Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 67
65
fengi 1. veðrétt í skólahúsinu, sem skylt var að hafa æfíð
vel vátrygt, og að 20 menn, sem sýslunefndin eða oddviti
hennar tekur góða og gilda standi »sem bakábyrgðarmenn
gagnvart sýslunni fyrir láninu, og fyrir því, að sýslan
þurfi ekki að annast eða taka að sér rekstur skólans um
næstu 15 ár, enda annist þeir um greiðslu vaxta og af-
borgana af láninu á þessu tímabili«. — Þeir 20 menn,
sem staðið höfðu í ábyrgð fyrir bráðabirgðalánum skól-
ans, gengust allir undir þessa ábyrgð, og var Iánið tekið
í júlíbyrjun 1925.
2. Þeir sóttu um 16 þúsund króna styrk til alþingis, til
að fullgera skólahúsið og byggja sundlaug við það. Þing-
ið veitti 5 þús. kr. til laugarinnar, og var hún bygð þegar
um haustið 1925.
3. Þeir lögðu fyrir fjárveitingarnefnd neðri deildar
beiðni um 15 þúsund krónur á næstu fjárlögum til rekst-
urs skólans. Fjárveitinganefndin tók þessa beiðni til
greina á þann hátt, að hennar vegna var hækkuð fjárveit-
ing til alþýðuskóla utan Reykjavíkur úr 30 þús. kr. í 38
þúsund. Alþingi samþykti þá tillögu. fjárveitinganefndar.
4. Þeir fengu fyrirheit Búnaðarfélags I'slands um það,
að styrkja verkleg búnaðarnámskeið við skólann á vorin.
— Skólinn hefur þó ekki treyst sér til að halda nema eitt
slíkt námskeið, vegna þess, að ekki hafa fengist nemend-
ur til að sækja þau.
5. Arnór samdi, ásaint Ásgeir alþm. Ásgeirssyni frum-
varp um alþýðuskólana, en það frumvarp hefur eigi kom-
ist fram í þinginu.
-----Jafnhliða þessu var að því unnið, að semja reglu-
gerð fyrir skólann. Þrír menn unnu einkum að samning
hennar: Jón Sigurðsson í Ystafelli fyrir hönd sýslunefnd-
ar S.-Þingeyjarsýslu, Konráð Erlendsson fyrir hönd á-
byrgðarmanna og Arnór fyrir hönd S. Þ. U. Jón Sigurðs-
5