Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2005, Síða 10
1 0 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005
Fréttir 0V
Brynhildur er sterk leikkona,
hæfileikarík og metnaðar-
gjörn. Hún erákveðin og víð-
sýn, finnur nýjar hliðar á öll-
um málum og kann að nálg-
ast hluti svo hún geti unnið
með þá. Hún leggursig alla
fram við það sem hún tekur
sér fyrir hendur og er glaðleg
og skemmtileg.
Brynhildur á það til að vera
of ákveðin, svo það jaðrar
við þrjósku. Hún fæst ekki
til að víkja frá þeim ákvörð-
unum sem hún tekur. Hún
er stundum ofdómhörð á
sjálfa sig og umhverfi sitt.
Hún er er lítillát þrátt fyrir
að hafa gert stóra hluti.
„Hún er dásamleg
manneskja og ótrúlega
klár."
Edda Arnljótsdóttir, leikkona
og vinkona.
„Hún erein affáum
manneskjum sem ég
þekki sem getur bók-
staflega allt. Efhún vill
eitthvað þá leitar hún
leiða til að ná þvi, hún nær ár-
angri I öllu sem hún ætlar sér.
Hún er ótrúlega hæfileikarlk og
ferlega fyndin. Hún getur verið
frekar gagnrýnin, bæði á sjálfa
sig og aðra."
Harpa Þórsdóttir, listfræðingur og
vinkona.
„Mér finnst hún einstak-
lega gáfuð og skemmti-
leg, falleg og hæfileikarlk
manneskja og jafnframt
er hún réttsýn. Hún er líka
hógvær og það er kannski
um leið hennar galli. Efhún vissi
hvað hún er frábærætti hún
ekki I vandræðum með að sigra
heiminn."
Atli Rafn Sigurðarson, leikari og eigin-
maður.
Brynhildur Guðjónsdóttir er fædd 26. sept-
ember 1972. Hún lauk námi í leiklist við
Guildhall School ofMusic and Drama vorið
1998. Brynhildur hefur leikið I nokkrum
kvikmyndum, meðal annars Villiljósi,
Reykjavlk Guesthouse og Monster. Hún er
fastráðin við Þjóðleikhúsið og hlaut
Grímuna fyrir leik sinn í titilhlutverki í söng-
leikritinu um Edith Piaf.
Eldsvoðar
í Kópavogi
Aðfaranótt nýársdags
var tilkynnt um eld í und-
irgöngum undir Reykja-
nesbraut. Reyndist hafa
verið kveikt í nokkrum
hjólbörðum. Slökkvilið var
kvatt á vettvang. Litlar
skemmdir urðu vegna
þessa. Síðdegis sama dag
var tilkynnt um eld í bif-
reið fyrir utan fyrirtæki við
Smiðjuveg. Áður en
slökkvilið náði að ráða
niðurlögum eldsins hafði
önnur bifreið til viðbótar
brunnið og einnig urðu
skemmdir á klæðningu
hússins sem bifreiðarnar
stóðu upp við.
Verslunarmannahelgin fór í vaskinn hjá neonskiltagerðarmanni þegar lögreglan
fann á honum hálft gramm af hassi. Hann sagðist hafa verið í fötum af stelpu, setti
hassið upp í sig og sagði síðar að hann hefði haldið það vera nammi.
U,-----------—
Þjóðhátfð i Vestmannaeyjum
Þjóðhátíðin 2003 var misviöburða-
rík fyrir þá sem skemmtu sér þar.
Einn lenti í fangelsi og reyndi að
borða hassmola. Myndin er af
þjóðhátíðargestum sem tengjast
ekki fíkniefnamisferlinu.
Sagði hassifi sælgæti
og peyndi að horða bað
Ótrúleg frásögn tæplega þrítugs neonskiltagerðarmanns af því
hvernig hass komst í vasa hans bjargaði honum ekki frá því að
vera dæmdur til greiðslu sektar fyrir fíkniefnamisferli í Héraðs-
dómi Reykjavíkur á dögunum.
Maðurinn var að
skemmta sér á Þjóð
hátíð í Vest-
mannaeyjum í
hittiðfyrra þeg-
ar lögreglan tók
hann grun-
aðan um að
hafa brotið
rúðu í
bókaversl-
un. Hann
reyndist
hafa á sér
hálft gramm
af hassi, sem
hann játaði
við lögreglu
eiga.
í yfirheyrslu fyrir
dómi breyttist frá-
sögnin á þann hátt að
Nammi
að
hann hefði lent í röð tilviljana-
kenndra atvika sem ollu því að
skyndilega hafði hann hass undir
höndum.
Þegar lögreglumaður
yfirheyrði manninn
ákvað hann að
leggja áherslu á'
mál sitt með
því að slengja
hassmola
mannsins á
borðið
fyrir
fram-
an
hann.
Engan lögreglumannanna
renndi í grun að maðurinn myndi
hrifsa til sín molann og stinga
honum upp í sig. Hlynur Bjarklund
Sigurðsson lögreglumaður brá þá á
það ráð að stinga fingrinum upp í
manninn og krækja molanum út úr
honum. Við það varð maðurinn
mjög æstur. Þá var honum varpað
hasslausum í fangaklefa. Þegar
hann útskýrði tilraun sína til að éta
sönnunargagnið fyrir héraðsdómi
sagðist hann hafa haldið að hass-
molinn væri nammi. Aldrei hefði
hann prófað fíkniefni og því færi
hann varla að gleypa þau.
Vildi út
Maðurinn sagið játningu sína
hafa verið algerlega út í hött. Hann
sagði fyrir héraðsdómi að hann
hefði verið ölvaður og aðeins viljað
sleppa frá lögreglunni. Þess vegna
hafi hann játað - á algerlega fölsk-
um forsendum.
En héraðsdómur trúði honum
ekki og dæmdi hann til að borga 28
þúsund krónur í sekt. Hann hafði
játað fyrir lögreglu að hafa keypt
eitt gramm af hassi á 1.500 krónur.
„Ég svafhjá einhverrí
sætrí stelpu og ég var í
fötunum hennar þeg-
arlögreglan tókmig."
í fötum af stelpu
í samtali við DV rekur maðurinn
ófarir sínar til ástarævintýris sama
kvöld og hann var gripinn með
hassið. Hann segir aðstæður afar
óvenjulegar í Vestmannaeyjum
þegar Þjóðhátíð stendur yfir og því
sé þrátt fyrir allt fyllilega mögulegt
að hann hafi ekki átt hassið. „Það er
kannski ástæðan fyrir því að ég
endaði með hassmola á mér. Ég
svaf hjá einhverri sætri stelpu og ég
var í fötunum hennar þegar lögregl-
an tók mig. Þess vegna var ég með
þennan hassmola á mér, óafvit-
andi,“ segir neonskiltagerðarmað-
urinn, sem íhugar að áfrýja til
Hæstaréttar.
jontrausti@dv.is
Ný rannsókn á rykmauraofnæmi leiddi óvænta hluti í ljós
ísland er ryk-
maurafrítt
„Þetta er stórmerkileg niðurstaða
finnst mér,“ segir Davíð Gíslason
læknir sem fór fyrir rannsókn til að
skýra rykmauraofnæmi á íslandi.
Við rannsóknina kom í ljós að
rykmaurar og ofriæmisvakar þeirra
finnast ekki hér á landi.
„Við áttum ekki von á þessu. Ég
held að eina hugsanlega skýringin á
þessu sé sú að þar sem við eigum
nóg af heitu vatni og hitum húsin
okkar vel er rakasúgið það lágt að
rykmaurar þrífast ekki hér á landi.
Rykmaurar lifa betur í rakamiklu
umhverfi. Þó rannsökuðum við líka
hús sem voru illa byggð þar sem við
töldum að rakastig væri hærra en
það fundust heldur engir rykmaurar
þar. Það eru dæmi um rykmaura alls
staðar í kringum okkur, til dæmis á
Grænlandi og Færeyjum, en þeir
virðast ekki vera hér á landi," segir
Davíð.
Það sem áður hefur verið tahð
rykmauraofnæmi hér á landi er í
raun ofnæmi fyrir einhverju öðru.
„Það eru hluúr sem valda svipuð-
um ofnæmisviðbrögðum og ryk-
maurar, til dæmis heymaurar, en
Rykmaur Öfugt við það sem áður var hald-
ið þrlfast þeir ekki hér á landi.
það kom í ljós að tveir þriðju þeirra
sem talið var að væru með ryk-
mauraofnæmi eru í raun með
heymauraofnæmi. Annað sem veld-
ur svipuðu ofnæmi eru rækjur,
kakkalakkar og moskítóflugur," segir
Davíð.
Rannsóknin verður kynnt á
ráðstefnu í Háskóla íslands um
rannsóknir í h'f- og hehbrigðisvís-
indum sem hefst í öskju í dag.
toi@dv.is