Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 19
17
annað, og hafa þá nokkru frjálsari hendur með val aðal-
starfs síðara námskeiðið, en ekki eru námskeiðin beint
framhald hvort af öðru, og skólinn ekki nema að nokkru
miðaður við það, að slíkt framhaidsnám sé tekið.
Tilgangur skólans er að ala upp dugandi húsmæður
fyrir sveitaheimili. Með þessu er í raun og veru alt um
skólann sagt. Við þetta eitt er alt starf þar nriðað, og öll
tilhögun úti og inni; það setur sinn svip á alt. Þótt skólinn
sé í mjög þéttbýlli bygð eða þorpi, er þó sveitakyrðin
vernduð. Við hliðið þar sem vegurinn liggur inn á land
skólans er letrað á spjald: Hér nema bifreiðarnar staðar.
Það er eitt tákn jæss, að hér á að vera friðsælt heimili.
Gestum er þar forkunnarvel tekið, en það er ekki séð eftir
þeim til að ganga heim túnið.
Skólinn er eitt heimili út af fyrir sig. Hann á fyrst og
fremst að sýna í verki, hvernig sveitaheimili eiga að vera
og geta verið. Þessvegna er engin heimanganga leyfð.
Stúlka, sem býr í næsta húsi, nokkra faðma frá skólanum,
verður að búa þar og fylgja öllum heimilisreglum. Nem-
endur og kennarar eru saman allan daginn; allur dagurinn
er samfeld kenslustund, og má þar ekkert falla úr. —
Kenslan er öll verkleg að heita má. Hún er æfing í því að
vinna þau verk, sem fyrir koma á sveitaheimili, og vinna
þau eins og þau verða best af hendi leyst. Og hér er ekki
gl'eymt því, seni smátt er kallað, en þó á svo mikinn þ)átt í
því að setja blæ á heimilið.
í fyrsta lagi er nemenduin kent að laga til í sinni eigin
íbúð og halda þar öllu í reglu. Stúlkurnar búa tvær eða
þrjár saman á herbergi og laga til í herberginu á morgn-
ana til skiftis undir ströngu eftirliti. Strax fyrsta starfs-
daginn segir forstöðukonan þeinr sameiginlega, hvernig
það eigi að gerast. Síðan fara stúlkurnar til herbergjanna
og framkvæma verkið, en að því loknu gengur kenslukon-
2
L