Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 71
69
eins. Mest var um það vert, að þrjú herbergi voru »inn-
réttuð« á efstu hæð skólahússins. Var það fátækur barna-
maöur, Jón Haraldsson á Einarsstöðum, sem kom því af
stað og kostaði hann innréttingu á einu herberginu og
heitir það Einarsstaðir. Annað herbergi kostuðu Reykja-
hlíðarbræður yngri (Jónssynir) til minningar um bróður
sinn látinn, og er það eitthvert veglegasta íbúðarherbergið
í skólanum. Þriðja herbergið kostuðu frændsystkin á Ytra-
og Syðrafjalli í Aðaldal, og er það einnig ágætt herbergi.
Það mun annars ef til vill þykja vöntun í þessa frásögh,
að ekki hefur verið gerð fyllri grein fyrir framlögum til
skólastofnunarinnar en gerð hefur verið. En flestir sam-
skotalistar eru nú týndir, og framlögin runnið saman i
Skólasjóði Þingeyinga, sem stofnaður var 1918. Þó er
enh unt að telja framlögin nokkurn veginn nákvæmt fram
eftir hreppum, ef um það væri hirt. Hér verður þess að-
eins getið, sem þó má lesa í yfirliti yfir stofnreikning
skólans, sem birtur var í Ársritinu s. 1. ár, að framlög
greidd 1924 voru kr. 24482.18, og 1925 kr. 11386.25,
auk Söfnunarsjóðslánsins, sem tekið var á ábyrgð sýslu-
félagsins og einstakra manna í héraðinu, og er því að
skoða sem framlag héraðsins. Af einstökum mönnum,
sem inest lögðu fram, mætti nefna, auk þeirra, sem nefnd-
ir eru hér að ofan, Sigurjón Friðjónsson, er gaf andvirði
lóðar skólans kr. 640.00 auk lauganna til upphitunar skól-
anum, sem eigi hafa verið virtar til framlags og vart muuu
verða virtar svo sem þær eru verðar skólanum; Jón J.
Jónatansson járnsmið á Akureyri, er gal' skólanum 1000
krónur. Þess er áður getið, að Sigurgeir Friðriksson hefði
gefið 1000 krónur, en raunar varð það 1120 kronur, því
að Sigurgeir reiknaði skólanum vexti af upphæðinni frá
því. henni var lofað og þar til hún var greidd. Fram-
kvæmdanefndin við byggingu skólans gaf alla sína viunu
og nærfelt allan kostnað annan. Er sumt af vinnu og