Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 152
150
Landafræði.
Stuðst við Landafræði e. Karl Finnbogason, en kenslan mest
í fyrirlestrum. Farið yfir Frakkland, Sviss, Dunárlönd, Suður-
Evrópu, Asíu, Ameríku, Egiftaland og' lönd Breta í Suður-
Afríku. Aðaláhersla lögð á að lýsa þjóðlífi og atvinnuháttum.
3 kenslustundir í viku.
Eeikningur.
Reiknað eftir Reikningsbók Ólafs Daníelssonar bls. 8G—132.
Heimaæfingar vikulega. 3 stundir í viku.
T e i k n i n g.
Kend fríhendisteikning.
S m í ð i.
Nemendur smíðuðu fyrir sjálfa sig. Áttu þeir kost á að smíða,
þegar ekki var smíðakensla í yngri deild. Það, sem nemendur
smíðuðu, var (taldir með fáeinir munir, er nem. í y. d. smíðuðu
fyrir sjálfa sig) : 32 pör af skíðum, 11 stofuhurðir og 3 skáp-
hurðir (smíðið selt skólanum), 8 hrífur, 4 orf, 1 bókaskápur
stór, 1 bókaskápur lítill, 2 skrifborð með skápum og' skúffum,
2 skrifborð með skúffum, 4 borðstofuborð (matborð), 3 lítil borð,
1 skrifpúlt, 2 kommóður, 3 skrifborðsstólar, 1 legustóll, 1 klæða-
skápur, 5 kistur og kofort og fjölmargt af smárömmum, kistl-
um, bollaparabökkum og öðrum smámunum, til að skera út og
mála (»tarsovera«).
Handavinna.
Allar stúlkurnar að einni undanskilinni lærðu sauma, mest
útsaum, og flestar höfðu þar aðalnám. Sumir nemendurnir,
bæði piltar og stúlkur, lærðu »tarsovinnu« (að skera út tré og
mála), og gerði kennarinn sjálfur nokkuð af uppdráttunum.
S u n d.
Kensla í sundi 2 stundir í viku. Annars eins og' í y. d.
Próf.
Prófdómendur voru hinir sömu og s. 1. vor, sr. Hermann
Hjartarson og' Björn Jóhannsson. Auk þess dæmdi ungfrú Marja