Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1973, Page 50
HÁTÍÐISDAGAR 1971-1975
Ár Páskar Sumard. fyrsti Uppstigning. Hvítasunna
1971 11. apríl 22. apríl 20. maí 30. maí
1972 2. apríl 20. apríl 11. maí 21. maí
1973 22. apríl 19. apríl 31. maí 10. júní
1974 14. apríl 25. apríl 23. maí 2. júni
1975 30. marz 24. apríl 8. maí 18. maí
UM HEIMILDIR OG ÚTREIKNING ALMANAKSINS
Aðalheimildin að hinum stjörnufræðilega hluta almanaksins er nú
sem undanfarin ár brezk-bandaríska almanakið The Astronomical
Ephemeris, sem einnig er gefið út undir nafninu The American
Ephemeris and Nautical Almanac. Töflur þess almanaks eru reikn-
aðar í almanaks- og reiknistofnunum í Bandaríkjunum, Bretlandi,
Þýzkalandi, Frakklandi, Rússlandi og Spáni. 1 þeim er að finna
upplýsingar um himinstöður sólar, tungls og reikistjarna, sem
síðan eru lagðar til grundvallar við útreikninga íslenzka almanaks-
ins.
í almanakinu í ár eru flestar tölur um gang himinhnatta á íslandi
reiknaðar með tölvu Raunvísindastofnunar Háskólans (IBM 1620).
Við útreikning á myrkvum Algol var stuðzt við upplýsingar í hand-
bók brezka stjörnufræðifélagsins (British Astronomical Association).
Brezka almanaksskrifstofan (H. M. Nautical Almanac Office,
Royal Greenwich Observatory) sá um útreikning stjörnumyrkva
fyrir Reykjavík. Bandaríska almanaksskrifstofan (Nautical Almanac
Office, U.S. Naval Observatory) annaðist útreikning sólmyrkva
fyrir Reykjavík á sama hátt og áður. Flóðtöflurnar hafa nú sem
fyrr verið unnar I sjávarfalIastofnun(Tidal Institute and Observatory)
háskólans í Liverpool fyrir milligöngu Sjómælinga íslands. Upp-
drátturinn sem sýnir seguláttir á íslandi, er gerður hjá Raunvísinda-
stofnun Háskólans eftir kanadískum fiugmælingum frá árinu 1965,
og þeim breytingum sem mælzt hafa I segulmælingastöð Raun-
vísindastofnunarinnar. Taflan um vindkælingu er unnin úr gögnum
sem Veðurstofan lét í té.
LÖG UM ALMANÖK
Samkvæmt lögum nr. 25, 27. júni 1921, hefur Háskóli íslands
einkarétt til að gefa út og selja eða afhenda með öðrum hætti
almanök og dagatöl á fslandi. (Sjá nánari greinargerð í almanaki
fyrir 1966.)
Hið íslenzka þjóðvinafélag hefur með samningi keypt einkaleyfi
þetta í ár, og nær það til allra almanaka í bókarformi.
(48)