Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2005, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2005, Síða 28
JT* f í? £ £í15j í 0 £ Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar ^nafnleyndar ergætt. r~’ (J ^ Q Q (J SKAFTAHLÍÐ 24, WSREYKJAVÍK [ STOFNAÐ1910 ] SÍMISS05000 690710 111117" * • Orðrómurinn á götunni segir að miklar skipulags- breytingar standi fyrir dyrum innan útgáfunnar Eddu. Til athugunar er að leggja niður allt sem heitir útgáfustjórar, að þeir verði sem sagt í eintölu, einn yfir öllu. Og jafnvel að farga merkjum; Vöku-Helga- felli, Máli og menningu og AB, og gefa út undir nafni Eddu útgáfu. Þetta þýðir að aðra titla þarf að finna á Dröfn Þór- isdóttur, Pál Valsson og Bjama Þor- steinsson eigi þau að starfa eftir sem áður innan fyrir- tækisins... Líflátshótun 50 þúsund krona sekt „Það er ódýrt sport að ógna ís- lendingum," segir Asgeir Hannes Ei- ríksson, veitingamaður og fyrrum alþingismaður, sem kærði erlendan starfsmann Alþjóðahússins fyrir að hóta sér lífláti með tölvupósti. „Þeir voru að dæma hann í héraðsdómi með 50 þúsund króna sekt fyrir at- hæfið. Sjálfur er ég þakklátur fyrir að vera á lífi.“ Umræddur maður er frá Ghana og var leystur frá störfum sínum í Al- þjóðahúsinu þegar lögreglan fór að rannsaka líflátshótanir hans sem beindust að fleirum en Ásgeiri Hannesi. Tilefni hótunarinnar var framganga Ásgeirs Hannesar í út- varpsþætti á Bylgjunni um fjöl- menningarsamfélagið hér á landi. Þótti Ghanamanninum sem að sér og kynþætti sínum væri vegið í þætt- inum og greip þá til tölvupóstsins og sendi Ásgeiri Hannesi líflátshótun. „Ég veit ekkert frekar um þetta mál en finnst í sjálfu sér ágætt að búið sé að dæma manninn. En held- ur finnst mér 50 þúsund krónur h'tið þegar um líf manns er að tefla,“ seg- ir Ásgeir Hannes, sem í ffamhaldi málsins ræddi hugmyndir um stofn- un þjóðernisflokks sem hefði það á Ásgeir Hannes að störfum sinum, Blásteini í Árbæjarhverfi Þykirsem lífsitt sé ekki hátt metiö hjá dómstólum. stefnuskrá sinni að takmarka inn- flutning á útlendingum hingað til lands. Sagði Ásgeir Hannes við það tilefni að ekki þyrfti nema að smella saman fingri og þá væru mörg hundruð manns komin í slíkan flokk. „Þetta er allt í burðarliðnum enn- þá. Fólk er að hringja sig saman og það er aðeins spurning um tfma hvenær svona flokkur verður stofn- aður hér á landi, hvort sem ég kem þar nærri eða ekki," segir Ásgeir Hannes. Ekki tókst að fá upplýsingar um það í gær hvort Ghanamað- urinn hefði fengið starf sitt í Al- þjóðahúsinu aftur. Alþjóðahúsið Vinnu staður Ghanamanns- ins sem hótaði fólki með tölvupósti. GYM - Rfl V 1 R K A R ! Fyrirtæki, starfsmannafélög, hópar! Leitið tilboða hjá okkur Verð 1 mán. = 7.500,- / 3 mán. = 15.900 12 mán = 38.000 Suðurlandsbraut 6b - 108 Reykjavík - Sími 588 8383

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.