Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 138
136
staklega fyrirkomulag á matreiðslu við sjúkrahús. Fór
hún um Noreg og Danmörgu og dvaldi á ýmsuin sjúkra-
húsum, en hvarf heim aftur á áliðnu sumri s. á., og tók
við forstöðu matreiðshmnar við heilsuhælið í Kristnesi,
þegar það tók til starfa.
Árný Filippusdóttir er erlendis í suinar. Fór hún til
Kaupmannahafnar og geröi ráð fyrir að taka þar þátt í
námskeiðum í handavinnu og teikningu, en óvíst er, hve
vítt hana ber yfir.
Anna Guðmundsdóttir frá Nýjabæ var á Ijósmæðraskóla
í Reykjavík síðastliðinn vetur og mun nú hafa lokið þar
námi. — Þórður Hjartarson var barnakennari í átthögum
sínum veturinn 1926—1927. Lét honum það starf vel, en
vegna heimilisanna gat hann ekki gegnt því áfram og
vinnur nú að búinu heima í Hlíð. — Karl Sigvaldason
stjórnar nú búi á Fljótsbakka að föður sínum látnum;
mun hann eitthvað fást við teikningar í tómstundum sín-
um. — Helga Þórarinsdóttir mun nú hafa fengið allgóða
« heilsu; hún er nú afgreiðslukona við verslun Kristins
Jónssonar kaupm. í Húsavík. — Jón Bjarnason er nýkorn-
inn úr utanför sinni, hafði hann verið utanlands nálega
1 /2 ár. Hann var iengst af í Danmörku og vann hjá
bændum, fyrst á Sjálandi en síðar á Suður-Jótlandi. En
jafnan var hann þannig ráðinn, að hann gat nokkuð farið
uin til ýmsra athugana, og fékk hann því allgott tæki-
færi, til að kynnast landsháttuin í Danmörku yfir höfuð.
Til Svíþjóðar fór hann s. 1-. sumar og komst alt norður
til Uppsala. Nokkra dvöl hafði hann í Kaupmannahöfn,
og gekk þá á söfnin þar. Mun hann hafa safnað sér
drjúgu veganesti í þessari ferð, og unnið fyrir farareyri
sínum jafnframt. — Kári Tryggvason kom heim frá Víf-
ilsstöðum seint í fyrra sumar. Er hann nú heima á búi
föður síns, og við sæmilega heilsu. — Ragnar A. Þor-
steinsson lauk námi við kennaraskólann í vor og fór þá