Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1973, Page 104
þar í smíðum stærsta fjölbýlishús á Islandi. Eru í
því 308 íbúðir og grunnflötur þess 4500 fermetrar.
Talsvert var einnig unnið að íbúðabyggingum í vest-
urhluta Breiðholtshverfis og í Fossvogshverfi aust-
anverðu. Lokið var að mestu lagningu hitaveitu í
Skildinganeshverfi, og unnið var að hitaveitulagn-
ingu í nýju hverfin í Breiðholti og í iðnaðarhverfið
á Bæjarhálsi. Var þá Blesugróf eina hverfið í
Reykjavík, sem ekki hafði fengið hitaveitu. Unnið
var að undirbúningi að endurbyggingu Gvendar-
brunna og stækkun Vatnsveitu Reykjavíkur. Lokið
var að fullu byggingu mikils vatnsgeymis í Selási.
Unnið var að undirbúningi að endurbyggingu hol-
ræsakerfis Reykjavíkur. Mikið var einnig unnið að
gatnagerð. Lækjargata og Kalkofnsvegur voru
breikkuð, og minnkaði þá Stjórnarráðsbletturinn
mikið, og varð að flytja stytturnar, sem þar voru,
nær húsinu. Gatan Elliðavogur var lögð undir Miklu-
braut, sem liggur á umferðarbrú yfir gatnamótin.
Unnið var að skrúðgörðum, leikvöllum, leikskólum
og dagheimilum. Leikskólar voru byggðir í Laugar-
neshverfi, Fossvogshverfi og Breiðholtshverfi. Dag-
heimili fyrir vangefna, Bjarkarás, tók til starfa við
Stjörnugróf. Unnið var að húsi Blindrafélagsins.
Unnið var í Grensási að hjúkrunarheimili fyrir aldr-
aða. Byggingu dvalarheimilis fyrir aldraða í Laug-
arási (79 íbúðir) var að mestu iokið. Lokið var bygg-
ingu fyrsta húss Öryrkjabandalagsins við Hátún
og unnið að byggingu annars hússins. Unnið var að
undirbúningi að stækkun Borgarsjúkrahússins.
Unnið var að stækkun Landsspítalans, einkum fæð-
ingardeildar, og Kleppsspítalans. Unnið var að Hall-
grímskirkju. Voru henni afhentar stórar kirkju-
klukkur, sem S.Í.S. gaf, og klukkuspil var sett upp
(102)