Ef það var ætlun Jóns að landið og goð- Jón Leifs. sögurnar endurspegluðust i tónlist hans, þá tókst honum ætlunar- verkið rækilega." Vikingasvar fær einfaldlega fullt hús stiga, eða fimm stjörnur. Jóhann Jóhannsson. Á fimmtudag verð- ur tónlistarsýning um hamskipti og flug um fjarlæga heima flutt í Borg- arleikhúsinu. Hug- stolinn er sam- vinnuverk lista- manna sem sækja stef og lag í tónlist norðursins undir forystu franska leikstjórans Janicks Moisan. Hugstolinn er kamm- erópera eftir franska leik- stjórann Janick Moisan við tónlist íslenskra og norrænna tónskálda. Sýningin er hugverk hennar, byggð á upplifun hennar á náttúru Islands, sögnum og dulhyggju norðurslóða, unnin í samvinnu við Sigurð Halldórsson , tónlistarstjóra verksins, tónskáld og flytjendur. Flytjendur óperunnar eru alt- söngkonan Marta Hrafnsdóttir, Sigurður Halldórsson á selló og Daníel Þorsteinsson á píanó. Leik- mynd, leikmunir og búningar eru hönnuð af Rannveigu Gissurar- dóttur og lýsingu annast Benedikt Axelsson. Janick Moisan er leik- stjóri en Kristín Mjöll Jakobsdóttir hefur annast framkvæmdastjórn og umsýslu. Flétta af fornu og nýju í Hugstolnum fléttast þjóðlög og sagnir frá Norðurheimsskauts- baug, íslandi, Grænlandi, Lapp- landi og Síberíu saman við sam- tímaverk frá íslandi, Færeyjum og Finnlandi eftir Tapio Tuomela, Kristian Blak, Hjálmar H. Ragnars- son, Jón Leifs og Sigurð Halldórs- son. Tónskáldin notfæra sér bæði þjóðlegt efni til nútímatónsmíða, hver með sínu handbragði og hæfi- leikum. Listrænt markmið er að tefla saman gömlu og nýju til að fólk megi upplifa þróun þjóðlega arfsins. Ferð um efri heima Heiðin trú er uppspretta sög- unnar. Janick nýtir sér frásagnir af hamskiptum og vitneskju um yfir- náttúrulega heima til að skapa töfraveröld, ferðalag um efri heima. Hún hefur uppgötvað að það er margt sameiginlegt með íslend- ingasögunum og fornum sögnum Sama, inúíta og Mongóla. Tákn- gervingur hamskipta er hrafninn sem gegnir stóru hlutverki í Hugstolnum. Huginn og Muninn Marta Hraftisdóttir fer með aðal- hlutverk óperunnar, sem er eins konar þroskasaga ungrar stúlku sem hefúr fengið það hlutverk að vera seiðkona. Ómeðvituð í upphafi um hlutverk sitt þreifar hún sig fram í völdundarhúsi himins. Hljóðfæra- leikararnir Sigurður og Daníel fara með hlutverk tveggja furðufugla. Þeir eru bræðurnir Huginn og Mun- inn sem eru útsendarar æðri máttar- valda og leiðbeina, en jafnffamt af- vegaleiða, hina ungu stúlku á leið sinni um sjö heima. Sál hvalsins Janick Moisan gengur út fr á síber- ískri þjóðsögu um Hraftúnn sem læt- ur heillast af sál hvalsins í lfki fagurr- ar stúlku sem dansar eins og loginn. Þegar hann freistar þess að ræna stúlkunni falla álögin og stúlkan fagra gufar upp í lausu lofti. Hugstolinn hefst þar sem sál stúlkunnar hefur rekið þúsundir mílna með straumum himingeimsins og stúlkan strandar á Vetrarbraut Hrafnsins. Hinir undar- legu bræður finna hana meðvitund- arlausa, útvalda gyðju himins, með hvalbein þétt að brjósti sér og skín- andi hvítan stein í munni. Sýning á fimmtudag Kammeróperan Hugstolinn var frumsýnd 28. mctí 2004 á Listahátíð í Reykjavík, á Nýja sviði Borgar- leihússins í samstarfi við Leikfélag Reykjavíkur. Hún var framleidd með stjrk frá Menningarmálanefiid Reykjavíkur og fleiri aðilum. Kamm- eróperan Hugstolinn verður endur- sýnd á Nýja sviði Borgarleikhússins næsta fimmtudag, kl. 20.00. Afkomendur hippanna Á okkar póstmódernísku tímum hef- ur þurft flókin verkfæri til að kryfja sundurlausan veruleika og I mörgum bókmenntaverkum sem hafa litið dagsins Ijós síðustu árin hefurþað ver- ið gert með nýstárlegum, eftirminni- legum og spennandi hætti. En þrátt fyrir öll þau ágætu verk sem skerpt hafa huga bókaunnenda undangeng- in ár virðist svo komið að þrá bæði les- enda - og höfunda - eftir línulegri frá- sögn, með miðju, upphafi og endi sé að sækja I sig veðrið. Og gott efstefna I ætt við nýraunsæið gamla er ekki á hraðri uppsiglingu nema hér eru það afkomendur 68-kynslóðarinnar sem beita pennanum. ínýjustu skáldsögu sinni, Fólkiö I kjallaranum, segir Auður Jónsdóttir sögu afstúlkunni Klöru sem er á þrl- tugsaldri og býr I fallegri íbúð með honum Svenna sfnum sem erpottþétt- ur uppagaur sem kllfur metorðastig- ann hratt og örugglega. Klara býr við fullkomiö öryggi I hvítþveginni tilveru en það sem angrar er fortíðin. Uppeldið sem hún hlaut I skjóli frjáls- lyndra foreldra af 68-kynslóðinni hefur sett svip sinn á hana enda frelsið I ást- inni og drykkjunni helst til mikiö! Hún elst upp við framhjáhald meö tilheyr- andi ásökunum og slagsmálum og á því erfitt með að skilja það, fullorðin konan, hvernig foreldrarnir halda ávallt saman I gegnum súrt og sætt, þrátt fyrir allt. Sagan gerist á u.þ.b. hálfum sólar- hring á heimili Svenna og Klöru og hverfist um matarboð Svenna. Þangað er aðeins von á tveimur gestum en kvöldið verður mun órólegra en ráð var fyrir gert. Fljótt kemur I Ijós að á heimilinu stendur Svenni viö stjórnvöl- inn, stjórnar öllu sem máli skiptir og reynir aukinheldur að hafa áhrifá þankagang Klöru. I matarboðinu fylgir lesandi hugleið- ingum Klöru eftir þar sem hún rifjar annars vegar upp samvistir viö fjöl- skyldu sína og vinkonuna Fjólu sem óx Auður Jónsdóttir einungis góðir höfundar frá henni fyrir mörgum árum. Hins vegar veltir hún fyrir sér sambúðinni við Svenna og glöggt kemur í Ijós aö þótt hún ásaki foreldrana fyrir ákveðna þætti f uppeldinu saknarhún baráttuandans og hugsjónanna sem enn skekja anda þeirra. Hennar eigin hugsjónir eru kæfðar af Svenna sem heldur þvf fram að samúð verði aö vera passleg því maöur græði lítt á því aðfinna til. A.m.k. ekki ofmik- ið! En það gerir Klara. Henni finnst ekki sanngjarnt að hún lifi eins og blóm I eggi á meöan stríö geysar um víða veröld. Þegar hún imprar á þessu við Svenna fær hún háðsglósur að laun- um, lyppast niður og verður enn óör- uggari en áður. Auður Jónsdóttir skrifar hér bók sem minnir um margt á gamla nýraunsæið að því marki að hér er verið að segja hversdagslega örlagasögu sem margir geta örugglega mátað sig inn í. Hún eturhinni baráttuglöðu 68-kynslóð saman við sjálfhverfu uppakynslóöina og á sfðum bókarinnar er háð öflug orrusta sem er Isenn dramatlsk og fyndin. Sagan er skemmtilega skrifuð og spennandi sem von var á, enda hef- urAuður sannað og sýnt að hún er öfl- ug sögukona. Þó má finna veika hlekki einkum hvað varðar fólkið I kjallaran- um, en harmleikurinn sem þeim teng- ist er bæði fjarlægur og ekki nógu vel upp byggður. Auður Jónsdóttir ■ii n.i j ■ Fólkið i kjallaran- um Mál og menning 2004 Verð: 4.490 kr. Bókmenntir Kannski hefði sagan frekar átt að heita Fólkið á efri hæðinni því llfþess og átök er i raun það sem máliö snýst um. Sú saga reynir verulega á þolrifin og fyrr en varir sveiflast maður fram og til baka í afstöðu sinni. lupphafi heldur maður eindregið meö Klöru og fyrirlíturþennan ótrúlega, sjálfum- glaða Svenna sem veit allt betur en aðrir og kúgar aukinheldur og undir- okar sambýliskonu sína. En smátt og smátt færist samúðin einnig yfir til hans þó með semingi sé! Þetta er ákveðin kúnst I persónusköpun sem einungis góðir höfundar hafa á færi sfnu. Sigríður Albertsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.