Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 69
67
Pramanritað hréf ráðuneytisins tilkynni eg yður hér
ineð jafnfranit því að endursentla yður reglugerðina.
Virðingarfylst.
Jón Þórarinsson.
Til hr. skólastjóra Arnórs Sigurjónssonar, Litlulaug«.
Þegar Arnór hafði fengið þetta bréf, brá hann við þeg-
ar í stað, fékk umboð samverkainanna sinna við samning
reglugerðarinnar, til að gera á henni þær breytingar, er
líklegt mátti telja að þyrftu, til að fá hana staðfesta. Síð-
an gerði hann á reglugerðinni tvær málamyndar breyting-
ar. 1. I staðinn fyrir, að upphaflega stóð í 6. gr. reglu-
gerðarinnar: »Hver eldri deildarnemandi sk'al við burtför
úr skólanum skila verkefni í aðalnáinsgrein sinni, er skoð-
ast sem próf«, kom: »Hver eldri deildar nemandi skal við
burtför úr skólanum skila verkefni í aðalnámsgrein sinni,
og skal próf hans aðallega í því fólgið«. 2. Bætt var við
sömu grein þessari niðurlagsklausu: »Prófdómendur vel-
ur sýslunefnd S.-Þingeyjarsýslu, og skulu þeir undirrita
skýrslu um prófið«. Um þessa viðbót er það að segja, að
hún var bæði meinlaus og ástæðulaus, því að fræðslumála-
stjórnin hafði hvort eð var heimtað árlega skýrslu frá
prófdómendum sem skilyrði fyrir styrk til reksturs skól-
ans.
Arnór endurreit svo reglugerðina með þessum breyt-
ingum 11. sept. 1925 og fól Birni Jakobssyni fimleika-
kennara í Rvík, sem þá var á ferð hér nyrðra að »fylgja
henn gegnum stjórnaráðið«. Lét Arnór og fylgja reglu-
gerðinni skorinort bréf, þar sem hann sýndi fram á, að
forsendurnar fyrir synjun á staðfestingu reglugerðarinnar
voru rangar, því að ekkert er áskilið um, að ákvæði skuli
vera i reglugerðum alþýðuskóla um próf og prófdómara
í þeirri auglýsingu ráðherra frá 1910, sem vitnað er til í
5*