Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 52
50
ins annar en Jónas Jónsson frá Hriflu haft sérstaklega
augastað á þeim stað fyr.
Heimildarskrá sú, er Sigurjón gaf fyrir byggingu skól-
ans á Litlulaugum, er gefin út á Húsavík 8. apríl 1924,
og eru aðalatriði hennar þessi:
1. Skólinn fær keypta lóð, 2—4 dagsláttur að stærð á
50 krónur hverja. — Þegar skólanum var mæld út lóðin,
varð hún 12% dagsláttur, og gaf Sigurjón hana.
2. Réttur til tveggja lauga í Litlulaugabrekku til heim-
ilisnota — þar á meðal hitunar. — Laugar þessar eru 56
stiga heitar (Celsíus), og vatnsmagn þeirra 2 lítrar á
sekúndu. — Ennfremur réttur til kaldavermslulækjar í
sömu brekku. Réttur þessi skal vera ókeypis og ævarandi,
svo sem landslög frekast leyfa.
3. Skólinn fær leigðan c. 12 hektara landskika til 10
ára fyrir 50 krónur á ári. Að þeim tíma liðnum hefur hann
rétt til að kaupa þann landskika fyrir 1000 krónur. —
Þetta land var engi frá Litlulaugum, og hefur skólinn
keypt það fyrir ákvæðisverð nú þegar.
4. Skólinn fær leigt c. 45 hesta tún til 12 ára fyrir 90
kr. á ári. Þessu túni á skólinn raunar að skila smám sam-
an, og fer leigan minkandi í hlutfalli við það, sem skilað
er. Þá fær skólinn ennfremur leigðan nokkurn kartöflu-
garð við laugarnar með sömu leigukjörum, og öðrum eru
þar leigðir garðar.
5. Skólinn fær sumarbeit á Litlulaugaheiði f. 5 gripi.
6. Þegar liðin eru 20 ár frá stofnun skólans, og sé hann
þá vel á legg risinn og líklegur til gengis, fær harm kaupa-
rétt á öllu landi Litlulauga fyrir neðan heiðarbrún og
norðan bæjarlæk, að undanskildum hálfum kartöflugarði,
sem í brekkunni er, og nokkrum réttindum til lauganna,
sem þar eru. I landi þessu er tún það, sem skólanum er
leigt og allar aðal laugarnar í Litlulaugalandi.
Jafnframt þessu vann stjórn S. Þ, U, að því, að inn-