Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2004, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2004, Síða 32
 y !j !j íl^Jj í C) !j Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar ^wfnleyndar er gætt. ,-j 550 5mu SKAFTAHLÍÐ 24, 105 REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMIS50S000 j- • Þær halda áfram að berast frétt- irnar af velgengni Friðriks Weiss- happel með nýjan veitingastað sinn í Kaupmannahöfn. Frikki hefur ekki viljað veita íslenskum fjölmiðlum viðtöl um staðinn og hagi sína í Kaup- manna- hö&i, þar sem hann býr með þar- lendri unnustu, og ber því við að hann hafi hreinlega ekkert á því að græða. Hins vegar mun Frikki taka vel á móti íslendingum sem koma á staðinn og segir hikstalaust sögur af ásókn erlendra fjölmiðla í sig. Þannig mun kappinn nýverið hafa stært sig af að hafa farið í viðtöl við sænska fjölmiðla og meira að segja viðtai í japönsku sjónvarpi. Ein- hverjir íslendinganna munu hafa brosað í kampinn við þessi tíðindi og velt því fýrir sér hvað Frikki teldi sig græða meira á viðtölum við japanska fjölmiðla en þá íslensku... Sigurður Skúlason flaug út Leikur súkkulaðipjóf í Mackintosh-auglýsingu Sigurður Skúlason leikari flaug til Svíþjóðar í fyrradag í prufur fyrir alheimsauglýsingu súkkulaðirisans Nestlé sem ffamleiðir Mackint- osh-sælgætið undir vörumerkinu Quality Street. í gærkvöldi var ekki ljóst hvort Sigurður hreppti hnossið en á lokasprettinum átti hann í harðri samkeppni við Svía sem einnig þótti líklegur. Auglýsingin verður gerð í Bretlandi og frumsýnd fyrir jólin 2005: „Það voru margir íslenskir leikarar prófaðir fyr- ir þessa auglýsingu, hátt í fjörutíu, en eftir stóð Sigurður sem þótti henta mjög vel í hlutverkið,“ segir Bjarney Lúðvíksdóttir hjá Eskimo-módels sem hafði milligöngu í málinu. „Ef af verður leik- ur Sigurður óþekkan álf, Evil alf eins og það heitir í handritinu, þjóf sem brýst inn á heimili fólks og stelur Mackintoshi frá börnum," segir Bjarney sem bindur miklar vonir við þetta verkefni. Að loknum prufutökum í Svlþjóð í gær flaug Sigurður beint til London til að sinna öðrum verk- efnum en er væntanlegur heim á morgun. Þá ætti að liggja Ijóst fyrir hvort hann fær hlutverkið í þessari risaauglýsingu Mackintosh sem á eftir að fara víða og gera andlit hans þekkt á meðal barna um allan heim. Sigurður Skúlason hefur leikið margan skúrkinn bæði á sviði og í kvikmyndum en aldrei áður súkkulaðiþjóf á alþjóðlegum aug- lýsingamarkaði. „Sigurður hefur aldrei verið hrifinn af því að leika í auglýsingum og kemur helst ekki fram í innlendum auglýsingum," segir Dröfn Guð- mundsdóttir, myndhöggvari og eiginkona Sigurð- ar, sem hefði þrátt fyrir það ekkert á móti því að húsobóndinn fái hlutverkið. „Hann hlýtur að vera inni í myndinni þar til neikvætt svar berst en það hefur eldd enn gerst," segir hún. Sigurður Skúlason f Mackintos- hdraumi Þykir líklegur til að hreppa hlutverk i auglýsingu á alþjóðamark- aði þrátt fyrir lítinn áhuga á að koma fram í auglýsingum almennt. Flúði á Hótel Barón Sigurður Skarphéðinsson var vakinn af lögreglunni kvöldið sem gúmmídekkin brunnu við Sunda- höfn og skipað að yfirgefa heimili sitt. Hann segir að á þeim tímapu- nkti hafi honum fundist það harka- leg aðgerð. Nú sjái hann að lögregl- an hafi verið í fiíllum rétti. Hann er feginn að hafa flúið heimili sitt en hlakkar til að snúa aftur. „Þeir sögðu bara: Komdu þér út,“ segir Sigurður um heimsókn lögregl- unnar. „Mér fannst þetta svolítið harkaleg aðgerð en eftir á að hyggja var þetta alveg rétt hjá þeim.“ Sigurður segir reyk hafa verið kominn inn í íbúðina og börnin ver- ið byrjuð að kvarta undan óþægind- um. „Ég hafði áhyggjur af börnunum og lika íbúðinni sjálfri," segir Sigurð- ur sem býr nú á Hóteli Barón. Sig- urður segir atburði síðustu daga mikla lífsreynslu. Eld- urinn hafi verið óhuggulegur. „Kannski þarf maður að eyða einni nótt á hóteli í viðbót," bætir Sigurður svo við. Hann eyddi gær- deginum með eiginkonu, móður og börnum á Hótel Barón. í„glæpagengi"með Erpi „Mitt fyrsta krú var CTP,“ segir í texta við lagið Westur á nýjum diski Blazrocas; Erps Eyvindarsonar, og sveitar hans Hæsta hendin. Er þar vísað til fyrstu rappsveitar Erps, Crime time posse, eða glæpagengis- ins, sem hann og félagi hans stofn- uðu árið 1991 og átti eftir að verða byrjunin á ferli rapparans Erps. Félagi Erps í hljómsveitinni var Ómar Valdimarsson sem nú gegnir stöðu talsmanns ítalska verktakans Impregilo við Kárahnjúka. „Það má nú reyndar alveg segja að hann sé aftur kominn í glæpagengi, kallgreyið, þar sem þessir ítölsku hryðju- verkamenn eru. Hann er góð- ur gaur í slæmum félagsskap," segir Erpur. Erpur segir CTP hafa verið bernskubrek, þeim skilningi að liðsmenn hafi ver- ið ungir að árum. „Við vorum á þeim aldri sem manni finnst það brjálaður glæpur að sparka í ljósastaura og svindla sér í Kópavogsstrætóinn. Ómar er orð- inn alvöru don í þessu núna með ítölunum," segir rapparinn. Að Erps gekk rapparinn undir nafninu Predator P, eða rándýrið P. Glæpagengið Hljómsveitin Crime Time Posse, eða glæpa- gengið, var fyrsta sveit Erps Eyvindarsonar og Ómars Valdimarssonar, talsmanns Impregilo.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.