Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 135
133
Nemendasambandið með nokkrum ráðum haft hönd yfir
slíku fé?
Eg biðst afsökunar á því, að eg byrja á því að lýsa
þessu eins og fjarlægri hilling. í raun réttri getur frain-
kvæmd á því verið aiveg á næsta leitinu. Mér hefur komið
tvent til hugar um það, og hygg eg að hvorttveggja sé vel
viðráðanlegt fyrir okkur. Annað er það, að við gerum
samning við einhvern sparisjóð eða aðra lánsstofnun, um
að hún sé altaf viðbúin að hafa umsamda upphæð til að
lána nemendum Laugaskóla til framhaldsnáms. Við ber-
um öll sanreiginlega ábyrgð á þessari upphæð gagnvart
lánsstofnuninni. Það ætti að vera takmarkað, hvaö hvert
okkar ber ábyrgð á, bæði upphæð og árafjöldi. Við getum
t. d. gert ráð fyrir að við byrjum 150 og tÖkum á okkar
herðar ábyrgð á 100 krónum hvert um 10 ár. Á þann hátt
getum við ráðið yfir 15 þús. krónum í byrjun. Falli ein-
hver fyrir örlögunum úr ábyrgðinni, ætti að vera auðvelt
að fá annan í staðinn. Og auka mætti féð, sem til uinráða
væri, með nýjum ábyrgðum nýrra manna. Öll erum við á-
byrgðarmenn fyrir 100 kr., ef við erum heil heilsu. —
Jafnframt þessu þarf að efla nemendasjóð skólans, svo
að hann verði fær um að borga nokkurn hluta af vöxtum
lánanna, svo að þau verði ekki alt of dýr fyrir þá, sem
njóta þeirra. Þó að Iánsstofnunin sjái sér ekki fært, að
hafa vextina af slíkum lánum lægri en 7%, þyrftu þeir,
sem njóta þeirra, að komast hjá að greiða meir en 5%.
Stjórn Nemendasambandsins ætti að sjálfsögðu að út-
hluta lánsfénu. Og tvent er það sem hún ætti að sjálf-
sögðu að krefja alla lánþega um: að þeir líftryggi sig og
meðinæli kennara sinna á Laugum. Annars á manngildið
að vera aðal tryggingin. Lánin ættu að vera afborgunar-
laus meðan á náminu stendur, en verða síðan greidd á
tveimur árum. Þau tvö ár eiga aö vera nægilegur tími
hverjum dugandi manni, til að afla sér þess trausts, sem
L