Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 62
60
og efniieg stúlka á næsta bæ viö skólann, og var frá þeim
bæ rétt mörg hjálþárhönd skólanum og þeim, er að bygg-
ingu hans unnu, lögö líkn við kulda og vosbúö. Einnig
kom veikin þungt niður á heimili Arnórs, er mest hvíldi á
um ailar framkvæmdir. Þar voru um alllangt skeið 6
sjúklingar rúmfastir, en hann stóð sjálfur uppi við annan
mann. Samt reis alþýðuskóli Þingeyinga af grunni hægt
og hægt. Var á það horft með miklum fögnuði þeirra
manna, er fyrir skólamálinu höfðu staðið og því voru vin-
veittastir, og með athygli flestra annara.
Það sem mestu þótti skifta, hvernig tækist, var hita-
leiðslan frá laugunum í skólahúsið. Sú leiðsla er um hálf-
an kílómeter á lengd, og bjuggust margir við, að vatnið
mundi mjög kólna á þeirri leið, enda væru laugarnar svo
hitalitlar, að lítið gagn væri að þeim. Jóhann Fr. Krist-
jánsson húsagerðarmeistari, sem var jöfnum höndum eft-
irlitsmaður við bygginguna fyrir ríkisins hönd og ráðu-
nautur framkvæmdarnefndar skólabyggingarinnar, fór til
Kaupmannahafnar um sumarið, til að kaupa inn alt sem
til leiðslunnar þurfti, fá uppdrætti og verkfræðilegar leið-
beiningar. Sú ferð tókst að vísu ekki að öllu leyti giftu-
samlega, því að allmikið ólag var á sendingu á því, er
keypt var, enda fór Jóhann frá Höfn til Reykjavíkur áðtir
en vörurnar voru afhentar. Varð þetta valdandi miklum
drætti við verkið og nokkrum kostnaði og erfiðleikum. En
þá kom óvenjulega góð hausttíð skólanum til bjargar, og
komst leiðslan upp um miðjan nóvember og reyndist
prýðilega vel.
Fokhelt varð húsið fyrstu dagana i október. Vegna mjög
góðs tíðarfars, mátti altaf vinna hiklaust að flestum störf-
um við það úti sem inni fram undir jól, enda kom upphit-
unin að nokkru gagni undireins síðast í október. Vinnu
var hætt við bygginguna II. desember, og var þá húsið
uppkomið að öðru en því, að efsta hæö var eigi sundui