Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1995, Blaðsíða 65
SÓLIN OG DÝRAHRINGURINN
Sólbraut nefnist baugur sá er sólin virðist fara eftir á árgöngu sinni
nteðal fastastjarnanna. Þeim fastastjörnum, sem næst eru sólbraut, var
1 fornöld skipað í 12 stjörnumerki sem kennd voru við hrút, naut, tví-
bura, krabba, ljón, mey, vog, sporðdreka, bogmann, steingeit, vatns-
bera og fiska. Myndirnar í hægri og vinstri hlið umgerðarinnar á for-
síðu almanaksins eru táknmyndir þessara stjörnumerkja sem í heild
bera nafnið dýrahringur. Auk sólarinnar ganga tungl og reikistjörnur
(að Plútó undanskildum) ávallt nálægt sólbraut og fylgja þessir himin-
hnettir því stjörnumerkjum dýrahringsins. Merki þessi voru snemma
talin mikilvæg í sambandi við stjörnuspár og gætir þessa enn á vorum
dögum. f stjörnuspáfræðinni er yfirleitt látið svo heita að sólin gangi í
hrútsmerki um vorjafndægur og að merkin séu öll jafn stór þannig að
sólin sé um það bil rnánuð að ganga gegnum hvert merki. Hvorugt er
rétt ef miðað er við hin eiginlegu stjörnumerki. Á dögum Forn-
Grikkja, er mótuðu stjörnuspákerfi dýrahringsins, gekk sólin að vxsu í
hrútsmerki um vorjafndægur eða því sem næst. En hægfara pólvelta
jarðar hefur valdið þeirri breytingu að sólin er nú í fiskamerki um
vorjafndægur og gengur ekki í hrútsmerki fyrr en mánuði síðar.
Sé miðað við þær alþjóðlegu markalfnur stjörnumerkja, sem notað-
ar eru í stjörnufræði, gengur sólin nú inn í stjörnumerkin nokkurn
veginn sem hér segir: í hrútsmerki 18. apríl, nautsmerki 14. maí, tví-
buramerki 21. júní, krabbamerki 20. júlí, ljónsmerki 10. ágúst, meyjar-
merki 16. september, vogarmerki 31. október, sporðdrekamerki 23.
nóvember, naðurvaldamerki 30. nóvember, bogmannsmerki 18. des-
ember, steingeitarmerki 19. janúar, vatnsberamerki 16. febrúar og
fiskamerki 12. mars. Vegna pólveltunnar gengur sólin örlítið seinna í
stjörnumerkin með ári hverju. Þannig breytast dagsetningarnar að
jafnaði um einn dag á hverjum 70 árum.
GRÍSKA STAFRÓFIÐ
A (X alfa I l jóta P P ró
B p beta K K,X kappa I sigma
r y gamma A X lambda T X tá
A 5 delta M muj Y t) ypsilon
E e,e epsilon N V nuj <Þ 4>,<P fí
Z C zeta É ksí X X kí
H eta O 0 ómíkron >P 4- psí
0 8,ð þeta n 7C,C5 Pí n co . ómega
(63)