Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 154
152
Aldamótakvæði Einars Bcnediktssonar og yngstu skáldin, góð
ritgerð að efni, en máli og stíl ábótavant.
Úrlausnir í aukanámsga-einum: í skriflegri og munnlcgri ís-
lensku, dönsku og reikningi góðar, í landafræði og grasafræði
mjög góðar.
7. Geir Ásmundsson.
Ekkert aðalnám.
Úrlausnir í aukanámsgreinum: í skriflegri íslensku, ensku og
teikningu mjög góðar, i munnlegri íslensku, mannkynssögu,
iandafræði og grasafræði góðar, í dönsku og- reikningi sæmilega
góðar.
8. Gíslína Magnúsdóttir.
Ekkert aðalnám.
Úrlausnir í aukanámsgreinum: í íslensku skriflegri og munn-
legri, mannkynssögu, landafræði og dönsku sæmilega góðar, í
grasafræði góð.
9. Guðjón Baldvinsson.
Aðalnámsgrein íslenskar bókmentir. Aðalverkefni rítgerð um
Vefarann mikla frá Kasmír. Réð ekki við efnið, en tilþrif dágóð.
Úrlausnir í aukanámsgreinum: í munnlegri íslensku og
dönsku mjög’ góðar, í landafræði góð, í skriflegri íslensku,
mannkynssögu og reikningi sæmilega góðar, í grasafræði góð.
10. Hólmfríður Isfeldsdóttir.
Aðalnámsgrein saumar. Úrlausnir mjög góðar.
Úrlausnir í aukanámsgreinum: í íslensku skriflegri og munn-
legri, grasafræði og dönsku góðar, í sögu sæmilega góð, í landa-
fræði mjög góð.
11. Hólmgeir Sigurgeirsson.
Aðalnámsgrein smíði. Aðalverkefni borðstofuborð, skrifborð
og skrifborðsstólar, ágætt.
Úrlausnir í aukanámsgreinum: I íslensku skriflegri og munn-
iegri og grasafræði sæmilega góðar, í dönsku góð.
12. Ingibjörg K. Jónsdóttir.
Aðalnámsgrein saumar. Úrlausnir mjög góðar.
Úrlausnir í aukanámsgi-einum: í munnlegri íslensku og reikn-
ingi sæmilega góðar, í skriflegri íslensku góð, í dönsku mjög góð.
13. Jón Jóhannsson.
Ekkert Aðalnám.
Úrlausnir í aukanámsgreinum: í munnlegri íslensku viðun-
andi, í skriflegri íslensku, dönsku, mannkynssögu og landafræði
sæmilega góðar, í grasafræði góð.