Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 86
84
lega, og nemendur eigi að vinna sig gegn um skólana.
Það sé hægt og það sé nemendum fyrir bestu og mann-
félaginu líka. Hann hefur um nokkur ár haft unglinga-
skóla, eg veit ekki hve marga, og látið þá bera sig á þenna
hátt. Hann heldur, aö unglingrnir læri ekki minna hjá sér
en öðrum, og þeir læri þó að vinna. Þetta er tiltölulega
auðvelt fyrir Ford, af því að hann hefur nóg handa strák-
unum að gera og góð verkfæri og skípulag, svo að þeir
geta afkastað miklu. En svo er ekki nóg með þetta. Hann
heldur hinu sama fram um barnaskólana, og til að sanna,
að það sé líka framkvæmanlegt, keypti hann í vetur
barnaskóla í nánd viö Boston (skólann, þar sem María
var með litla lambið, sem Longfellow kvað um), og ætlar
að láta hann bera sig á sama hátt. Þetta á sjálfsagt langt
í Iand heima, jafnvel um unglingaskóla, en að því held eg
að ætti að stefna. Unglingar geta án efa unnið töluvert í
skólunum, lært eins mikið fyrir því í venjulegum náms-
greinum og vinnuna að auki, og ef til vill ást á vinnunni.
Aö minsta kosti ætti slíkt ekki að verða letiskólar, og ef
til vill yrðu þá fleiri skólagallar afnumdir, og skólatím-
ann mætti lengja, ef nemendur ynnu fyrir sér. Þú veist nú
þetta og hefur víst reynt eitthvað. Aðstaða Fords er svo
ólík þinni sem orðið getur. Þó held eg, að rétt væri fyrir
þig að skoða skóla hans. Það gæti vakiö hugmyndir, sem
eitthvað sprytti upp af.
Það er nú þetta, sem eg mundi gera í þín.um sporum,
þegar til Ameríku kæmi: 1. Athuga skólabókasöfn, sam-
band skóla og alþýðubókasafna og bókasafnavinnu í skól-
um og bókasöfnum, með það fyrir augum, að bókasafns-
vinna og þroskun bóklmeigðarinnar eigi að vera einn að-
alþáttur skólans af þremur. Og þetta eins fyrir því, þótt
þú sért þar á undan flestum heima. 2. Athuga arðbæra
vinnu í skólum með það fyrir augum, að vinna fyrir dag-
legu brauði og þroskun verksvitsins og iðjuseminnar eigi