Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Árgangur

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1948, Síða 25

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1948, Síða 25
Um almanakið. Við, sem reiknum almanakið, höfum opinberlega orðið fyrir aðfinnslum um gerð þess, sem reyndar er alveg samkvæm samþYkkt* 9erðri af umboðsmönnum háskólaráðs, þegar við tókum við útgáfu þess. Út þessu viljum við þó taka þetta fram: Almanakið á öllu öðru fremur að vera leiðbeining um tímatal Nú er það mörgum kunnugt, að tímatal á landi hér hefir verið nokkuð öðruvísi áður en það er nú. Nú er algengast að nefna nianaðardag og ár og ef til vill vikudag um leið. Það er t. d. sagt: Guðmundur Var fæddur 2. júlí 1847, eða kannske: Guðmundur var fæddur föstudaginn 2. lúlí 1847. En í ungdæmi okkar, sem nú erum orðnir gamlir menn, hefði líklega verið sagt: Guðmundur var fæddur 1847, á föstudaginn í 11. viku sumars, eða kannske: Guðmundur var fæddur á Þingmaríumessu 1847, og allt þýðir þetta t>að sama. Því er nú mjög haldið að okkur íslendingum að lesa forntit okkar sem rækilegast og er það af mörgum talin hin mesta mannprýði að vera vel að sér í þeim. En til þess heyrir meðal annars að skilja tímatal þeirra, en í þeim eru mánaðardagar varla nefndir á nafn, heldur er allt þeirra tímatal miðað við gamlar »messur« og aðra tyllidaga, sem flestir eru kenndir við dýrðlinga katólsku kirkjunnar, þeir heita Leo og Tiburtius og mörgum fleiri nöfnum, oftast latneskum, fáir heita íslenzkum nöfnum, en þó eru þeir til (Þor- láksmessa t. d.). Dagarnir heita beinlínis þessum nöfnum, 11. apríl heitir Leonisdagur, gömul rímvísa hljóðar svo: »Sumarkomu sýni ég lag — svo þér bregðist eigi — finndu annan fimmtudag — frá Leonisdegi*. 14. apríl heitir Tíbúrtíusmessa, en 11. ágúst aðeins »Tiburtius«. í Sturlungu (útg. Sig. Krist., þriðja bindi, bls. 296) stendur: »Nú ríðr Gizurr með þessum flokki norðr Oxnadalsheiði laugarnótt fyrir Pálsmessu, en hon var dróttinsdag eptir«. Þetta er talið vera 1254, og víst er um það, að það ár bar Pálsmessu upp á sunnu- dag, en til hvers er þetta, ef lesandinn veit ekki hve nær Pálsmessa er? í ný- útkomnum Höskuldsstaðaannál um árið 1761 stendur »vorið og tíðum fjúka- samt og kalt til Medardus«. Þessar dagsetningar eru úr fornbréfasafninu: »Þus- und fiogur hundrud sextiger ok siau ar. faustudagin næsta fyrer mariu messo sidari um sumarit*. D. I. V. bls. 488. — »M° d° XXX0 IX° favstvdaginn næsta epter avgvttvmesso vm vetvrinn«. D. I. X bls. 407. Okkur hefir einnig verið borið á brýn ósamræmi í rithætti. Þetta getur naumast verið rétt. Við höfum gert okkur mjög far um að vanda stafsetningu og prófarkalestur. Við fylgjum fastri reglu um stafsetninguna. Hún er svona: Nöfn eins og Leo eða Tiburtius skrifum við með latneskri stafsetningu og ef til vill beygingu líka, en ef *messa« stendur aftan við nafnið, teljum við það íslenzkt og skrifum þá t. d.: »Tíbúrtíusmessa«. Eins er um latnesk nöfn, sem algeng eru hér (Markús, Júlíus), við skrifum þau upp á íslenzku. Við höfum sem sagt oftar en einu sinni orðið fyrir opinberum aðfinningum um almanakið, en við höfum ekki tekið þær nærri okkur, höfum talið þær fremur vera gerðar af yfirlæti, heldur en af íhugun eða þekkingu. Ó. D. og Þ. Þ. (23)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.