Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2004, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004
Menning DV
íslensk tónlist í útrás
Fimm tónleikar sem voru á dag-
skrá Listahátíðar íReykjavik 2004,
og hafa allir verið á dagskrá Rásar
7 / Rikisútvarpinu, hafa verið seldir
til 60 borga í Evrópu, Bandaríkjun-
um, Asíu og Ástralíu. Þetta kemur til
að aðild Ríkisútvarpsins að Europi-
an Broadcasting Union eða EBU og
góðu samstarfi Listahátiðar í
Reykjavík við erlenda listamenn.
Útsendingarnar sem hér um ræðir
eru frá tónleikum kanadíska píanó-
leikarans Marc-André Hamelin sem
fram fóru í Háskólabíói en sú upp-
taka hefur þegar verið seld til 18
borga um allan heim, tónleikar
hinnar itölsku háklassísku hljóm-
sveitar I Solisti Veneti sem fram fóru
á sunnudagssiðdegi í Hallgríms-
kirkju hafa verið seldir til 12 borga,
tónleikar Susana Baca frá Perú, sem
hélt tvenna tónleika á Broadway,
hafa verið seldir til 7 0 borga, Brod-
sky kvartettinn sem kom bæði fram
í íslensku óperunni og Borgarleik-
húsinu til 9 borga og tónleikar
Karlakórs St. Basil dómkirkjunnar i
Moskvu sem fram fóru i Hallgríms-
irkju hafa verið sendir út i 8 borgum
bæði austan hafs og vestan.
Stórborgirnar sem hafa notið
góðs af Listahátið í Reykjavík og
* í S LMk
Rikisútvarpinu eru m.a. Seoul,
París, Riga, Montreal, Wasington,
Kaupmannahöfn, Sidney, Vín,
Stokkhólmur, Ankara, Varsjá og
Madrid.
vin sinn samkynhneigðan Billa sem
er í óða önn við að sukka í borginni
við sundin. Þrándur slæst glaður í
leikinn.
Svikinn sögumaður
Á ferðalagi sínu heldur söguhetj-
an dagbók og ritar þar í eitt og ann-
að. Þannig eru innbyggðar í söguna
pælingar um frásagnarhátt og sjón-
arhorn án þess að það sé á nokkurn
hátt truflandi. Þykir mér Eiríki Erni
takast þarna afar vel upp. Sögumað-
urinn er svikinn um hlut sinn og
verkið færist nær höfundi. Þar með
gefur Eiríkur tmdir fótinn með það
að sagan byggi að verulegu leyti á
sannsögulegum atburðum sem
verður til þess að auka á trúverðug-
leika. Auk þess er notast við tölvu-
póst milli persóna til að varpa auknu
Ijósi á þær.
Eiríkur leikur sér að því að skapa
söguheim sem stenst á eigin for-
sendum með margvíslegum vísun-
um í samtíma og sögu. Býsna gott en
merkilegur má heita sá þroski hjá
svo ungum höfundi að vera sam-
hliða með fléttu sem heldur lesand-
anum vel við efnið. Hugsjónadrusl-
an gefur sannarlega fyrirheit um
glæstan feril.
Jakob Bjamai Grétaisson
Fyrmit um
glæstan leril
Hugsjónadruslan er glæsileg
fyrsta skáldsaga höfundar. Einhver
glæsilegasta fyrsta skáldsaga höf-
undar sem ég hef lengi lesið. Það er
kannski óviðeigandi að nefna það
hér á þessum vettvangi en ég læt
bara vaða. Þarna er sami krafturinn
og í hinum Falska fugli Mikaels
Torfasonar sem kom 1997. Sama
flæðið, sama ákefðin, sama hispurs-
leysið, sama greddan. Þarna í felst
kostur sem er hraði í frásögn, hug-
myndaauðgi og frumleiki.
Vottur af vanmetakennd
En galii lfka. Þessi ákefð getur
reynst þreytandi. Og Hugsjóna-
druslan er á köflum of klámfengin:
„Ég held að tussan á henni sé
pestarbæli. Ég meinti það þegar ég
sagði að hún væri lauslát. Ég man
varla eftir henni öðru vísi en með
typpi milli fótanna eða oní koki,
nema hvoru tveggja væri." (Bls. 186)
Ég er ekki að fara fram á tepru-
skap, síður en svo. En við svona seg-
ir maður bara: Æjiii... Þetta er svona
eins og höfundur sé að rembast við
að sannfæra lesandann um að bókin
sé heiðarleg. Allt látið vaða. En Eirík-
Eiríkur Örn er einmitt
bestur þegar hann
veltir fyrir lífslygi, lífs-
háska og innbyggð-
um mótsögnum í ýms-
um ismum sem sögu-
persónur flækja sig
fúsar í.
Hugsjóna- druslan Eftir Eirík Örn Norðdahl Útgefandi Mál og menning ..„■■ ■ ■'•■■ í t\
Bækur
ur örn þarf ekki á þessu að halda.
Hann hefur aðdáunarverð tök á stfl
og bókin er heiðarleg þrátt fyrir en
ekki vegna þessara bersöglimála. En
ég „... væri ekki fyrsti maðurinn til að
skilja heiminn og hafa rangt fyrir
mér.“ (bls. 16) Slíkar hugleiðingar
mega þá heita vei þróuð lygi. Eiríkur
er einmitt bestur þegar hann veltir
fyrir lífslygi, lífsháska og innbyggð-
um mótsögnum í ýmsum ismum
sem sögupersónur flækja sig fúsar í.
Pósthippismi og frjálsar ástir
Bókin er bítnikkabók, fjallar um
Þránd sem er á ferð með Norrænu á
leið til Færeyja. Hann sefur yfir sig í
ferjunni og fer beint til Danmerkur
þangað sem ferðinni var reyndar
heitið til fundar við Maggie, stúlku
sem hann hafði kynnst á Netinu. Á
leiðinni hittir Þrándur Anní, fær-
eyska stúlku sem hann fellur fyrir,
og þar með er grunnurinn lagður
fyrir spennandi ástarþríhyrning.
Það sem verður til að flækja enn
þau mál er að Maggie aðhyllist pól-
íamóríu sem er einhvers konar
pósthippismi sem snýst um frjálsar
ástir. Að menn megi sænga hjá
hverjum sem er, bjóði þeim svo við
að horfa. Þegar Þrándur er kominn
til Kaupmannahafnar hittir hann
Dynkur
eftir Brian
Pilkington
Mál og menning
Verð 1.990 kr.
DV-mynd E.ÓI.
Bækur
fáir hafa vit og þekkingu til að kenna
ungum börnum.Jafnframt gerir sag-
an heim trölla aðlaðandi og skiljan-
legan og færa hann nær mannheim-
um okkar tíma sem er gott. Forn bá-
bylja eins og tröllatrú gerirheim fjar-
lægrar náttúru lifandi í augum barna
og tryggir á sinn hátt að þau um-
gangist náttúruna sem dauðan
brúkshlut.
Páll Baldvin Baidvinsson
Með dynk
Brian Pilkington hefur um áratuga-
skeiö verið afkastamikill teiknari og
komiö að mörgum bókum fyrir börn,
líka sem höfundur. Reyndistþað mikill
akkur fyrir Islenska bókaútgáfu þegar
hann settist hér að fyrir þremur ára-
tugum. Hefur honum hlotnast marg-
vislegur sómi síðan, meðal annars
Dimmalimm, myndskreytingarverö-
laun Islenskra teiknara fyrirMána-
steina I vasanum 2002.
Sagan hans af Dynk - trölla-
stráknum sem óttaðist dagsbirtuna -
er harðspjaldabók prentuö á flnan
pappír, snoturlega frágengin I prenti
meö glæsilega lituðum myndum. Texti
sögunnar er eitt, henni fylgja skondnir
smátextar og fróðleiksmolar sem
gefa bókinni aukið vægi. Myndirnar
eru fullar af smáatriðum og lifandi I
óviðjafnanlegri drátttækni hans.
Sagan nýtir sér þann forna trúnað að
tröll séu næturverur og þoli ekki dags-
birtuna. Dynkur er leiddur afmóöur
sinni út I dagsljósið. Hann þarfað að-
lagast Ijósinu og kynnist vorveröld
landsins I fyrsta sinn að degi tihJurt-
um, skorkvikindum, regni og sól,
skepnunum I lofti og á láði, líka mann-
fólkinu. Hann fer á jökul og sér sól setj-
astísæ.
Dynkur er falleg saga fyrir ung börn.
I henni leynast smábrot um Islenska
náttúru, einkum heim jurtanna, sem
Brlan Pllldngton er með jólasveina, en þekkir llka tröll.