Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 53
51
heimta fjárloforð til skólastofnunarinnar og tryggja það,
að þau yrðu greidd, þegar bygt yrði. Mestu skifti auð-
vitað um ríkisstyrkinn. Eftir kosningar haustið 1923 þótti
sýnt, að stjórnarskifti mundu verða á þingi næsta ár, og
stjórn, sem mótfallin yrði skólastofnuninni mundi setjast
að völdum. Útvegaði stjórn S. Þ. U. sér því stjórnarbréf
fyrir greiðslu fjárins meðan gamla stjórnin sat enn að
völdum. Það stjórnarbréf hljóðar svo:
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið.
Reykjavík 6. mars 1924.
Eftir móttöku bréfs stjórnarnefndarinnar, dags. 18.
dcbr. f. á., um greiðslu úr ríkissjóði á fé því, sem veitt er
með 14. gr. B XIV,4, sem styrkur til að reisa alþýðuskóla
í Þingeyjarsýslu, skal stjórnarnefndinni hér með tjáð, að
ráðuneytið mun láta greiða nefndinni í mjðjum júní n. k.
10000 — tíu þúsund — krónur, gegn yfirlýsingu nefndar-
innar um, að þá sé búið að útvega og koma á byggingar-
staðinn byggingarefni fyrir 15000 — fimtán þúsund —
krónur, og ennfremur, að það af byggingarefninu, sem
getur brunnið, sé vátrygt í áreiðanlegu vátryggingarfélagi
fyrir upphæð, er svarar til kaupverðsins. Eftirstöðvarnar
af styrkupphæðinni mun ráðuneytið láta greiða nefndinni
smám saman, þegar um er beðið og send hingað yfirlýs-
ing nefndarinnar og vottorð yfirsmiðs um, að kostnaður
við bygginguna sé orðinn það mikill, að það, sem beiðst
er greiðslu á úr ríkissjóði í hvert sinn, að meðtöldu áð-
urgreiddu fé til byggingarinnar, fari ekki fram úr % —
tveimur fimtungum — kostnaðar, eins og hann er þá orð-
inn. Það er auðvitað, að ráðuneytið verður að áskilja, að
liúsið sé jafnan hæfilega vátrygt, eins meðan verið er að
byggja það eins og þá er fullgert verður.
(Sign.) Sig. Eggerz.
St. Gunnlattgsson.
4*