Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 43
41
handa skólanum. Lagöi presturinn það til i bréfi til kirkju-
stjórnarinnar, að sú lóð yrði Hjalthúsatún, sein er vest-
asti hluti Grenjaðarstaðatúns. En bréf kirkjustjórnarinnar
um byggingarréttindi á Grenjaðarstöðuin er á þessa leið:
»Biskupinn yfir íslandi.
Reykjavík 15. mars 1923.
Dónis- og kirkjumálaráðúneytið hefur í gær ritað mér
á þessa Ieið:
»Út af erindi yðar, háæruverðugi herra, dags. 3. þ. m.,
»um að Sambandi þingeyskra ungmennafélaga verði leigð
»lóðarspilda úr Grenjaðarstaðalandi undir alþýðuskóla,
»skal yður hér með til vitundar gefið til frekari birtingar,
»að vænta má staðfestingar á samningi um leigu á lóð úr
»Iandi prestssetursjarðarinnar með ákveðinni stærð og á-
»kveðnum mörkum til handa Sambandi þingeyskra ung-
»mennafélaga gegn hæfilegu árgjaldi.
»Hinsvegar telur ráðuneytið ekki rétt, eins og þér tak-
»ið fram, að staðfesta sainning með því ákvæði, að Grenj-
»aðarstaðaprestur skuli jafnan vera í stjórn skólans, nema
»þá því aðeins, að það ákvæði sé bundið við núverandi
»prest, en falli niður, er hann fer frá jörðinni«.
Þetta er yður hér með til vitundar gefið.
Jón Helgason.
Herra Þórólfur Sigurðsson, Baldursheimi«.
Skólamálið hafði að öðru leyti verið fært í horfið með
því, að Sveinbjörn Jónsson bygginganneistari á Akureyri
liafði eftir ósk og fyrirsögn Arnórs Sigurjónssonar gert
uppdrátt að skólahúsi og áætlun um byggingarkostnað
þess húss. Eftir þessum uppdrætti var að vísu ekki bygt,
en þó varð hann og kostnaðaráætlunin, til að skýra málið
á ýmsa lund, og varð að miklú gagni á því stigi málsins,
sem það stóð um þessar mundir. I marsmánuði 1923 fengu
þeir Þórólfur og Arnór Jóhann Fr. Kristjánsson húsa-