Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 70
68
bréfi ráðuneytisins eða nokkurri auglýsingu annari. Var
nú stjórnarráðið greiðara í svörum en í hið fyrra skiftið,
því að reglugerðin var staðfest athugasemdalaust 22.
spt., 11 dögum síðar en Arnór haföi frá henni gengið
norður á Laugum.
Vegna umsvifa þeirra allra, er Arnór hafði vegna skóla-
byggingarinnar og skólamálsins yfirleitt sumarið 1924 og
veturinn 1924—25, treysti hann sér ekki til þann vetur
að halda uppi skóla þeim, er hann hafði haldið á Breiðu-
mýri árin á undan. En er til loka sá með bygginguna á
Laugum, var í það ráðist að halda námskeið í heimilis-
iðnaði þar í nýja húsinu um tveggja mánaða tíma frá 1.
febrúar til marsloka. Var svo talið, að þau hjónin Arnór
og Helga Kristjánsdóttir stæðu fyrir því, og var það rek-
ið á ábyrgð þeirra beggja, en raunar hafði Helga ein for-
stöðu þess, því að Arnór var ekki heima, nema fáa daga,
meðan það stóð. Var á því námskeiði kent smíði, saumar,
og vefnaður. Nemendur voru 28. Gekk námskeiðið vel að
því, er við varð ráðið, en 3 nemendur fengu lömunarveiki
og einn hættulega botnlangabólgu. Skólinn fékk 800 kr.
í húsaleigu fyrir þetta námskeið. — Fyrstu tvær sumar-
vikurnar stóð S. Þ. U. fyrir íþróttanámskeiði í skólahús-
inu, og var Valdimar Sveinbjörnsson fimleikakennari í
Reykjavík kennarinn. Þótti það merkilegast við það nám-
skeið, að kent var þar sund í gömlu sundstæði sunnan
undir skólahúsinu. Voru menn ekki vanir slíku hér nyrðra
á þeim tíma árs, en nú naut heita vatnsins, sem leitt er
gegnum skólalnisið og svo hlýindanna inni. — Þessi nám-
skeið tvö má a. n. I. telja fyrsta starf Alþýðuskóla Þing-
eyinga, þó að enn væri hann ekki formlega stofnaður.
Stjórn S. Þ. U. hélt áfram fjársöfnun til skólabygging-
arinnar 1925, og gekk sú fjársöfnun betur en árið áður
mest vegna þess, að árferði var betra, enda sáu menn þá
líka, að Alþýðuskóli Þingeyinga var ekki skýjaborg að-
.