Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 28
26
fyrir sveitina og gagn það, er hann mundi gera í fram-
tíðinni. Urðu nokkrar umræður um málið á víð og dreif,
en vegna þess, að máiið er nauðsynjamál, er þarf mikill-
ar umhugsunar og góðs undirbúnings, var samþykt svo-
hljóðandi tillaga:
»Fundurinn er hlyntur því, að unglingaskóla sé komið
»á fót í sveitinni, og felur málið 3. manna nefnd fyrst
»framvegis; skal sú nefnd reyna að fá sér sem bestar
»upplýsingar um málið og halda því vakandi«.
í nefndina voru kosnir: Arnór Sigurjónsson, Árni Jak-
obsson og Glúmur Geirason«.
Eins og sjá má af þessari bókun, vakti það fyrir for-
göngumanni málsins í upphafi að stofna unglingaskóla
fyrir sveitina. Hann var þá barn að aldri, 17 ára gamall,
og mun honum hafa þótt málið allstórt, þó að ekki væri
í meira ráðist, til að byrja með. Þó var þeirri hugmynd
varpað fram í umræðunum, bæði af honum og öðrum, að
þessi unglingaskóli yrði vísir að alþýðuskóla fyrir hérað-
ið alt. Til voru að vísu þrír unglingaskólar fyrir í hérað-
inu, skólarnir á Ljósavatni og Húsavík og skóli á Skútu-
stöðum við Mývatn, sem þó starfaöi ekki nema annan-
hvorn vetur. En skóli í Reykjadal var að ýmsu leyti best
settur, til að vera fyrir héraðið alt, og svo voru þau húsa-
kynni, sem honum voru ætluð, þinghús Reykdæla, þrátt
fyrir alt betri en þau húsakynni, sem hinir skólarnir höfðu.
Ressi stefna í málinu hafði fengið festu, er það kom aftur
fyrir fund í félaginu 26. febrúar, eins og sjá má á því,
sem þá var um það bókað:
»1. mál á dagskrá var unglingaskóli, framhaldsumræða.
Framsögumaður nefndar þeirrar, er kosin var á síðasta
fundi, las upp rökstutt álit frá nefndinni um málið, og
voru þetta helstu tillögur hennar:
1. að reynt verði að sameina alla unglingaskóla sýsl-