Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Page 24

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Page 24
SUMARAUKI. í aímanölmntim ér þeirri reglu fylgt, aö sumardaginn fyrsta skuli bera upp á næsta fimmtudag eftir 18. apríl. Nú eru í sumrinu 26 vikur og 2 dagar, en í vetrinum 25 vikur og 5 dagar. Sumar og vetur er því samanlagt 52 vikur réttar eða 364 dagar, og vantar þá 1 dag — eða 2, ef hlaupár er — til þess að árið sé fullt. Af þessu leiðir, að mánaðardagstal sumardagsins fyrsta lækkar um 1 frá ári til árs, eða um 2, ef þá er hlaupár. f almanökum undanfarinna ára má sjá, að árið 1941 bar sumardaginn fyrsta upp á 24. apríl, árið 1942 upp á 23. apríl, árið 1943 upp á 22. apríl, en árið 1914 bar hann upp á 20. apríl, því að þá var hlaupár og mánaðardagstalið lækkaði þá um 2 frá mánaðardagstalinu árið áður. Árið 1945 bar hann upp á 19. apríl og mundi árið 1946 — ef ekki hefði verið við gjört — hafa borið upp á 18. apríl, þvert ofan í áður nefnda reglu. Til þess að reglan héldist var því sumarið 1945 aukið um viku, svonefnda lagningarviku eða sumarauka. Lagningarvikan á að byrja að liðnum aukanóttum, sem ætíð enda á laugardag. Árið 1946 ber því sumardaginn fyrsta upp á 25. apríl og er það vissu^ega fyrsti fimmtudagur eftir 18. apríl, sem líka er fimmtudagur. Af þessu er auðséð, að hvenær sem 19. apríl ber upp á fimmtudag hlýtur að vera sumaraukaár. En nú ber 19. apríl ætíð upp á sama vikudag og 27. dezember, því að þar eru réttar36 vikur á milli og getur það hver maður talið. Hlaupárin koma því ekki við, því að hlaupársdagurinn er fyrr á árinu, ef nokkur er. En ef 27. dezember er fimmtu- dagur, endar það ár á mánudaginn næstan þar á eftir. Eins má hugsa hinsegin: Ef 31. dezember ber upp á mánudag, hlýtur 27. dezember að bera upp á fimmtu- dag, og þá einnig 19. apríl, sem er réttum 36 vikum áður. En ef 19. apríl ber upp á fimmtudag hlýtur það að vera sumardagurinn fyrsti og er því sumarauki það ár, þ. e.: Öll ár, sem enda á mánudag, eru sumaraukaár. Þá eru eftir svonefnd „rímspillisár11. Þau má þekkja af þessu tvennu: Að þau enda á sunnucfag, og að þá fer hlaupár ( hönd. Ef 31. dezember ber upp á sunnudag, þá ber 28. dezember upp á fimmtudag og þá einnig 20. apríl, því að þar eru réttar 36 vikur á milli. En ef 20. apríl ber'upp á fimmtudag, hlýtur hann að vera sumardagurinn fyrsti (næsti fimmtudagur eftir 18. apríl). En þá verður að auka sumarið, því að annars mundi sumardagurinn fyrsti á næsta ári, sem þá er hlaupár, flytjast til 18. apríl. En ef sumarið byrjar 20. apríl og er þó aukið um viku, byrjar veturinn það ár svo seint sem vetur getur byrjað, laugardaginn 28. október, en endar samt þann 24. apríl næsta ár, eins og í fyrra dæminu, sem tekið var, af því að hlaupársdagur síöara ársins kemur þá inn í hann. Síðasta rímspillisár var árið 1939 og stendur það á titilblaði almanaksins um það ár. Næsta rímspillisár þar á undan var 1911. Rfmspillisár hér á eftir — á þessari og næstu öld — verða með 28 ára bili, það næsta 1967, svo 1995 o. s. frv. Sumaraukareglan verður því svona: Sumarauka hafa öll ár, sem enda á mánudag. Sumarauka hefir ár, sem endar á sunnudag, ef þá fer hlaupár i hönd, en annars ekki. • Onnur ár en þessi hafa ekki sumarauka, því ef sumarið byrjar síðar en 20. apríl (þ. e. 21.—25. apr.), er ekkert því til fyrirstöðu að mánaðardagstal sumardagsins fyrsta lækki um 1 eða 2 á næsta ári. Um vetrarkomu mun þessi regla einföldust: Fyrsti sunnudagur í vetri er ætíð 4. sunnudagur i október, nema á rim- spillisárum. Þá er hann 5. sunnudagur i oktðber. Það má sanna á þessa leið: (22)
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.