Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 61
59
var að byggja skólann í Litlulaugalandi samkvæmt heim-
ildarskrá Sigurjóns á Laugum. Var skólanum valinn stað-
ur á svonefndum Skiphól, nyrst í landareign Litlulauga
við Reykjadalsá.
Vinna við byggingu skólans var hafin 26. maí. Var
byrjað á því að ryðja veg af Reykdælabraut heim að
skólastaðnum og grafa þar fyrir grunni. Erfiðleikarnir við
að reisa skólann urðu geysimiklir. Það er nokkur ímynd
þess, að fundurinn, þar sem bygging hans var ráðin til
hlítar, var haldinn í stórhríð eða því sem næst. Svo mátti
og teljast, að verkið sjálft væri hafið í stórhríð. — Vor-
harðindi voru meiri um Norðurland 1924, en komið höfðu
síðan um aldamót, og langt er síðan, að búpeningur
manna og öll afkoma hefur staðið jafn tæpt í Þingeyjar-
sýslu. Við það bættist svo, að »Iömunarveikin« (mænu-
veikin) geisaði um héraðið. Mörg heimili urðu ekki sjálf-
um sér nóg um vinnukraft, önnur forðuðust samgöngur,
til að verjast veikinni. Þetta varð þess valdandi auk ýmissa
óhappa, sem á undan voru gengin, að hugir manna sner-
ust mjög gegn skólamálinu í bráð, og voru þeir ekki mjög
margir um skeið, aðrir en forgöngumennirnir sjálfir, sem
trúðu á sigursæl lok þess. Búist var við miklum flutning-
um á efni gefins, og brást það að mestu, Gekk c-nda
mjög illa að fá flutning á erlendu efni, þó að sá flutning-
ur væri borgaður því verði, sem hæst var á flutningum.
Var þá heldur eigi farinn að ganga um brautina upp
frá Húsavík nema einn bíll, og átti hann tengdasonur sr.
Helga á Grenjaðarstöðum og lét hann sér enganveginn
ant um skólaflutningana, en sýndi þó eigi óvináttu. Enn
jók það erfiðleika við skólabygginguna, að lönmnarveik-
in kom upp meðal verkamanna þar. Einn þeirra varð lam-
aður upp að mitti, og hefur ekki fengið nema nokkra bót
þess síðan. Öðrum pilti, er vann að flutningum fyrir skól-
ann, varð veikin að bana. Sömuleiðis dó úr veikinni ung